Víkurfréttir - 23.10.1980, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 23.10.1980, Blaðsíða 1
6. tbl. 1. árg. Fimmtudagur 23. október 1980 s IIÍKUR FCETTIC íþróttahúsiö í Keflavík: Stóra stundin nálgast Húsiö veröur aö öllu forfallalausu tekiö I notkun í byrjun nóvember, - segir Jón Jóhannsson, forstööumaöur hússins Þeir eru eflaust margir Keflvík- ingarnir, sem eru orðnir lang- þreyttir eftir að nýja íþróttahúsið verði tekið í notkun, og nú þessa þarna til að gefa iðnaöarmönn- unum það í skyn, að það sé beðið eftir að þeir Ijúki sínum verkum og hverfi á braut með tæki sín, þannig að hægt verði að fara að nota húsið til íþróttaiökana. Fréttamaöur blaðsins átti leið þarna um á sunnudagsmorgun- inn, og eins og hinir þá brá hann sér inn fyrir og hitti þar Jón Jó- hannsson, forstööumann húss- ins, að máli: - Jón, hvað er nú um aö vera hjá ykkur? - Hollendingarnir eru nú aö byrja á að merkja gólfið fyrir þær íþróttir sem hér verða stundaöar, og eins og þú sérð þá er nú búið að setja gólfefniö á og salurinn er nú sem óðast að taka á sig sína endanlegu mynd. Þeir áætla að þeir Ijúki þessum merkingum á þriðjudaginn, og þá verður aðeins eftir aö Ijúka ýmsum smá dagana þegar allar innanhúss- iþróttirnar eru að fara í gang er spennan hjá þeim sem þær stunda komin í hámark. Þeir sem leið eiga fram hjá húsinu eöa lita þar inn sjá þar undantekningar- laust einhverja handbolta- eða körfuboltamenn á ferli, sem eru að kanna hvort hin stóra stund sé ekki aö nálgast, og ekki er spenn- an minni hjá eldri skólanemend- unum, sem varla hafa fengið leik- fimikennslu frá því þeir yfirgáfu blessaðan barnaskólann. Alltaf eru óþreyjufullir borgarar á ferli Unnið að lausn varðandi gömlu íbúðirnar vegna skrifa VÍKUR-frétta Rins og fram kom í 4. tbl. V(KUR-frétta, þá hefur bygg- inganefnd Keflavíkur tekið upp þá aöferö, aö neita að sam þykkja ýmsar gamlar íbúðir. Er þarna um aö ræða ibúöir sem hafa veriö í notkun i fjölda ára án þess að sótt hafi veriö út á þær sam- þykki. Að sögn Steinars Geirdal, byggingafulltrúa, hafa yfirvöld byggingamála nú.eftirumrædda grein, ákveðið að reyna að finna einhverja aðra aðferð við þessar íbúðir, eða eins og hann sagöi, ,,að fara hinn gullna meðalveg." Með þessu á hann við, að ákveð- ið hefur verið að reyna að kom- ast að samkomulagi um mál þessi og ekki einblína alltaf á lögin. Þetta þýðir þó ekki að hvaða íbúð sem er fái leyfi, heldur veröa þær aö fullnægja ákveðnum skilyrðum. Þá kom fram hjá Steinari, að eftir skrif blaösins hefur mikiö borið á þvi aö fólk hefði samband við hann til að kynna sér ástand íbúða og hvort þær fengju leyfi, - áður en kaupsamningar væru geröir. þáttum hér i salnum og eftir það veröur hann tilbúinn. Áður en gólfefniö var sett á þurfti að hreinsa húsið mjög vel, þurrka rykaf öllu hérinni.ogtilaðvinna það verk fengum við hóp sjálf- boöaliöa, pilta og stúlkur úr handboltanum og körfunni, en allir virðast vera boönir og búmr til að leggja hönd á plóginn til að þessu verki Ijúki sem fyrst, þannig að hinn langþráöi draum- ur rætist að hægt verði að fara að nota húsiö. - Hvernlg er meö aðra verkþættl, er þeim elnnig að Ijúka? - Já, þetta er allt að smella saman jsessa dagana, enda er hér allt á fullu. Stærsta verkið sem eftir er nú er áhorfenda- svæöið. Þar er þó nokkur vinna eftir i sambandi við að leggja gólfefniö á, en það er unnið við það nú eins og flest annað hér þessa dagana. - Er búlð að ákveð hvenær húsið verður formlega teklð I notkun? Framh. á 8. alðu Kaupfélagiö og Hagkaup vilja byggja stórmarkaöi í Njarövík Að undanförnu hefur Kaupfé- lag Suðurnesja veriö að undir- búa tillögur að nýjum stórmark- aöi, sem staðsettur verður í Njarðvík, noröan við svæði það sem Krossinn gamli var. Tillögur þessar gera ráð fyrir aö reist veröi þarna hús i burstastíl og eiga burstirnar að vera 5 að tölu, að sögn Gunnars Sveinssonar kaupfélagsstjóra. Er nú unniö aö þvi að móta stærð hússins, fyrir- komulag og annað sem felst i til- lögunni, sem væntanlega verður tekin fyrir á næsta fundi bygg- inganefndar Njarðvíkur. En ekki verður það lengi sem Kaupfélagið verður eitt um að byggja stórmarkað í Njarövík, þvi ef fer sem nú horfir, mun Hag- kaup byggja markaö á Fitjum, og hefur lýst áhuga sínum á að fá lóð undir markaðsverslun sunn- an skrifstofu Njarðvíkurbæjar og fer einnig fram á að Njarðvíkur- bær fái staðsetningu hins nýja Keflavíkurvegar ákveöna, svo að nánari viöræður Hagkaups og Njarðvíkurbæjar geti hafist. Bygginganefnd Njarðvíkur hefur lýst áhuga sinum á staösetningu fyrirtækisins á þessum stað eöa þar í grennd.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.