Franskir dagar - 01.07.2016, Síða 36
36
Bergtegundir
Bergi er skipt í þrjá flokka eftir því hvernig það
myndast. Þessir flokkar eru storkuberg, setberg
og myndbreytt berg.
Storkuberg myndast við storknun kviku. Dæmi
um storkuberg eru basalt og rhýólít. Setberg
myndast þegar molnað berg límst saman, harðnar
og verður með tíð og tíma að bergi. Sandsteinn
og salt eru dæmi um setberg. Myndbreytt berg
myndast djúpt í jörðinni við mikinn hita og
þrýsting. Það myndast þegar berg, storku- og set-
berg, hitnar og endurkristallast. Marmari er dæmi
um myndbreytt berg. Eiginlegt myndbreytt berg
finnst ekki á yfirborði hér á landi. Ummyndað
berg finnst hins vegar, en þá á endurkristöllun
sér stað á litlu dýpi.
Meirihluti Íslands er gerður úr storkubergi og
verður því aðallega fjallað um það hér. Storku-
bergi er skipt í þrjá flokka eftir staðsetningu við
storkun; gosberg, gangberg og djúpberg. Gosberg
myndast þegar kvika storknar á yfirborði. Gang-
berg myndast þegar kvika storknar á litlu dýpi
undir yfirborði og djúpberg myndast þegar kvika
storknar djúpt undir yfirborði. Gosberg er jafnan
fínkornótt og djúpberg stórkornótt.
Storkuberg er flokkað eftir kísilinnihaldi. Basískt
storkuberg hefur minna en 52% kísilinnihald.
Gosbergið basalt og djúpbergið gabbró eru dæmi
um basískt storkuberg. Hægt er að þekkja það á
því að bergið er dökkt að lit og oft með ólivíndíla.
Ísúr storkuberg eru með 52 til 63% kísilmagn.
Gosbergið íslandít og djúpbergið díórít eru dæmi
um slíkt. Ísúrt storkuberg er yfirleitt dökkgrátt
að lit. Súrt storkuberg hefur meira kísilmagn en
63%. Gosbergið rhýólít og djúpbergið granít eru
dæmi um súrt storkuberg. Það er yfirleitt ljós-
leitt en þó eru undantekningar á því og má þar
til dæmis nefna hrafntinnu.
Jarðsaga Íslands
Ísland er mjög ungt á jarðfræðilegum tímakvarða.
Ísland er eyja sem bæði er á rekbelti og á heitum
reit. Myndun Íslands má rekja til þess tíma þegar
Norður-Atlantshafið hóf að myndast fyrir um 65
milljón árum síðan. Þá tók Ameríkuflekann og
Evrasíuflekann að reka hvor frá öðrum. Á milli
flekanna myndaðist Atlantshafshryggurinn og
hafa hraunlög úr honum hlaðist hvert ofan á
annað og meðal annars myndað Ísland. Í gegn
um miðju landsins liggur virkt gosbelti og hefur
kvika komið þar upp reglulega og myndað þykkan
stafla af hraunlögum. Ung hraun sem hlaðast upp
í gosbeltinu þrýsta eldri hraunum niður samtímis
sem þau færast til hliðar með landrekinu. Þannig
hefur eyjan stækkað og mótast og orðið eins og
við þekkjum hana í dag. Elstu hraunlögin eru
því lengst frá gosbeltinu, á Austfjörðum og Vest-
fjörðum, og yngstu hraunin eru næst gosbeltinu,
á miðhálendi landsins. Gliðnunarhraðinn í gegn
um jarðsöguna hefur verið um 2 cm á ári. Til
gamans er hægt að miða við að neglur vaxa á
svipuðum hraða.
Jarðfræði Austfjarða
Bergið á Austfjörðum kallast blágrýti og mynd-
aðist á því aldursskeiði jarðar sem nefnt er ter-
tíer. Tertíer hófst þegar risaeðlur dóu út fyrir
um 65 milljón árum síðan og lauk við upphaf
ísaldarskeiðs sem nefnist Pleistósen, fyrir um 2,6
milljón árum síðan. Blágrýti er um helmingur af
flatarmáli Íslands og nær blágrýti Austurlands
frá Breiðamerkursandi og norður að Langanesi.
Þetta eru um 700 hraunlög sem hafa hlaðist upp
í um 10 km þykkan stafla á um 10 milljón árum.
Elsta berg sem vitað er um á Austfjörðum er um
13 milljón ára gamalt og er við Gerpi. Mikill
stöðugleiki er í jarðskorpunni á Austurlandi
og þar eru hvorki jarðhræringar né eldvirkni.
Jöklar ísaldar hafa mótað og myndað landslag
Austfjarða, sorfið og grafið bæði stóra dali og
djúpa firði.
Jarðfræði Austfjarða
Texti: Íris Eva Einarsdóttir, nemandi í jarðfræði við HÍ
Myndir: Íris Eva, Sigurjón Hjálmarsson og Vilborg Eiríksdóttir
Sandfell (743 m) er eitt besta dæmi um bergeitil á norðurhveli jarðar.
Þegar Austfirði ber á góma koma oftar en ekki upp í hugann tignarleg fjöll og jökulsorfnir
dalir. Í þessari grein verður farið í stuttu máli yf ir jarðfræði Austfjarða með áherslu
á Fáskrúðsfjörð. Teknar verða fyrir nokkur jarðfræðifyrirbæri og þau útskýrð. Fyrst er
stuttur kafli um flokkun bergtegunda og farið yfir ýmis hugtök sem tengjast jarðfræðinni.
Franskir dagar Les jours français