Alþýðublaðið - 12.12.1919, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Nokkrir dugl. drengir
óskast til að selja nýja bók á gotnnum. Drengirnir komi kl.
11 á morgun. Gi-«.ögfeir Jónsson, Laugaveg 17.
Xoli konnngnr.
Eftir Upton Sinclair.
(Frh.).
XI.
Ekki leið á Iöngu áður en
Halli gafst kostur á að athuga
njósnirnar. Hann fór að skilja að
nokkru leyti vald það er fjötraði
þeana þögla og þolinmóða mann-
grúa við þrælkunina. Sunnudags-
morgun nokkurn ranglaði hann
um námuhverfið með Tim Rafferty
asnreka. Tim var vandaður og
góður piltur. Andlit hans var
spilt af kolaryki en augun blá og
dreymandi. Þeir gengu heim til
Tims. Faðir hans var lotinn og
iuinn en sterklegur og mikill að
burðum. Forfeður hans höfðu verið
námumenn langt fram f ættir.
Hann var kallaður „gamíi Raf-
ferty", þó hann hefði ekki náð
fimtugu. Hann hafði unnið í nám-
unutn síðan hann var níu ára.
Rafferty gamli sýndi Halli myndir
af forfeðrum sínum „í gamla
landinu". Það voru hraustlegir og
hrukkóttir karlar, sem sátu stinnir
og hátíðlegir á meðan að svipur
þeirra var gerður ódauðlegur fyrir
eftirkomenáurnar.
Móðir Tuns var mögur, grá
fyrir hærum og tannlaus. Hún
var mjög góðleg. Halli geðjaðist
vel að henni af því að hús h^nnar
var svo þrifalegt. Hún sat á
þröskuldinam og sagði börnum
sínum skemtilegar sögur og æfin-
týri. Krakkarnir voru hreinir og
þvegnir.
Halli var boðið að borða mið-
degisverð. Var honum fenginn
hreinn hnífur og gaffill, heitar
kartöflur og tvær sneiðar af söltu
fleski á hreinum diski. Honum
fanst það svo ágætt að hann
spurði strax hvert hann mætti
ekki borða þar og fara frá mat-
söluhúsinu, sem félagið hafði vís-
að honum tii.
Frú Rafferty leit upp stórum
augum. „Jú“, sagði húu. „Haldið
þér mættuð þaðf“
„Þvi ekki það?“ spurði Hallur.
„Það væri eftirbreytnisvert fyrir
hina“.
„Haldið þér að eg verdi að
borða hjá Reminitsky".
„Félagið hefir sex matsöluhús",
mælti konan.
„Hvað myndu þeir gera ef eg
borðaði hjá yður?“
„Fyrst mundi yður vera gefin
bending og síðan yrðuð þér rek-
inn, ef til vill fengjum við sömu
útreiðina".
„Já, en það eru mörg matsölu-
hús niður hjá hermannaskálunum",
mælti hann.
„Nú jál Þeir gulul Þá telur
enginn. Þeir búa og matast hvar
sem vera skal. Þér byrjuðuð að
borða hjá Reminitsky, og það
myndi ekki vera ráðlegt að taka
yður þaðan".
„Já, nú skil eg“, mælti Hallur
hlægjandi. „Það virðist vera hér
sitt af hverju sem ekki þykir
ráðlegt".
„Víst er um þaðl Nick Ammon
og fjölskyldu hans var sagt upp
af því að kona hans keypti mjólk
niðri i dalnum.
Barnið þeirra var veikt og það
er ekki svo mikil næring í gutl
inu, sem selt er í búðinni. Jeg
held þeir setji kalk í mjólkina, að
minsta kosti er altaf eitthvað
hvítt á botninuna".
„Nú svo þér verðið lfka að
kaupa í búð félagsins".
„Mér fanst þér segja að þér
hefðuð unnið áður í kolanámum?"
sagði Rifferty gamli, sem hafði
hlýtt þegjandi á samræðurnar.
„Það hefi eg líka", sagðt Hall-
ur, „en það var ekki líkt því
eins vont eins og þetta".
„Á?“ mælti frú Rafferty. „Það
væri gaman að vita hvar það
væri — hérlendis. Eg og karlinn
minn höfum eitt mörgum þrælk-
unar-árum í að leita að þeim
stað?« Þau höfðu talast við mjög
blátt áfram og eðliiega en þá var
alt f einu sem drægi skugga yfir
andlit þeirra — hræðslu skugga.
Hallur tók eftir því að Rafferíy
gamli leit á konu sína, hleypti
brúnum og gaf henni bendingu.
Þau vissu haria lítið um þenna
viðkunnanlega ókunna msnn þeg-
ar öilu var á botninn hvolft.
Hann sem talaði svona hispurs-
laust og hafði ferðast svo víða.
„Það er ekki af því að við
séum að kvarta", sagði gamli
maðurinn.
Og kona hans fiýtti sér að
taka undir: „Ef þeir leyfðu varn-
ings:ölum að koma hingað, þá
yrði víst ástandið dáfallegt, er eg
hrædd um. Eg hugsa að okkur
líði hér jafn ve! og annarsstaðar".
„L(f verkanjannsins er enginn
Ieikur hvar sem er", bæí.ti gamli
R^fferty við. Tim ætlaði að fara
að Ieggja orð í belg en gömlu
hjónin þögguðu óttaslegin niður í
honum. Það fékk mjög á Hall
og hann flýtti sér að vekja máls
á öðru.
Jólagjafip. ©tofuprýöl.
Myndir
— innrammaðar — af Jóni Sig-
urðssyni forseta, Mattli. Joch-
umssyni, Jónasi Hallgrímssyni,
Yaldimar Briem o. fl. eru til
sýnis og sölu á afgreiðslu Alþýðu-
blaðsins. — Verðið lágt. — Heppi-
legar jólagjaíir við hvers manns hæfl.
fáið þér beztar og ódýrastar í
cTSaupfdía^i v®rRamannaf
Laugaveg 22 A. Sími 728.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Óíafar Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.