Ljóðormur - 01.03.1987, Blaðsíða 45
minna á hæga kafla úr súrrealískum myndum, eins og til
dæmis "Óreglulegar þversagnir", en þar segir meðal annars:
útúr fyrrverandi húsasundi kemur maður
hlaupandi höfuðið vantar en honum blæðir ekki
(sýndur hægt í nærmynd umhverfis hann í
tilhöggvinn kross eða snúrustaur sem stormur
hefur vafið fötum utan um sporin jafnóðum
orpin sandi hann er eltur af termíta-
hersíngum sem þyrpast að úr öllum áttum)
Á nýjustu bók Gyrðis, Blindfugl/svartflug, er einnig
nokkur hrollvekjubragur, en hér tengist óhugnaðurinn
sjaldnar fjölmiðluðu skapadægri. Að vísu gætu einstakir
kaflar ljóðabálksins verið runnir af slíkum rótum:
Uppaf botninum fljóta höfuðin áþekk
blöðrum skornum af streng.mara hálf
í vatnsskorpunni og hvelfingin endur-
ómar af sogum vatnsfylltra öndunar-
færa.myllusteinn um háls... (línur 299-303)
Kvíðinn og óttinn sem hrjá 1 jóðmælandann og reka hann í
draumi á æðisgenginn flótta (1. 144-149), og tengjast
heimsmynd sem hann þekkir en þekkir þó ekki. Atburðir
úti í heimi eru okkur öðrum þræði framandi veruleiki, en
um leið eru þeir fjarska nálægir í ýmsum myndum: "hér
er ég ókunnugur, tek fáein / hikandi útreiknuð skref yfir
/ dúfnatorgið einsog ég búist við / jarðsprengjum eða fall-
gryfjum" (1. 27-30).
Óstöðvandi kvíði sprettur fram
einsog blóð undan nöglum.ótti
við ótímabæran aldurtila ef til
vill.helluþök molna og falla í
höfuð(algengur dauðdagi í útlöndum)
sandpokar haldlitlir gegn ógnvekjandi
framrás þungvopnaðra daga (1. 46-52)
LJODORMUR
43