Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Blaðsíða 5

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Blaðsíða 5
 bók tókst Ishiguro að hasla sér völl á alþjóðavettvangi og hefur bókin komið út á yfir 30 tungumálum. K^azuo Ishiguro er 36 ára, fæddur 1954 í Nagasaki í Japan. Fimm ára að aldri fluttist hann ásamt foreldrum sínum og tveimur systrum til Englands, þar sem hann hefur verið búsettur síðan. Á sjötta og sjöunda áratugnum voru Japanar á götum Englands sjaldgæf sjón. Ishiguro minnist ekki að hafa séð aöra samlanda sma á Englandi fyrr en um miðjan sjöunda áratuginn. Japan varð því snemma eitthvað framandi og þokuhulið í vitund Ishiguros. Sem krakki segist Ishiguro alls ekki hafa lesið eða haft áhuga á bókum. Hann ætlaði sér alltaf að gerast lagasmiður og söngvari. Fékk sér gítar og lagði hart að sér við tónlistamámið. Fyrirmyndimar vom Bob Dylan og Leonard Cohen. ✓ X lok sjöunda áratugarins og í upphafi þess áttunda beindist áhugi listhneigðra ungra manna í Englandi og víðar fyrst og fremst að rokkinu. Myndlistin og leikhúsið nutu ákveðinnar virðingar en skáldsagnagerðin var ekkiínáðinni.Skáldsagnagerðvar íhugumþessaungafólks frásagnirmið- aldra kvenna af ástarævintýrum sínum. (Að vísu skám tvær konur sig úr í breskri skáldsagnagerð, þær Margaret Drabble og Edna O ’ Brien sem sendu frá sér frábærar bækur, en í kringum þær var sægur af lélegum eftirherm um.) *■ Ef listhneigð ungmenni höfðu áhuga á bókmenntum eða vom eitthvað að möndla við að skrifa þá settu þeir saman ádeilutexta við angurværa söngva fremur en að reyna að berja saman bókmenntatexta. Á þessum ámm vom þó ákveðnar bækur og höfundar í tísku og var mikilvægt að láta sjá sig opinberlega með Steppenwolf eftir Hermann Hesse og bækur Camus eins og Pláguna og Útlendinginn. BJARTUR OG FRÚ EMILÍA • TÍMARIT 5

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.