Morgunblaðið - 06.10.2015, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2015
2 BÍLAR
U
ndanfarnar vikur hefur
Bílablað Morgunblaðs-
ins sagt frá lúxusbílum
stórstjarnanna í banda-
ríska rappheiminum. Fyrstur kom
Kanye West sem á fjölbreyttan
flota af drossíum og svo Akon
sem vill bara hafa bílana hvíta,
hvort sem þeir eru Lamborghini
eða Ferrari.
En í samanburði við rapparann
og tónlistarútgáfumógúlinn Bird-
man, Bryan Williams, eru bílasöfn
þeirra Kanye og Akon tiltölulega
hófstillt.
Nokkrir tugir fokdýrra bíla
Birdman gerir fátt annað en að
yrkja um peninga, með lögum
eins og „Money to Blow“, „Born
Stunna“ og „100 Million“. Ekki er
skrítið að peningar skuli vera tón-
listarmanninm svona hugleiknir,
enda virðist hann eiga af þeim
heilan helling og eyðir kauði
drjúgum skerfi af tekjunum í rán-
dýra og mjög fágæta sportbíla.
Samkvæmt vefsíðum sem fjalla
um ríka og fræga fólkið á Bird-
man ekki færri en 32 bíla, og
langsamlega dýrasta bílasafnið af
öllum rapphetjunum.
Óljóst eignarhald
Dýrasti bíllinn í safninu er May-
bach Exelero sem Birdman ku
hafa keypt árið 2011 fyrir 8 millj-
ónir bandaríkjadala, jafnvirði
u.þ.b. eins milljarðs króna á nú-
verandi gengi. Það kann að skýra
verðmiðann að Exelero var bara
smíðaður í einu eintaki, árið
2004. Maybach hannaði og smíð-
aði bílinn að beiðni Fulda Tires,
sem er undirdeild hjá Goodyear,
til að prófa nýja kynslóð af dekkj-
um. Undir húddinu er V12-vél
sem framleiðir 700 hestöfl, en út-
lit bílsins er innblásið af bílunum
sem Maybach framleiddi á 4. ára-
tugnum.
Eitthvað virðist þó vera óljóst
með eignarhaldið, því árið 2011
sagði þýska bílaritið Motorvision
frá því að bíllinn hefði alls ekki
verið seldur til Birdman heldur
væri í eigu þýska fyrirtækisins
Mechathronic.
Bieber má fá
Búgattíinn lánaðan
Ef Exeleróinn er ekki í bíl-
skúrnum þarf Birdman ekki að
barma sér mikið, því hann getur
þá alltaf spanað af stað á rösk-
lega tveggja milljóna dala fag-
urrauðum Bugatti Veyron-
sportbíl. Veyron er hraðskreiðasti
fjöldaframleiddi bíll heims og ætti
að fara létt með að ná rúmlega
400 km/klst. hámarkshraða. Rat-
aði bíllinn í fréttirnar á síðasta ári
þegar Íslandsvinurinn Justin Bie-
ber sást spanandi um Miami á
ökutækinu. Á Birdman að hafa
leyft Bieber litla að hafa frjáls af-
not af bílnum hvenær sem hann
er í bænum.
Ekki gengur alltaf að vera á lág-
reistum sportbílum og við sum
tilefni þurfa tónlistarmógúlar að
leggja meiri áherslu á þægindin
og íburðinn. Til þess hefur Bird-
man Mayback 62S Landaulet.
Bílar eru kallaðir landaulet þegar
þeir eru með yfirbyggt rými fyrir
bílstjórann en blæju yfir farþega-
rýminu. Þetta er límósína fyrir þá
sem vilja bæði ferðast um í al-
gjörum lúxus og tryggja að allir
nærstaddir sjái til þeirra svolgra
kampavínið og gúffa í sig kavíar-
inn.
Einnig eru í bílasafninu Lam-
borghini Aventador og Bentley
Mulsanne Coupe, en eftir upp-
talninguna hér að framan er varla
annað hægt en að telja upp þessa
rándýru lúxusbíla í framhjáhlaupi.
Fékk ekki Veneno
Miðað við það hvað karlinn er
ríkur, og hvað hann hefur greini-
lega mikla ástríðu fyrir bílum, er
varla hægt að reikna með öðru en
að það hafi verið sár vonbrigði ár-
ið 2013 þegar Birdman auðnaðist
ekki að kaupa Lamborghini Ve-
neno-sportbíl, sem ítalski bíla-
framleiðandinn smíðaði í aðeins
fimm eintökum. Bara þrír bílar
voru boðnir til sölu og á Birdman
að hafa borgað milljón dala inn á
þennan 4,6 milljóna dala bíl til að
tryggja sér eintak.
Veneno var framleiddur í tilefni
af 50 ára afmæli Lamborghini, og
sló met sem dýrasti fjölda-
framleiddi bíll sögunnar, fram-
úrstefnulega hannaður að utan
og með um 740 hestafla vél milli
afturdekkjanna. Voru það tveir
bandarískir frumkvöðlar og einn
kaupandi í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum sem fengu bíl-
ana þrjá. Svona er nú lífið stund-
um ósanngjarnt.
ai@mbl.is
Ökuþórinn Birdman
Lætur alla hina
rapparana líta út
eins og smágutta
Í myndböndum sínum gætir Birdman þess að hafa sportbíla og önnur
stöðutákn áberandi í hverjum ramma. Skjáskot úr laginu Born Stunna.
Ljósmynd / Wikipedia - Axion23 (CC)
Birdman er svo almennilegur að lána Justin Bieber bílinn þegar ungstirnið á erindi til Miami.Ljósmynd / Wikipedia - Geneva Motor Show (CC)
Ljósmynd / Wikipedia - Simon Davison (CC)
Maybach Exelero var aðeins smíðaður í einu eintaki. Hér sést þessi fagri
bíll til sýnis á bílasýningunni Councours d’Elegance.
Maybach 62 Landaulet er lúxusbifreið fyrir þá sem vilja sýna sig og sjá aðra.
Þrátt fyrir að eiga sand af seðl-
um tókst Birdman ekki að
tryggja sér einn af þremur Lam-
borghini Veneno-sportbílum.