Franskir dagar - 01.07.2016, Qupperneq 34
34
Franskir dagar Les jours français
Að kenna fólk við húsanöfn og bæjarnöfn er vel þekkt. Hver
kannast ekki við Hans í Hátúni og Hans á Sólvöllum. Það er
reyndar sami maðurinn, en hann bjó í Hátúni þegar hann var
barn en býr nú á Sólvöllum. Ég skrepp enn í kaff i til vinkonu
minnar, Sigurbjargar á Grund þó nokkur ár séu síðan ég fór að
fá kaff ið á Uppsölum. Alltaf heimsótti ég ömmu og afa í Þrastó
(Þrastalundi) og kíkti til Guðrúnar í Árnagerði með Írisi æsku-
vinkonu minni, svo ég nefni nokkur dæmi.
Faðir minn, Gunnar Skarphéðinsson, vinnur hjá Rarik. Einhverju sinni átti
ég leið til hans á skrifstofuna, þá hafði hann nýlokið við að taka til í gömlu
dóti. Hann rétti mér litla möppu og spurði hvort þetta væri ekki eitthvað
sem ég vildi skoða. Þetta var skrá með húsanöfnum hér úr bænum í staf-
rófsröð og númer á rafmagnsmælum. Þessi skrá var notuð til að halda utan
um rafmagnsnotkun hér á Búðum áður en götuheitin komu til sögunnar.
Til ársins 1972 var gerð sú krafa að nefna hús til þess að fá lán hjá for-
vera Íbúðalánasjóðs, Húsnæðismálastjórn, en eftir það var götuheitið og
númer húss látið nægja.
Mér þótti þetta mjög spennandi, fór að skoða þetta betur og afla mér frekari
upplýsinga. Ég fór á bæjarskrifstofu Búðahrepps og fékk að láni skrá yfir
fasteignir á Búðum þar sem skráð voru byggingarár húsa. Einnig fór ég
á Héraðsskjalasafn Austurlands og fékk upplýsingar sem til voru þar, þar
á meðal manntöl sem gerð voru á tíu ára fresti frá árunum 1890 til 1940.
Auk þess hitti ég að máli Hauk Jónsson í Staðbrekku, Finnboga Jónsson í
Víðihlíð og hjónin í Nýjabæ, þau Kristínu og Níels. Það gekk nokkuð vel
að raða þessu saman. Reyndar var í nokkur skipti erfitt að ákvarða hvenær
hús voru byggð vegna þess að þegar byggt var við húsin, þá voru þau metin
upp á nýtt og þá var ártal viðbyggingar skráð í fasteignamat í stað upphaf-
lega byggingarársins. Ég miðaði þá við elsta ártal sem ég fann í heimildum.
Í grein eftir Sigmar Magnússon sem birtist í Múlaþingi segir hann að árið
1890 sé kominn vísir að þorpsmyndun og nöfn komin á húsin þó þau séu
kannski ekki mjög varanleg.
Á þeim tíma sem ég var að setja mig inn í þessi mál, hafði Sögufélag Fá-
skrúðsfjarðar milligöngu um að panta útskorin viðarskilti með húsanöfnum
til að merkja húsin. Mér hefur alltaf fundist þessi skilti setja mikinn svip
á bæinn og hvet fólk til þess að halda þessu við.
Þessar upplýsingar um heiti húsa á Búðum í Fáskrúðsfirði hef ég sett upp
á vefsíðu sem er að finna á slóðinni faskhus.wordpress.com. Vonandi hafið
þið gaman af.
Húsanöfn á Búðum
Texti og myndir: Guðrún Gunnarsdóttir Michelsen
Grund
Þingholt
Kaupvangur