Morgunblaðið - 06.10.2015, Síða 2

Morgunblaðið - 06.10.2015, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2015 2 BÍLAR U ndanfarnar vikur hefur Bílablað Morgunblaðs- ins sagt frá lúxusbílum stórstjarnanna í banda- ríska rappheiminum. Fyrstur kom Kanye West sem á fjölbreyttan flota af drossíum og svo Akon sem vill bara hafa bílana hvíta, hvort sem þeir eru Lamborghini eða Ferrari. En í samanburði við rapparann og tónlistarútgáfumógúlinn Bird- man, Bryan Williams, eru bílasöfn þeirra Kanye og Akon tiltölulega hófstillt. Nokkrir tugir fokdýrra bíla Birdman gerir fátt annað en að yrkja um peninga, með lögum eins og „Money to Blow“, „Born Stunna“ og „100 Million“. Ekki er skrítið að peningar skuli vera tón- listarmanninm svona hugleiknir, enda virðist hann eiga af þeim heilan helling og eyðir kauði drjúgum skerfi af tekjunum í rán- dýra og mjög fágæta sportbíla. Samkvæmt vefsíðum sem fjalla um ríka og fræga fólkið á Bird- man ekki færri en 32 bíla, og langsamlega dýrasta bílasafnið af öllum rapphetjunum. Óljóst eignarhald Dýrasti bíllinn í safninu er May- bach Exelero sem Birdman ku hafa keypt árið 2011 fyrir 8 millj- ónir bandaríkjadala, jafnvirði u.þ.b. eins milljarðs króna á nú- verandi gengi. Það kann að skýra verðmiðann að Exelero var bara smíðaður í einu eintaki, árið 2004. Maybach hannaði og smíð- aði bílinn að beiðni Fulda Tires, sem er undirdeild hjá Goodyear, til að prófa nýja kynslóð af dekkj- um. Undir húddinu er V12-vél sem framleiðir 700 hestöfl, en út- lit bílsins er innblásið af bílunum sem Maybach framleiddi á 4. ára- tugnum. Eitthvað virðist þó vera óljóst með eignarhaldið, því árið 2011 sagði þýska bílaritið Motorvision frá því að bíllinn hefði alls ekki verið seldur til Birdman heldur væri í eigu þýska fyrirtækisins Mechathronic. Bieber má fá Búgattíinn lánaðan Ef Exeleróinn er ekki í bíl- skúrnum þarf Birdman ekki að barma sér mikið, því hann getur þá alltaf spanað af stað á rösk- lega tveggja milljóna dala fag- urrauðum Bugatti Veyron- sportbíl. Veyron er hraðskreiðasti fjöldaframleiddi bíll heims og ætti að fara létt með að ná rúmlega 400 km/klst. hámarkshraða. Rat- aði bíllinn í fréttirnar á síðasta ári þegar Íslandsvinurinn Justin Bie- ber sást spanandi um Miami á ökutækinu. Á Birdman að hafa leyft Bieber litla að hafa frjáls af- not af bílnum hvenær sem hann er í bænum. Ekki gengur alltaf að vera á lág- reistum sportbílum og við sum tilefni þurfa tónlistarmógúlar að leggja meiri áherslu á þægindin og íburðinn. Til þess hefur Bird- man Mayback 62S Landaulet. Bílar eru kallaðir landaulet þegar þeir eru með yfirbyggt rými fyrir bílstjórann en blæju yfir farþega- rýminu. Þetta er límósína fyrir þá sem vilja bæði ferðast um í al- gjörum lúxus og tryggja að allir nærstaddir sjái til þeirra svolgra kampavínið og gúffa í sig kavíar- inn. Einnig eru í bílasafninu Lam- borghini Aventador og Bentley Mulsanne Coupe, en eftir upp- talninguna hér að framan er varla annað hægt en að telja upp þessa rándýru lúxusbíla í framhjáhlaupi. Fékk ekki Veneno Miðað við það hvað karlinn er ríkur, og hvað hann hefur greini- lega mikla ástríðu fyrir bílum, er varla hægt að reikna með öðru en að það hafi verið sár vonbrigði ár- ið 2013 þegar Birdman auðnaðist ekki að kaupa Lamborghini Ve- neno-sportbíl, sem ítalski bíla- framleiðandinn smíðaði í aðeins fimm eintökum. Bara þrír bílar voru boðnir til sölu og á Birdman að hafa borgað milljón dala inn á þennan 4,6 milljóna dala bíl til að tryggja sér eintak. Veneno var framleiddur í tilefni af 50 ára afmæli Lamborghini, og sló met sem dýrasti fjölda- framleiddi bíll sögunnar, fram- úrstefnulega hannaður að utan og með um 740 hestafla vél milli afturdekkjanna. Voru það tveir bandarískir frumkvöðlar og einn kaupandi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem fengu bíl- ana þrjá. Svona er nú lífið stund- um ósanngjarnt. ai@mbl.is Ökuþórinn Birdman Lætur alla hina rapparana líta út eins og smágutta Í myndböndum sínum gætir Birdman þess að hafa sportbíla og önnur stöðutákn áberandi í hverjum ramma. Skjáskot úr laginu Born Stunna. Ljósmynd / Wikipedia - Axion23 (CC) Birdman er svo almennilegur að lána Justin Bieber bílinn þegar ungstirnið á erindi til Miami.Ljósmynd / Wikipedia - Geneva Motor Show (CC) Ljósmynd / Wikipedia - Simon Davison (CC) Maybach Exelero var aðeins smíðaður í einu eintaki. Hér sést þessi fagri bíll til sýnis á bílasýningunni Councours d’Elegance. Maybach 62 Landaulet er lúxusbifreið fyrir þá sem vilja sýna sig og sjá aðra. Þrátt fyrir að eiga sand af seðl- um tókst Birdman ekki að tryggja sér einn af þremur Lam- borghini Veneno-sportbílum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.