Víkurfréttir - 17.10.1985, Blaðsíða 15
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 17. október 1985 15
JL__ I 1 L} U “T 1
\ 1 9 ite » i - H 1
J44i; ||B jl
ÉÉIÁ1 ifflwPH
n 'iSBiij tjjl h| r
^ i 1 \ ***■ áf % ■ rSnr&Kf ■ 1 A&SLk Á • ' i
1 i I iáfe r fPH| m BhIi/ t
HiL É Æmm -i.
' á fj ® Mr -
Máluðu þrautir á skólaplanið
Þessir hressu krakkar úr 9. bekk Grunnskóla Njarðvíkur tóku sig til á mánudag í síðustu viku
og máluðu leiksvæði yngri nemenda á skólalóðina. Voru málaðar ýmsar þrautir o.fl.
t
Ejjólfur Ben
F. 15. september 1964
D. 5. október 1985
Það er ávallt erfitt að
horfa á eftir vinum sín-
um yfir „móðuna
miklu“ og standa
frammi fyrir þeirri nöt-
urlegu staðreynd, að
geta aldrei aftur notið
návista við þá. Ekki
vekur vekur þetta síst
blendnar tilfinningar í
hóp, sem á því að
venjast að hittast reglu-
lega, á stundum undir
erfiðum kringumstæð-
um, en ávallt undir þeim
merkjum sem prýða
mega góðan hóp - sam-
heldni, vináttu og kank-
vísi. Þegar skarð er
höggvið sviplega í slíkan
hóp, verður erfitt að
sameinast aftur -
hópurinn er breyttur og
okkur setur hljóð. Og
Sigurðsson
víst er um það, starf
björgunarsveita hlýtur
að þjappa einstakling-
um þeirra nánar saman
en almennt tíðkast.
Nú höfum við misst
Eyjólf Ben úr röðum
í okkar og við því kunn-
um við engin svör. Svo
snöggt, svo óvænt.
Hann varð ekki gamall
en náði á skammri ævi
að ávinna sér fágætt
traust og væntumþykju
með þægilegri fram-
komu sinni og ósér-
hlífni. Það eru ekki hvað
síst þeir þættir í fari hans
sem gera okkur svo ráð-
þrota og agndofa.
Hópinn setur hljóðan.
Björgunarsveitin
Stakkur naut verulega
góðs af kröftum og
manngildi Eyjólfs Ben.
Nokkrar myndir þjóta
um hugann. Ungur
áhugasamur drengur
fylgir föður sínum á
æfingar og nær strax að
vinna hug og hjörtu
sveitarmanna. Hann
fylgir fordæmi föður
síns og gengur í sveitina
jafnóðum og aldur leyf-
ir, tekur þegar að sér
ábyrgðarstörf tengd
tækjum sveitarinnar og
skilar þeim óaðfinnan-
lega, rétt eins og öðru
sem hann tók að sér.
Við kveðjum góðan
félaga með þessum
fátæklegu orðum. Hann
á það inni hjá okkur að
við höldum á lofti því
merki sem hann reisti
með vaskri framgöngu
sinni og veitti okkur svo
þægilega með návist
sinni.
Foreldrum, systur og
öðrum aðstandendum
sendum við djúpa hlut-
tekningu á erfiðri stund.
Megi blessun fylgja
góðum dreng.
Félagar úr
Björgunarsveitinni
Stakkur,
Keflavík og Njarðvík
Félagsvist
Hafnamenn og aörir Suöurnesjamenn!
Hin vinsælu spilakvöld hefjast í kvöld kl. 21
, í Samkomuhúsinu, Höfnum.
Spilað verður næstu fjögur fimmtudags-
kvöld. - Mætið stundvíslega.
Stjórnin
Skrifstofustjóri
óskast
Skrifstofustjóri óskast á skrifstofu Miðnes-
hrepps, Sandgerði. 'Reynsla í skrifstofu-
störfum nauðsynleg. Umsóknir með
upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist undirrituðum fyrir 1. nóvembern.k.
Sveitarstjóri Miöneshrepps
Tjarnargötu 4, Sandgerði
Ferða- og kórfélagar
í ísraelsferð í des. ’85
Fundur verður haldinn í Kirkjulundi mánu-
daginn 21. okt. kl. 20.30.
Guðni Þórðarson mætir á fundinn og gefur
upplýsingar um endanlegt verð o.fl. sem
viðkemur ferðinni.
Ferðanefnd
Húsaviðgerðir
Tekað mér viðgerðirog breytingarað utan
sem innan. Fagmaður. Upplýsingar í síma
1120 á kvöldin.
ATHUGA
SEMD
frá Þorláksbúð
í Garði
Vegna fréttar frá Verð-
lagsstofnun um að kjötverð
sé hæst hjá Þorláksbúð í
Garði, hefur eigandi versl-
unarinnar, Þorlákur Arn-
órsson, óskað eftir að þetta
kæmi á framfæri:
„Við förum eftir viðmið-
unarlista Sláturfélags Suð-
urlands varðandi verðá-
lagningu og reynum ávallt
að hafa gæðin sem best.
Sögum við t.d. niður hryggi
og læri til að hafa saltkjötið
sem best og tökum allt feita
kjötið frá.
Þá vakúm-pökkum við
allt kjöt svo allt sé gegn-
sætt og viðskiptavinurinn
sjái hvað hann er að kaupa.
Ekkert af þessu var tekið til
greina af Verðlagsstofn-
un“, sagði Þorlákur. - epj.
LÍKAMSÞJÁLFUN - LEIKFIMI
NJARÐVÍK:
Nýtt leikfiminámskeið hefst 22. okt. í fþróttahúsi Njarðvikur.
Dagtímar - Kvöldtímar - Tvisvar í viku.
Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir dömur á öllum aldri. - Byrjendur
og framhaldsflokkar. - Topp aðstaða. - Topp kennsla.
,,Lausir“ tímar fyrir vaktavinnufólk.
KEFLAVÍK.
Nýtt leikfiminámskeið hefst 21. okt. f Myllubakkaskóla.
Kvöldtímar tvisvar í viku. - Leikfimi fyrir dömur á öllum aldri.
Byrjendaflokkar. - Rólegar æfingar við allra hæfi.
Framhaldsflokkar. Strangir tímar.
Drífðu þig í fjörið, þú finnur flokk við þitt hæfi.
Upplýsingar og innritun f sfma 6062.
6 VIKNA VETRARNÁMSKEIÐ
JASSBALLET: Vegna mikillareftirspurnarverður6vikna
jassnámskeið fyrir 6-8 ára.
Birna Magnúsdóttir