Víkurfréttir - 17.10.1985, Side 4
4 Fimmtudagur 17. október 1985
VÍKUR-fréttir
Fasteignasalan
Hafnargötu 27 - Keflavík
KEFLAVÍK:
5 herb. sérhæö við Brekkubraut í mjög góðu
ástandi .................................. 2.750.000
Raðhús við Faxabraut með bílskúr (skipti á 4ra
herb. íbúð) .............................. 2.500.000
Raðhús við Greniteig ásamt bílskúr (skipti á 3ja
herb. íbúð) .............................. 2.500.000
Raðhús við Mávabraut m/bílskúr. Skipti mögul. 2.500.000
Einbýlishús við Hafnargötu í góðu ástandi. Laust
strax .................................... 1.700.000
4-5 herb. íbúð við Túngötu, laus strax ... 1.050.000
Einbýlishús við Vallargötu, mikið endurnýjað . 2.250.000
4-5 herb. íbúð við Hólabraut m/bílsk., ath. skipti 1.550.000
4ra herb. íbúð við Sólvallagötu m/sér inngangi 1.400.000
4ra herb. rishæð við Sunnubraut, mikið endur-
nýjuð, m.a. ný teppi ..................... 1.250.000
2ja herb. íbúð við Aðalgötu í mjög góðu ástandi 1.000.000
2ja herb. e.h. við Aðalgötu meö sér inng.. 1.150.000
2ja herb. íbúð í sambýlishúsinu Heiðarbóli 4.
Mjög góðir greiðsluskilmálar ............. 1.300.000
3ja herb. íbúð við Hringbraut (jarðhæð með sér
inngangi og bílskúr) ..................... 1.550.000
3ja herb. íbúö við Suðurgötu, nýjar innréttingar,
sér inngangur ............................ 1.450.000
2ja herb. íbúð v/Vesturgötu, sér inng., lausstrax 1.000.000
Fasteignlr i smíöum i Keflavfk:
Húsgrunnur f Garðahverfi á besta stað, góðir
greiðsluskilmálar. Nánari uppl. um söluverö o.fl.
á skrifstofunni.
Húsgrunnur undir iðnaðarhúsnæði f Grófinni,
578 ferm.................................. 1.000.000
2ja og 3ja herb. ibúðir við Heiðarholt, sem seljast
tilb. undir tréverk. Mjög góðir greiösluskilmálar.
Seljandi: Húsagerðln hf. Verð frá ... 935.000-1.445.000
2ja herb. ibúðir vlð Mávabraut. Sjá nánari augl. i
siðasta tbl. Seljandl: Hllmar Hafsteinsson.
NJARÐVÍK:
4ra herb. íbúð við Hjallaveg í mjög góðu ástandi,
laus strax................................ 1.750.000
3ja herb. íbúð við Hjallaveg, góðir greiðsluskil-
málar .................................... 1.500.000
Einbýlishús við Háseylu í smíðum, Nánari uppl. á
skrifstofunni ............................ 2.800.000
GRINDAVÍK:
Úrval fasteigna m.a. við Efstahraun, Gerðavelli,
Heiðarhraun, Kirkjustíg, Mánagötu, Selsvelli,
Hvassahraun, Suðurvör, Túngötu, Vesturbraut
og Vikurbraut. Ath. Einnig höfum við á söluskrá
mikið af fasteignum i Garði og Sandgerðl.
Suöurgata 32, efri hæð,
Keflavfk:
3ja herb. íbúð ásamt 40
ferm. bílskúr. Sér inngang-
ur, engar áhvílandi skuldir.
1.500.000
Heiðargarður 3, Keflavik:
Glæsilegt raðhús ásamt bíl-
skúr. Húsið er mikið endur-
nýjað, m.a. nýtt parket og
ný teppi á gólfum. Nánari
uppl. um söluverð og
greiðsluskilmála á skrif-
stofunni.
