Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Blaðsíða 16

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Blaðsíða 16
eftir Nóbel eins og páfi og lýsti yfir því að þeir sem héldu sig ekki við epískan stíl íslendingasagna væru fábjánar, því þetta væri okkar tradisjón. Þeir sem voru að gera eitthvað annað áttu bara að fara út í heim. Ég er þeirrar skoðunar að Laxness hafi skemmt Ólaf Jóhann Sigurðsson. Ég er viss um að það hefði verið meiri töggur í honum ef Laxness hefði ekki heft hann. Hann hafði svo mikið vald að hann stýrði gersamlega bókmenntasmekk þjóðarinnar í fjöru'u ár fram til 1965. Þetta er mín prívatskoðun. Þúsegiráeinum staðí greinum stöðu íslenskra bókmennta. „Djörfung er eitt af megineinkennum stórra skáldverka. Þessa djörfung virðist mér íslenska höfunda skorta tilfinnanlega.“ Hefur einhver stórhuga og djarfur rithöfundur komið fram á íslandi á síðari árum? Eftir að þessi grein var skrifuð hafa komið margir virkilega stórhuga rithöfundar. Eins og ég sagði áðan komu fram á sjónarsviðið nokkrir frábærir rithöfundar eins og til dæmis Guðbergur Bergsson, Jakobína Sigurðardóttir, Þorsteinn frá Hamri á sinn hátt og Svava Jakobsdóttir. Það sem S vava hefur lagt fram núna á síðustu árum, eins og Gunnlaðarsaga, er snilld. Eg held að Gunnlaðarsaga séeittaf stórvirkjum aldarinnar. Það sem hún hefur gert með mýtuna um Gunnlöðu sýnir dirfsku. Enda var sú bók aðalefni bókahátíðarinnar í Gautaborg núna í haust. Við eigum svo sannar- lega djarfhuga rithöfunda. Þó bókin hennar Steinunnar Sigurðardóttur, Tímaþjófurinn, sékannski ekki eins merkileg og bækurþessara fjórmenninga sem ég nefndi áðan, er það nokkuð markverð bók. Hún gerir djarfa tilraun til að brjóta upp form og svo hefur hún þennan sérstaka tón. Mér fmnst Einar Kárason, Einar Már og Pétur Gunnarsson hafa verið að gera nokkuð eftir- tektarverða hluti þó ég setji þá ekki á sama stall og fjórmenningana. Þórarinn Eldjám er sniðugur, hugkvæmur og uppfinningasamur en mér finnst hann skrifa of mikið með heilanum. Ef hann gæti opnað hjartað þá mundi hann gera stórmerkilega hluti. Álfrún Gunnlaugsdóttir, Vigdís GrímsdóttirogFríðaÁ.Sigurðardóttirerumikilskáldogsemjasérkennilegar sögur. Svo eigum við vonameista, Gyrði Elíasson, hann fer alveg nýjar lciðir; við hann bind ég miklar vonir. í sömu grein vitnar þú í og tekur undir orð Kristjáns Karlssonar sem segin „Við eigum í dag tvennskonar lifandi hefð í bókmenntum: Ljóðræna hefö og frásagnarhefð. Okkur skortir tvímælalaust heimspekilega og andlega undirstöðu í bókmenntir okkar og þessvegna er svo mikil hætta á aö þær leysist upp í lýríska mærö og endalausar frásagnir af fátæklegum atburðum úr þjóðlífinu.“ Er þetta raunin í

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.