Víkurfréttir - 11.09.1980, Blaðsíða 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 11. september 1980 7
Knattspyrnufélag Kefla-
víkur 30 ára
Fyrir 30 árum siðan, eða nánar
tiltekið 12. júlí 1950, stofnuöu
nokkrir ungir áhugasamir menn
Knattspyrnufélag Keflavíkur. Var
aðalverkefni félagsins knatt-
spyrnuástundun fyrstu árin, en
er líða tók á komu fleiri íþróttir á
stefnuskrá félagsins, t.d. hand-
knattleikur, sund og frjálsar
íþróttir. Hefur félagiö átt afreks-
menn á öllum sviðum, t.d. (s-
landsmeistara í meistaraflokki
kvenna i handknattleik 1. deildar
og fjölda landsliðsmanna í knatt-
spyrnu, handknattleik og sundi.
Nú hin síðari ár hefur KFK lagt
sérstaka ástundun við yngri
flokkana. T.d. hafa verið farnar
Körfuknattleikur:
Landsleikur
ísland - Kína
í nýja íþróttahúsinu
í Keflavík?
(þróttaráði Keflavikur hefur
borist beiðni fra Körfuknattleiks-
sambandi (slands um að fá afnot
af íþróttahúsinu nýja fyrir lands-
leik í körfubolta milli (slands og
Kína 8. október n.k. íþróttaráð
hefur samþykkt þetta fyrir sitt
leyti svo framarlega sem húsið
veröur tilbúið til notkunar.
Vissulega yrði gaman ef hægt
yrði að byrja íhúsinu meðslíkum
leik, en þegar þetta er skrifað er
enn ekki Ijóst hvort næst aö klára
húsið fyrir þann tíma.
Og til gamans má svo geta
þess, að kínverska liðið hefur á
aö skipa hæsta körfuknattleiks-
mann í heimi, sem er 2.28 cm á
hæð, og er ekki annaö vitað en
að hann verði með.
25%
haust-
afsláttur
BEL-O-SOL LAMPINN
hefur veitt psoriasis- og
vöðvabólgusjúklingum
aukna vellíöan. Þú verður
brún(n) á 6-12 dögum í
BEL-O-SOL.
Lausir dag- og
kvöldtímar.
Opið kl. 10-22.
Haldið við sumarlitnum.
Sólbaðstofan SÓLEY
Heiðarbraut 2 - Keflavík
Simi 2764
ferðir til Noregs árið 1976 með
ungar handknattleiksstúlkur og
drengi. Árin 1977 og 1978 var
fariö til Svíþjóðar og tekið þátt í
handknattleiksmótum. Árið 1979
fóru drengir til Gautaborgar í
Svíþjóð til að taka þátt í stóru
knattspyrnumóti. Nú í sumarvar
breytt út af vananum og farin
ferð með drengi og stúlkur til
Húsavíkur og Akureyrar og
keppt þar í knattspyrnu og hand-
knattleik.
I sumar hafa KFK-menn minst
þessara timamóta í sögu félags-
ins með þvi að bjóða liöum til
Keflavíkur og keppt viö þau í
knattspyrnu og frjálsum iþrótt-
um. Einnig var haldin stór hjól-
reiðakeppni á vegum KFK i júli-
mánuði. KFK-menn hafa fengið
til liðs viö sig frjálsíþróttaþjálf-
ara, Stefán Hallgrímsson, lands-
frægan tugþrautarmann.
Þann 4. október n.k. verður
haldin í Stapa 30 ára afmælishá-
tíð KFK. Hátiðin hefst meö mat-
arveislu og síðanverðaskemmti-
atriði, afhending heiðursmerkja
KFK og að lokum stiginn dans.
Eru allir velunnarar og stuðn-
ingsmenn félagsins hvattir til aö
mæta.
Aö lokum vilja VÍKUR-fréttir
óska félaginu velfarnaöar og
góðs gengis í framtíöinni. - elli.
Þessi mynd vartekin á 25 áraafmæli KFK, þegarGarðarOddgeirsson veitir þeim
Arsæli Jónssyni og Siguröi Steindórssyni viðurkenningu fyrir mikil og vel unnin störf i þágu félagsins.
NJARÐVfKURBÆR
Útsvar
Aðstöðugjald
Annar gjalddagi útsvars og aðstöðugjalds
var 1. september.
Dráttarvextir eru 41/2% pr. mánuði.
Kaupgreiðendur eru sérstaklega minntir á
30. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga um
sjálfsábyrgð á gjöldum starfsmanna sinna.
Bæjarsjóður - Innheimta