FASTEIG N ASALAN
Hafnargötu 27 - Keflavík - Sími 1420
Jóhann Geirdal skrifar:
Breytingar á skólum í Keflavík
-Tvo skóla í Keflavík fyrir 0.-9. bekk. - Nýjan skóla í
Norðurbænum. - Gerum Myllubakkaskóla að safnahúsi.
Þær umræður um skóla-
mál sem átt hafa sér stað
hér í Keflavík á undanförn-
um árum, hafa einkum
snúist um tvennt:
1. Nýjan skóla í norður-
hluta bæjarins (Heiðar-
byggð).
2. Skiptingu aldurshópa í
skólunum, þar sem margir,
einkum skólamenn hafa
lagt áherslu á svokallaða
langskiptingu. Það er að
allir aldurshópar séu sam-
an í grunnskóla, eins og
grunnskólalögin gera ráð
fyrir.
A síðasta ári var hafist
handa við teikningu á við-
byggingu við Myllubakka-
skóla. I kjölfar þess var svo
óskað eftir því við Fræðslu-
skrifstofu Reykjaness að
gerð yrði úttekt á skólahús-
næði grunnskóla Keflavík-
ur.
Nú liggja því fyrir upp-
lýsingar um stærð skólanna
svo og um það hve mikið
skólahúsnæði þarf að vera
til staðar svo það fullnægi
þeim normum sem í gildi
eru fyrir skólahúsnæði.
Gert er ráð fyrir því að
hér í Keflavík verði 5 bekkj-
ardeildir í hverjum árgangi
og virðist ekki óhætt að spá
verulegri fjölgun þar á
næstu árum.
Sé stærð skólanna skoð-
uð kemur í ljós að Holta-
skóli getur annað núver-
andi starfsemi, það er að
vera með 5 bekkjardeildir í
6.-9.bekk.
Hann getur líka hentað
VETRARSKOÐUN
• Stilltir ventlar •
• Stilltur blöndungur •
• Skipt um kerti
• Skipt um platínur •
• Still kveikja
• Athuguð viftureim •
og stillt •
• Athugað frostþol á •
kælikerfi. •
• Athugaðar þurrkur og
settur isvari •
í rúðusprautu
Athugaður stýrisbúnaður
Athugaðar og stilltar
hjólalegur
Mælt millibil á
framhjólum
Athugaðir bremsuborðar
Skoðaður undirvagn
Borið silicon á þéttikanta
Athuguö öll Ijós og stillt
ef þarf
Mæld hleðsla
Bíla- og vélaverkstæði
KRISTÓFERS ÞORGRÍMSSONAR
Iðavöllum 4B - Keflavlk - Siml 1266
Verð með kertum,
platinum, isvara og sölu-
skatti kr. 2.516
fyrir 4 cyl. bíl.
Erum einnig með
viðgerðarpjónustu fyrir
Mazda, Nissan/Datsun
Subaru, Daihatsu og
Mitsubishi-bifreiðar.
ágætlega sem skóli fyrir 0.-
9.bekk með þrjár deildir í
árgangi.
Húsnæði fyrir „lang-
skiptan“ skóla með 3 deild-
ir í árgangi er áætlað 4638
ferm. Núverandi húsnæði
Holtaskóla er 4503 ferm.,
en þá eru ekki taldar með
þær tvær stofur sem nú eru
notaðar fyrir æskulýðs-
starf bæjarins, 120 ferm.
Myllubakkaskóli er hins
vegar allt of lítill, hvernig
sem á hann er litið. Hann er
of lítill fyrir þá starfsemi
sem þar á sér stað í dag, þó
svo að gamli skólinn og
lausu kennslustofurnar,
kálfarnir, séu teknar með í
dæmið. Hins vegar miða
allar tillögur við það að
hætt verði að kenna í gamla
skólanum og að bráða-
birgðastofurnar verði
teknar úr notkun, og er því
augljóst að það vantar tölu-
vert uppá að hann geti ann-
að, svo vel sé þeirri starf-
semi sem þó fer þar fram í
dag.
