Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Blaðsíða 33
hnífsins hnúajámsins
Niðurlæging kvenlíkama
vonir kynslóðanna
kæfðar í blóði hugleysi heimsku
hlátur úr dauðum vömbum
Heil Coca Cola
Konungsríki
fyrir morðingja
ÉG VAR MACBETH KONUNGURJNN BAUÐ
MÉR ÞRIÐJU HJÁKONU SÍNA ÉG KUNNISÉRHVERN
FÆÐINGARBLETT Á MJÖÐMUM HENNAR
UTANAÐ RAS KOLNIKO V NÆST HJARTANU UNDIR
JAKKANUM EINA ÖXIN ÆTLUÐ HAUSNUM / EINA /
Á VEÐLÁNAKELLINGUNNI
í einangrun flughafna
anda ég út Ég nýt
forréttinda Ógeð mitt
forréttindi
umgirt múrum
gaddavír fangelsi
Ljósmynd af höfundinum.
Ég vil ekki lengur éta drekka anda konu elska mann bam dýr. Ég vil ekki
lengur deyja. Ég vil ekki lengur drepa.
Rífur sundur Ijósmyndina af höfundinum.
Ég ríf upp innsiglað hold mitt Ég vil búa í æðum mínum, í merg beina
minna, í völundarhúsi hauskúpu minnar. Ég dreg mig í hlé til innyfla minna.
Ég tek mér stöðu í eigin skít, í blóði mínu. Einhvers staðar verða líkamar
slitnir sundur svo ég ged búið í eigin skít. Einhvers staðar verða líkamar
ristir upp svo ég getí verið einn með blóði mínu. Hugsanir mínar em sár í
heila mínum. Heili minn er eitt sár. Ég vil vera maskína. Hendur sem grípa
fætur sem ganga enginn sársauki engar hugsanir.
Skjáirnir svartir. Blóð úr kœliskápnum. Þrjár naktar konur: Marx Lenin
Mao. Flytja samtímis, hver á sínu máli, textann ÞAR AF LEIÐIR
UMBYLTINGU ÞEIRRA AFSTÆÐNA SEM MAÐURINN...
Hamlet-leikarinn klœðist búningi og setur á sig maska.
HAMLET DANAPRINS OG ORMAFÆÐA STAULAST
FRÁ HOLU TIL HOLU AÐ SÍÐUSTU HOLU AÐ BAKI
HUGLAUS VOFAN SEM GAT HANN
GRÆN SEM HÚÐ ÓFELÍU Á BARNSÆNGINNI
OG RÉTT FYRIR ÞRIÐJA HANAGAL BRÝTXJR
BJARTUR OG FRÚ EMILÍA • TÍMARIT