Fréttablaðið - 02.12.2016, Page 20
Á Íslandi er nýafstaðin kosn-ingabarátta þar sem metn-aðarfullir stjórnmálamenn
kepptust um að skuldbinda ríkið
til útgjalda. Það þurfa að vera skatt-
tekjur á móti þessum útgjöldum og
ber að reyna að afla þeirra tekna
með sem skynsamlegustum hætti.
Í Danmörku er nýlokið stjórnar-
kreppu þar sem meðal annars var
tekist á um skattamál. Stjórnmála-
menn þar í landi eru að miklu leyti
sammála um æskilegar megin-
áherslur. Flokkum gengur hins
vegar illa að ganga í takt að mark-
miðinu. Nú síðast var deiluefnið
vandræðaskattur á fasteignir. Á
síðustu 20 árum hafa fasteignir,
lóðir o.s.frv. hækkað langt umfram
verðlag í löndum eins og til dæmis
Danmörku og Svíþjóð. Ef skattstofn
er byggður á metnu verðmæti eigna
blasir við að hætt er við að þannig
skattar gangi ekki í takt við verðlag
og virki sem bóluskattar.
Í báðum þessum löndum sáu
menn sitt óvænna í umhverfi hækk-
andi eignaverðs og frystu fasteigna-
skatta í þeirri krónutölu sem gilti
2001. Ef til vill var þetta hugsað
sem tímabundin ráðstöfun en verð-
hækkanir á eignamörkuðum héldu
áfram og á árunum 2005-2008 tóku
Svíar ærlega til í skattkerfinu varð-
andi svona skatta. Allir eignaskattar,
skattar á gjafir, erfðir og eignir voru
afnumdir og fasteignaskattur til
sveitarfélaga skilgreindur í krónu-
tölu, til dæmis ákveðinn krónutölu-
fjöldi á einbýlishús. Hugmyndin er
að skattheimta sveitarfélags af fast-
eign skuli ráðast af þeirri þjónustu
sem veitt er en ekki af áætluðum
söluhagnaði. Menn höfðu lengi
vitað að skattstofnar af þessari gerð
eru illkynja.
Danir hafa ekki enn verið svo lán-
samir að ryðja þessu út úr kerfinu
hjá sér. Dönsk sveitarfélög hafa haft
til ráðstöfunar ákveðna gerð af lóða-
skatti, grundskyld, sem leggst á virði
lóðar. Sá skattur hefur ekki verið
frystur og hækkað mikið umfram
almennt verðlag. Pólitíska slagorð-
ið, að ekki skuli skattleggja fólk út úr
húsum sínum (ingen skal beskattes
ud af sin bolig) hefur orðið til því líf-
eyrisþegar í gömlum litlum skuld-
lausum húsum en með stóra lóð
hafa fengið á sig grófar hækkanir
langt umfram eigin tekjuþróun.
Stjórnmálamenn hafa rætt um að
sameina skattstofnana, fasteigna-
skatt, ejendomsværdiskat, sem
reiknast af markaðsvirði íbúðar og
lóðarskattinn. Það hefur hins vegar
ekki verið auðvelt því að þetta hefði
í för með sér skattahækkun hjá
sumum og skattalækkun hjá öðrum.
Í nýjum stjórnarsáttmála dönsku
ríkisstjórnarinnar er nú talað um
að frysta líka lóðarskattinn í krónu-
tölunni sem gilti 2015 (vandræða-
lending). Upphaflega átti frystingin
að gilda til 2020 en nú ræða menn
hvernig skattareglunar skuli vera
eftir 2020-2025.
Hér er sænska útfærslan greini-
lega vandræðaminni en sú danska.
Við höfum heyrt ljótar sögur um
lífeyrisþega sem í sínu virka lífi
greiddu upp skuldir sínar og þurfa
síðan að selja eða veðsetja eignir til
að eiga fyrir sköttum. Áður en svona
skattar voru lagðir niður í Svíþjóð
voru sagðar sögur af netagerðar-
mönnum sem lentu í því að nýríkir
bankamenn keyptu netaskúra við
hliðina á þeim og spenntu upp
skattstofninn. Hæfni netagerðar-
manna til skattgreiðslu jókst ekki
vegna ríku nágrannanna.