Eigi að fullnægja þörf-
inni fyrir skólahúsnæði og
verði 3 bekkjardeildir í ár-
gangi í Holtaskóla þarf
Myllubakkaskóli að geta
tekið við 2 bekkjardeildum
í hverjum árgangi.
Húsnæði fyrir langskipt-
an skóla 0.-9.bekk með
tvær bekkjardeildir í ár-
gangi þarf að vera 3365*
ferm. en núverandi stærð
Myllubakkaskóla (án
gamla skólans og kálfanna)
er 2191 m2. Það er því ljóst
að það vantar 1174 ferm.
viðbyggingu við Myllu-
bakkaskóla svo hann geti
annað þessu hlutverki. Það
þarf að stækka hann um
rúmlega þriðjung. Það
kemur að mínu mati ekki til
greina. Fyrir því eru eink-
um tvær ástæður.
1. Verði byggt við Myllu-
bakkaskóla 1174 ferm.,
stækkaður um þriðjung,
verður hann að mínu mati
of stór á þessum stað,
börnum á öllum aldri verð-
ur áfram beint í hjarta bæj-
arins, í alla umferðina sem
þar er.
2. Verði þörf bæjarins
fyrir skólahúsnæði fullnægt
með viðbyggingu við Myll-
ubakkaskóla er fyrirsjáan-
legt að ekki verður byggður
nýr skóli í Heiðahverfi, að
minnsta kosti ekki á þess-
ari öld.
Við stöndum nú frammi
fyrir því, ef við viljum lang-
skipta skóla að Myllu-
bakkaskóli hentar ekki.
Við stöndum líka frammi
fyrir því að ef við stækkum
Myllubakkaskóla nú, þá
fæst ekki samtímis skóli
norður í nýju hverfunum,
þar sem mikill og vaxandi
fjöldi barna er.
Ég tel því skynsamlegt í
þessari stöðu að leggja
Myllubakkaskóla niður og
byggja nýjan skóla í nýju
hverfum bæjarins. Skóla
sem verður langskiptur,
með 0.-9.bekk og með tvær
bekkjardeildir í hverjum
árgangi. Sá skóli gæti
jafnvel stækkað og tekið við
þriðju bekkjardeildinni í
hverjum árgangi, ef þörf
verður síðar t.d. um alda-
mót.
Þannig getum við rekið
tvo langskipta skóla í bæn-
um, Holtaskóla með þrjár
bekkjardeildir í árgangi og
„Heiðaskólann" með tvær
bekkjardeildir í árgangi.
Þessi hugmynd er að vísu
nokkuð róttæk og ekki
óeðlilegt að spurt sé hvað
eigi þá að gera við húsnæði
Myllubakkaskóla.
I því sambandi vil ég
benda á að einmitt nú er
bærinn að huga að lóð und-
ir Safnahús. Safnahús
hefur lengi verið ofarlega á
loforðaskrá, eins og reynd-
ar nýji skólinn.
Sú hugmynd að staðsetn-
ingu Safnahúss sem helst er
talað um nú er lóðin beint á
móti nýbyggingu Spari-
sjóðins. Sá galli er hins
vegar á þeirri lóð að þó
byggingarreitur sé nógu
stór fyrir Safnahús, þá er
lóðin umhverfis heldur lítil
því ef byggðasafn verður í
því húsi verður að gera ráð
fyrir útisvæði fyrir stærri
muni sem þar þurfa að
vera.
Myllubakkaskóli hefur
bæði nokkuð stórt húsnæði
og nægjanlegt útisvæði í
hjarta bæjarins og því hent-
ugur fyrir Safnahús. Hann
virðist því kjörinn í þetta
hlutverk.
Jóhann Geirdal