Alþýðublaðið - 12.12.1919, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 12.12.1919, Blaðsíða 2
Allir skyldu líta með óskertri dóm- greind á orsök bylt- ínga og dæma þær síðan. Hvenær sem maður tekur sér útlent blað í hönd, rekur maður sig á fleiri og færri greinar, sem snúast um Bolsevisma. Og mörg- um verður það á að spyrja, hvað hefðu blöðin haít til þess að fylla með dálka sína, hefði hreyfing þessi aldrei komist af stað? Bað er auðvitað ekki gott að svara þeirri spurningu, en vafalaust hefðu þau getað fundið eitthvað annað. Og vissulega gætu þau nú talað um hreyfingu þessa, með meiri sanngirni og dómgreind, væru þau ekki starblind af eldgömlum illúðgum kreddum og kenningum ríkjandi þjóðfélagsskipunar. En mannkynið á nú einu sinni bágt með að losa sig við þær kreddur, sem það svo árum saman hefir trúað á. Hversu góðar og göfugar stefnur, sem rísa upp, eru þær níddar niður fyrir allar hellur, af fleiri og færri fáráðlingum, sem þykjast vera, og trúa sjálfir, að þeir séu postular sannleikans og hinna sönnu heilla mannkynsins. Hvenær sem ný leið er fundin, af hugsjónamönnum og andans- mönnum mannkynsins, er hún bannsungin af blöðum og ritum þeim, sem víðlesnust eru. Eink- um á þetta sér stað um það, sem horfir til breytinga á hinu marg- gatslitna fati núverandi þjóðfélags- skipunar. Það má með sanni segja, að allar stefnur, hverju nafni sem þær hafa nefnst, hafi verið bann- sungnar fyrst í stað. En þegar frá leið og farið var að athuga þess- ar stefnur, sást og sést altaf meira og minna í þeim, sem enginn maður með óskerta dómgreind eða viti getur í móti mælt að horfi til bóta. Hversvegna eru menn þá að spyrna í móti umbótum, sem þeir sjá, að geti bætt núverandi ástand og misrétti sem ræður að meira og minna leyti lögum og lofum í heimi hér? Hversvegna hamast stórblöðin, sem eru eign einstakra auðmanna og auðfélaga, á móti Socialisma, sem þau viðurkenna nú orðið — nema Morgunblaðið, sem varla er hægt að kalla blað, ALÞÝÐUBLAÐIÐ p lipfe ; með! öllum þeim endemis-fjarstæð- um, þekkingarvillum og rugli sem það flytur — eða hversvegna sjá þau ekkert nema svörtu hliðar Bolsevismans? Af því að þeir, sem að blöðunum standa, tapa ef til vill fé, komist fyrirkomulag þess- ara stefna í framkvæmd. Þrátt fyrir það, þó blöðin, um víða veröld, prédiki meira og minna á móti Socialisma, þá hefir fjöldi mentamanna og ágætismanna þjóð- anna snúist á sveif með stefnunni, » og í Frakklandi hefir t. d. Social- isminn verið borinn uppi af menta- mönnum frá því fyrst hann komst þar á rekspöl. Engum dylst, að því meiri mót- spyrnu sem Socialismi mætir, því eldheitari verða fylgismenn hans og því nær færast þeir byltinga- stefnu Bolsevismans. í raun og veru vilja Socialistar um heim all- an ekki snögga byltingu, en heimskuleg mótspyrna andstæð- inganna hefir neytt þá til byltinga og komið mörgum af hinum ákaf- ari Socialistum til þess að hallast að aðferð Bolsivíka, nefnilega snöggri alheimsbyltingu. í stuttu máli, það eru andstæðingarnir, sem neyða til byltinga, en þær eru á engan hátt stefnunni eða einstökum forsprökkum að kenna, nema að því leyti, að þeir eru eldheitir áhugamenn, sem vilja þjóð sinni og mannkyninu vel. Bolsevisminn *) í Bússlandi, er að vísu runninn af Socialisman- um, en er orðinn að byltingu vegna þeirrar óstjórnlegu kúgunar og misréttis, sem ekki að eins öll alþýða manna þar í landi, heldur og allir, sem einhverjar breytingar vildu, urðu að þola, um hundruð ára. Það er því eng- in furða þó bylting yrði í Búss- landi og enn minni furða þó hinir undirokuðu reyndu ef til vill að hefna sín á kúguruin sínum. Það er þvi dásamlegt að foringjum hinna rússnesku Bolsivíka hefir tekist að draga úr hiyðjuverkurn þar í landi, svo mjög, að þau komast okki í hálfkvisti við hryðju- verkin, sem unnin voru í stjórn- byltingunni miklu í Frakklandi, ef borinn er saman fólksfjöldi beggja landanna, og hvað eru hryðjuverk- 1) Bolschevik mun þýða meirihluta- maður og verður þá Bolsevismi meiri- hlutastefna. Höf. in sem Bolsivíkum er kent um, samanborið við glæp þann, sem auðmenn heimsins hafa framið, með bölvun stríðsins, og auðmenn Bandamanna eru í þann veginn að fremja með því, að neyða Þjóð- verja nú aftur út í stríð. Enginn má samt taka orð mín svo, að eg mæli hryðjuverkum þeim bót, sem unnin hafa verið í Bússlandi nú síðustu árin. En þau fylgja ætíð byltingum. Eg vil að eins benda mönnum á það, að ástandið í Bússlandi var alt ann- að en í Vestur-Evrópu og marg- falt verra. C'g í nauðvörn er mönn- um heimilt að grípa til varnar og neyta þeirra vopna, sem annars eru óleyfileg. Kvásir. Blindni. Það er alkunnugt að sumir menn sjá engan mun á litum, grænt, rautt, blátt, alt lítur eins út fyrir þeim, eða þegar bezt vill sýnist þeim litir þessir mismun- andi gráir — en allir gráir. Þetta er nefnd litblindni. Getur hún oft komið sér illa og ýmsar eru þær stöður sem litblindir menn fá ekki, þó þeir séu að öðru leyti afbragðs- vel til þess fallnir að gegna þeim, og er rneðal þeirra stöðurnar sem skipstjóri og stýrimaður. Önnur tegund „blindni" lýsir sér í því að geta ekki greint satt frá röngu i eigin munni. Þessir menn eru oft nefndir lygarar og kallaðir því ósvífuari sem þeir blanda meir málunum, en oft eru vesalingar þeir sem hafa þessa éinkennilegu blindni hafðir fyrir rangri sök, það er sagt þeir séu að Jjúga, a£ því þeir segja eitt- hvað ósatt, af því þeir yfirleitt geta engan mun gert á röngu og réttu, frekar en þoir litblindu á litunum. Margt bendir á að ritstjóri „Vís- is“ sé einn þessara aumkunarverðu manna, sem eru blindir á satt og logið í eigin munni. En ef hann er ekki einn þeiira þá væri synd áð segja að hann vantaði ósvífn- ina, þvi harm hlýtur þá að hafa óvenju mikið af henni, þvi annars mundi sannleikanum sýnd meiri nærgætni í „Vísi“. Sem dæmi upp

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.