Svipaðar sögur eru nú sagðar í
Reykjavík um gamalgróin fyrirtæki
sem horfast í augu við að opinberar
aðilar hyggi á skattahækkanir vegna
þess að verðmat nærliggjandi hús-
næði hækkar, eða jafnvel að verið
sé að skipta um reikniformúlur
við verðmatið. Ef Bill Gates félli frá
blasir við að það væri ekki skynsam-
legt að þvinga erfingja til að selja
mikið magn hlutabréfa til að eiga
fyrir sköttum.
Hvatning til stjórnarskrársmiða
Hópur hugsjónafólks hefur undan-
farin ár unnið við endurhönnun
stjórnarskrárinnar. Hér er því gullið
tækifæri að hnykkja á eignarrétt-
inum í stjórnarskránni þannig að
eignaskattar og aðrir slíkir þar sem
skattstofninn er matsvirði eignar
(erfðaskattur, fasteignaskattur
o.fl.) séu fortakslaust bannaðir í
stjórnarskrá. Ef skattstofn er mats-
virði eignar er um eignaupptöku
að ræða. Æskilegt er að fasteigna-
skattar framtíðarinnar verði þann-
ig að íbúðarkaupendur þyrftu ekki
að verða fyrir forsendubresti vegna
þess að sveitarstjórn dettur skyndi-
lega í hug að snarhækka skatt á
eignir.
Ef Íslendingar fara sænsku leið-
ina í þessu máli væri skynsamlegt
að fara í áföngum, t.d. á 5-10 árum,
að markinu. Verðhækkun eigna á
ekki að vera grundvöllur aukinnar
eyðslu, hvorki hjá einkaaðlinum,
fyrirtækjum né hinu opinbera. Að
minnsta kosti á að fara mjög gæti-
lega á þeirri braut. Annars kann
illa að fara þegar verðfallið kemur.
Eyðslu á að fjármagna með tekjum.
Bannið vandræðaskatta
í stjórnarskrá
Helgi Tómasson
prófessor í hag-
rannsóknum og
tölfræði við Há-
skóla Íslands Ef skattstofn er matsvirði
eignar er um eignaupptöku
að ræða. Æskilegt er að fast-
eignaskattar framtíðarinnar
verði þannig að íbúðarkaup-
endur þyrftu ekki að verða
fyrir forsendubresti vegna
þess að sveitarstjórn dettur
skyndilega í hug að snar-
hækka skatt á eignir.
Í samstarfi við Epli og Valitor
Tilboðið gildir með völdum sjónvarpspökkum
365 til 15. desember 2016.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á 365.IS
MEIRI HRAÐI, SKARPARI MYND, BETRA VIÐMÓT
APPLE TV 4 Á 0 KR.
Í þrjátíu ár höfum við verið í fararbroddi við að færa þér gæðaefni með nýjustu tækni. Árið 1986
biðu tilvonandi áskrifendur okkar í röðum eftir myndlyklum þegar fyrsti myndlykillinn kom til
Íslands. Frá þeim tíma hefur hvergi verið hnikað og hver tæknibreytingin tekið við af annarri.
Við hjá 365 leggjum metnað í að þú njótir skemmtunarinnar á sem bestan hátt og stígum nú
enn eitt skrefið og kynnum 365 sjónvarp á Apple TV. Meiri hraði, skarpari mynd og enn betra
viðmót í sjónvarpi framtíðarinnar.
Nú getur þú fengið þér Apple TV 4 með áskrift að efni frá
365 og sparað tugi þúsunda því við bjóðum þér Apple TV á
0 krónur með 12 mánaða áskrift að völdum pökkum 365.
Tilboð gildir til 15. desember
Útgáfa 2.0
Íslensk valmynd
og tímaflakk.
ÁSKRIFENDA-
LOTTERÍ 365
Allir áskrifendur að
sjónvarpspökkum 365
í nóv. og des. eiga
möguleika á að
vinna glæsilega
vinninga.
2 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F Ö s T U d A G U r20
0
2
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
8
6
-B
3
2
0
1
B
8
6
-B
1
E
4
1
B
8
6
-B
0
A
8
1
B
8
6
-A
F
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K