Franskir dagar - 01.07.2016, Síða 43
43
Franskir dagar Les jours français
Þann 7. apríl síðastliðinn tilkynntu Evrópusam-
bandið og Europa Nostra sigurvegara Evrópsku
Menningarverðlaunanna fyrir verkefni á sviði
menningararfleiðar/Europa Nostra verðlaunanna
árið 2016, en þetta er stærsta viðurkenning sem
veitt er á sviði menningararfleifðar í Evrópu.
Meðal verðlaunahafa ársins 2016 var Minja-
vernd fyrir verkefnið Franski spítalinn á Fá-
skrúðsfirði, en verðlaunin voru veitt fyrir fram-
úrskarandi verkefni frá Íslandi: Endurbyggingu
og umbreytingu Franska spítalans á Fáskrúðsfirði
í hótel og safn.
Óháðar dómnefndir skipaðar sérfræðingum völdu
sigurvegarana úr hópi 187 umsókna sem sendar
voru inn af samtökum og einstaklingum frá 36
Evrópulöndum. Þá voru einnig veitt sérstök verð-
laun úr niðurstöðum netkosninga þar sem al-
menningur gat kosið sinn sigurvegara og stutt
verðlaunahafa, hvort sem er úr sínu eigin landi
eða öðru Evrópulandi. Verkefnin sem kosin voru
af dómnefndinni eru öll dæmi um framúrskar-
andi hugvit, nýsköpun, sjálfbæra þróun og félags-
lega þátttöku á sviði menningararfleifðar um alla
Evrópu. Alls hlutu 28 aðilar frá 16 löndum viður-
kenningu fyrir framúrskarandi afrek sín á sviði
verndunar, rannsóknavinnu, sérhæfðrar þjónustu
og fræðslu, þjálfunar og vitundarvakningar.
Verkefnið, sem var samstarfsverkefni arkítekta,
verkfræðinga og handverksmanna Minjaverndar
og undir stjórn Minjaverndar innan bæjarfélags-
ins, hófst árið 2009 og fólst í endurbyggingu og
flutningi Franska spítalans til Fáskrúðsfjarðar,
þar sem hann var upphaflega byggður árið 1904
til að sinna fjölda franskra sjómanna, sem veiddu
við strendur Íslands í um 400 ár. Auk endur-
byggingar spítalans gerði Minjavernd einnig
upp Læknishúsið, sem tengt er spítalanum með
undirgöngum, sjúkraskýli, kapellu og líkhús. Allar
byggingar voru reistar af Frökkum í sama tilgangi,
að þjónusta franska sjómenn fjarri heimahögum.
Þetta var stórt verkefni með það að markmiði
að endurlífga þetta markverða tímabil í sögu
bæjarfélagsins, með því að breyta spítalanum og
tengdum byggingum í hótel og safn til minn-
ingar um hinn mikla fjölda sjómanna sem fórst
við strendur Íslands og á spítalanum. Virðing var
borin fyrir upprunalegum efniviði og handverki
við endurbyggingu hússins, timbur úr gömlu
byggingunni var endurnýtt og gömlu handverki
beitt til hins ítrasta. „Verkefnið endurvekur ákveðið
tímabil í Evrópskri sögu með því að rifja upp þessa
tengingu milli Frakklands og Íslands. Samstarfs-
hópurinn hefur lagt sig fram um að varðveita þessa
merku og viðkvæmu byggingu sem og hina áhuga-
verðu arfleifð sem hún stendur fyrir“, sögðu dóm-
arar verkefnisins.
Það hefur verið stefna Minjaverndar að finna
þeim húsum, sem félagið hefur endurbyggt, not
sem henta viðkomandi verkefni, styrkja fjár-
hag verkefnis og umhverfi þess. Því var lögð
veruleg vinna í að finna þessum húsum öllum
viðfangsefni. Að niðurstöðu varð að Íslands-
hótel hf. leigja húsin fjögur fyrir vandað hótel,
þ.e. Franska spítalann, Læknishúsið að stærstum
hluta, sjúkraskýlið og líkhúsið. Fjarðabyggð leigir
hluta Læknishúss og tengingu þess við Franska
spítalann undir glæsilegt sögusafn um líf franskra
sjómanna á Íslandsmiðum fyrr á öldum. Í samn-
ingum við Íslandshótel varð ljóst að fjölga þyrfti
herbergjum umfram það sem hægt var að koma
fyrir í gömlu húsunum. Því var ráðist í að reisa
nýbyggingu vestan Franska spítalans þar sem
komið er fyrir viðbótargistirými og eru herbergin
þá um 50 alls. Nýbygging þessi er byggð í sama
stíl og gömlu húsin og fellur vel inn í þá þyrp-
ingu. Hún var tekin í notkun nú í sumarbyrjun.
Við óskum Minjavernd hjartanlega til hamingju
með vel heppnað verkefni og verðskuldaða viður-
kenningu, og Íslandshótelum með glæsilegt hótel
sem Fosshótel Austfirðir er.
Heimildir:
Fréttatilkynning frá Minjavernd
Fréttatilkynning Evrópusambandsins og Europa
Nostra
Evrópsk menningararfleifðar-
verðlaun til Franska spítalans
Texti: María Óskarsdóttir
Mynd: Sigurjón Hjálmarsson