Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 42
42
Franskir dagar Les jours français
Skólaskemmtun sett upp 1967-8.
F.v. Eygló Aðalsteinsdóttir, Eygló Gunnþórsdóttir, Kristjana Guðlaugsdóttir, Hjördís Hjaltadóttir,
Dagný Hjaltadóttir, Auðbjörg Gunnarsdóttir, Elín Jóhanna Óskarsdóttir og Flórentína Óskarsdóttir.
Sjómannadagurinn á Fáskrúðsfirði 1968 eða 69. Hilmar Gunnþórsson í boðhlaupi að klára úr
ölflösku, Egill Guðlaugsson ljósmyndar lengst til vinstri.
Sjómannadagurinn 1965 eða 66. Þessi mynd er tekin þegar áhöfnin á Hvanney SU-442 var
heiðruð fyrir að bjarga Báru SU-526 og áhöfn hennar í Hornafjarðarósi. F.v. Jens Lúðvíksson, Jón
Finnbogason, Jón Stefánsson frá Sandgerði, Sigrún Sigurðardóttir frá Hól (tekur við merkinu fyrir
hönd Arons), Friðrik Jóhannesson Mikk, Ingi frá Þingholti, Jóhann Jónasson frá Búðum og Kristján
I Stefánsson.
Fáskrúðsfjörður líklega 1968.
Myndir Jóhannesar
á Draumalandi
Skagfirðingurinn Jóhannes S. Jósefsson fæddist 1927, hann kom til Fáskrúðsfjarðar um 1951 og vann
mest sem múrari. Jóhannes kvæntist Guðrúnu S. Stefánsdóttur (1934-2009) frá Kappeyri. Þau byggðu
Draumaland 1954-5 og er Jóhannes gjarnan kenndur við það hús, af Fáskrúðsfirðingum. Jóhannes tók
um 700 myndir þar á árunum 1957-1970, af nánast öllum þáttum mannlífsins. Árið 1970, í kjölfar
atvinnuleysis eftir síldarárin, flutti fjölskyldan aftur í Skagafjörðinn. Jóhannes verður 89 ára í haust.