Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Blaðsíða 24

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Blaðsíða 24
J ímyndað mér að ég geti skrifað í fyrstu persónu. Þegar þú skrifar dramatík hefur þú ætíð svipi og hlutverk, og þú getur talað í gegnum þá. Þetta er ástæðan fyrir að ég kýs dramatík — vegna svipanna. Ég get sagt einn hlut og átt við hið gagnstæða. Þú óskar þess ekki að taka eindregna afstöðu. Er það þess vegna sem þér líkar að dramatísera mótsagnir? / Eg óska eftir að losa mig við mótsagnimar og það er auðveldara í dramatík. Ég uppgötvaði merkilegan hlut þegar ég var að skrifa stuttan prósatexta um sjálfsmorð konunnar minnar heitinnar. (Hún svipti sig lífi 1966). Fyrst skrifaði ég í þriðju persónu: ,Jíann kom heim og hann sá...“ Þá áttaðiégmigáþvíaðþettavarheigulsháttursvoégbreytti setningunni: ,Ég kom heim og sá hana...“ Annar hluti textans er minning frá lokum stríðsins. Ég var á leið um bersvæði og mætti ungum þýskum hermanni. Hann var á aldur við mig, 16 ára. Aldrei mun ég gleyma andliti hans. Hann leit út eins og hæna. Hann hafði hænuandlit. Hann elti mig. Hann vantaði félagsskap. Hann varð að eiga sér foringja. Þetta var hræðilegt. Ég reyndi að losa mig við hann svo dögum skipti. Ég fór mjög illa með hann. Þetta var í fyrsta sinn sem mig langaði til að drepa einhvem, einungis til að losna við hann. Hann var svo máttfarinn og horfði á mig þrælsaugum. f textanum um sjálfsmorð konu minnar reyndi ég einnig að skrifa um þessa reynslu. Ég lýsti morðinu á drengnum. Ég drap hann ekki í raun og veru, en í þessum texta drap ég hann nokkrum sinnum. Það var sérstök tilfinning að skrifa: ,JÉg tók skófluna og klauf höfuð hans; ég sá blóðið spýtasL" Það er allt önnur reynsla að skrifa svona lagað en að hafa tíu morð í leikhúsverki. Það er miklu persónulegra. H ver er ástæðan fyrir þ ví að þú skrifar svona stutta dramatíska texta? Fyrst skrifaði ég verk í fúllri lengd, sem fjallaði um raun veruleikann, og ég skrifaði fyrir ákveðið leikhús, fyrir austur - þýska áhorfendur. En smám saman varð ég einn vegna þess að það var ekkert leikhús sem vildi sýna verk mín og engir áhorfendur sem komu að sjá og þá fór ég smám saman að skrifa einh verskonar eintöl. Engin samtöl því ég sá ekkert leikhús og enga áhorfendur. Ég fór að skrifa eintöl og undirtextinn varð meiri og meiri og því meiri undirtexti þeim mun styttri varð sjálfur textinn. Textar mínir eru oft skrifaðir þannig að hver setning eða önnur hver sýnir aðeins 24 BJARTUR OG FRU EMILIA • TIMARIT

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.