Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild - 01.12.1896, Blaðsíða 53
Stjórnartiðindi 1896 C, 13.
49
Tala sakborinna og sakfelldra hefur verið:
Sakbornir Sakfelldir
alls meðaltals á ari alls meðaltals á ári
1878—84 175 25 148 21
1885—91 243 35 211 30
Af þessu má sjá, að afbrotamönnum hefur fjölgað að miklum mun síðari árin og
eru þeir rúmum tveim fimmtu fleiri árin 1885—91, en árin 1878—84, enda þótt fólkinu á
landinu hafi fækkað á árunum 1880—90.
Af hinum sakfelldu hafa freklega fimm sjöttu verið karlmenn, en tæpur sjötti hluti
konur.
Af glæpunum hefur þjófnaður og aðrir skyldir glæpir verið lang-almennastir. Á
árunum 1885—91 voru alls sakfelldir:
Fyrir stórþjófnað......................................................36
— almennan þjófnað og hilming....................................92
— ólöglega meðferð á fundnu fje..................................11
— svik............................................................. 10
— fals .............................................................15
Samtals afbrot gegn eignarrjetti.................................... 164
Brot á móti valdsstjórn og allsherjarreglu..........................14
Líkamlegt ofbeldi og meiðingar ....................................... 7
Afbrot á móti slcírlífi.................................................6
Skemmdir eigua og ill meðferð á skepnum.............................6
Onnur afbrot...........................................................14
47
Rúmlega þrír fjórðu af öllum sakfelldum hafa verið dæmdir fyrir afbrot, sem miða
að því, að auðga sig á kostnað annara, og yfir þrír fimmtu fyrir þjófnað.
Fyrir brot á móti almennri lögreglu hafa verið:
Sakbornir Sakfelldir
alls meðaltals á ári alls meðaltals á ári
1878—84 453 67 379 54
1885—91 898 128 550 79
Það gildir hið sama um lögreglubrotin, sem um glæpina, að þeim hefur fjölgað mjög.
Þeir, sem hafa verið kærðir um lögreglubrot, eru nær helmingi fleiri 1885—91 en 1878—84,
en hinum sakfelldu hefur fjölgað tiltölulega nokkru minna.
Nálega helmingur þeirra, sem ákærðir hafa verið fyrir lögreglubrot, eru úr Reykja-
vík og Kjósar- og Gullbringusýslu.
Einkamál lögreglusótt hafa verið:
1878—84 274 þar af sætt eða niðurfallin 167
1885—91 202 ------------— ----- 116
Tala þessara mála hefur töluvert lækkað og er fullum þriðjungi lægri 1885—91 en
1878—84; sátt hefur komizt á í nálega þrem fimmtu af málum þessum.
í skýrslunnm um glæpamálin og lögreglumálin eru mál þau, sem hafa verið fyrir-
tekin og dæmd í Eyjafjarðarsýslu og Akureyrarkaupstað, talin undir Eyjafjarðarlögsagnar-
umdæmi, af því að skýrslurnar voru þannig lagaðar, að eigi var hægt að aðgreina sýsluna
og kaupstaðinn.