Ljóðormur - 01.03.1987, Síða 56
og því iðulega sjónarsvið hrollvekju og tvístraðrar skynj-
unar. Dunandi dægurlíf heimsins mótar inniveru skáldsins
og Gyrðir er ekki "heimasáttur", ef nota má það orð;
heim(s)kynni hans gefa honum engin grið, allt eins þótt
ljóðskáldinu berist aldrei bréf. Undirtónn tveggja nýjustu
bóka er þó engin mælskufull heimsendastemma, því svip-
myndir hrollvekjandi örlaga eru ætíð umvafðar rödd melan-
kólíunnar; stundum er eins og allar sviptingar hafi þegar
átt sér stað og ljóðmælandinn gangi um dapurt eyðisvið:
"Verður gengið inn í ljósheldar / hvelfingar sem ekki sér
fyrir / endann á,eða auð hús að hruni / komin stimpluð
dauða..." (1. 177-180).
Með "melankólíu" á ég hér við virka lífsafstöðu og
nota þetta orð í anda þýska fræðimannsins Walters
Benjamins, en aðhans mati birtist melankólíantil að mynda
í hinni barokksku allegóríu sem hann fjallar um í því
stórmerka riti Ursprung des deutschen Trauerspiels. Sú
allegóría á sér einungis brotakennda skírskotun til sam-
félagsveruleika (er semsé ekki samfelld táknræn hliðstæða
hans) - en það er þó einmitt þetta brotaform sem skapar
heimsmynd veruleikans samfara því að sjónarsvið verksins
birtist okkur iðulega sem einhvers konar rústir. Rústir
og veðruð mannvirki eru einmitt algeng í nýjustu bókum
Gyrðis (sbr. ljóðin "Nafnlaust", "tvílyft hús autt við haf"
og "af ófyrirsjáanlegum ástæðum" í Bakvið maríuglerið) en
eins og gotneskar svipmyndir Gyrðis fela þau ekki í sér
endursköpun veruleika okkar á symbólsku sviði, heldur
getum við séð í þessu tvennu einhvers konar ummynduð
brot veruleikans sem gefa og raunveruleg eða hugsanleg
örlög hans til kynna.
Benjamin bendir á að brotaform þessarar allegóríu
eigi sér hliðstæðu í módemisma samtímans, auk þess sem
hinar barokksku rústir túlki eyðandi framrás sögunnar á
þann máta sem umhugsunarverður sé á okkar öld. Þannig
hjálpar umfjöllun Benjamins okkur að skynja það afl og
það ákall sem býr í melankólíu Gyrðis: hrollvekjur hans
og rústamyndir sýna okkur ummerki sögunnar sem slítandi
afls (en þá hlið hennar gerir nútíðin oft mikið til að fela)
54
LJOÐORMUR