Víkurfréttir - 17.03.1987, Page 1
Góð
meðferð
á fiski
Allur afli sem togarar
Hraðfrystihúss Keflavíkur
hafa landað að undanförnu
hefur næstum allur farið í 1.
flokk. I síðustu viku landaði
Aðalvíkin um 100 tonnum og
fór 95% af aflanum í 1.
flokk.
Að sögn Gunnars Gunn-
arssonar fiskimatsmanns
hafa skipverjar á Aðalvík
og Bergvík náð mjög góð-
um árangri í meðferð á
þeim fiski sem togararnir
hafa landað að undan-
förnu. Væru dæmi um að
allur aflinn úr veiðiferð
hefði farið í 1. flokk.
,,Vinnubrögð þessara
manna eru til fyrirmyndar“
sagði Gunnar Gunnarsson.
Féll niður á
vinnustað
Um klukkan 22.30 á
laugardag var óskað eftir
sjúkrabíl, lækni og lögreglu
að fískverkunarhúsi við Bás-
veg í Keflavík. Þar hafði
maður fengið krampakast og
fallið niður. Við nánari at-
hugun kom í ljós að viðkom-
andi hafði reynt of mikið á
sig og fengið of mikið súr-
efni. Var hann fluttur á
Sjúkrahús Keflavíkurlæknis-
héraðs.
Jöfur KE
með rækju
Jöfur KE landaði 53 tonn-
um af rækju i síðustu viku og
tveir bátar lönduðu loðnu í
Njarðvík. Harpa RE landaði
300 tonnum og síðan land-
aði Keflvíkingur 330 tonn-
um á föstudaginn.
Grindavíkur-
bátar
í Njarðvík
Grindavíkurbátar hafa að
undanförnu landað afla sín-
um í Njarðvík og er honum
síðan ekið til Grindavíkur til
vinnslu. Stafar þetta af því að
bátarnir hafa verið að fiska
sæmilega í netin vestur af
Jökli og hafa Grindvíkingar
fært sín net fyrir Skaga.
„Ungfrú Suðurnes 1987“
\
KRISTIN J0NA KJ0RIN
Kristín Jóna Hilmars-
dóttir var kjörin „Ungfrú
Suðurnes 1987“ í Stapa
sl. laugardagskvöld að við-
stöddum um 500 manns.
Berta Gerður Guðmunds-
dóttir úr Njarðvík var
kosin „Ljósmyndafyrir-
sæta Suðurnesja" og Krist-
ín Gerður Skjaldardóttir
úr Vogum var kosin „Vin-
sælasta stúlkan úr hópi
þátttakenda.
Níu stúlkur tóku þátt í
keppninni sem þótti takast
frábærlega vel, og er langt
stðan að önnur cins stemn-
ing hefur verið í Stapan-
um, sem var svo sannar-
lega í sparifötunum þetta
kvöld, glæsilega skreyttur.
I
Kristín Jóna Hilmarsdóttir, 23 ára Keflavíkurmær, var á laugardagskvöldið kjörin
„Ungfrú Suðurnes 1987“ úr hópi 9 stúlkna í Stapanum. Ljósm.: pket.
Fleiri myndir frá keppninni eru í miðopnu.
Stolið frá
lögregl-
unni
Síðasta laugardagsmorg-
un uppgötvuðu lögreglu-
menn að brotist hafði verið
inn í félagsheimili Lögreglu-
félags Gullbringusýslu sem
staðsett er við lögreglustöð-
ina í Keflavík, nóttina áður.
Hafði verið farið inn um
glugga á norðurhlið hússins.
Er gluggi þessi á geymslu,
þar sem geymdir eru ýmsir
munir í vörslu lögreglunnar.
Var stolið þaðan léttu bif-
hjóli og útvarpstæki. Síðan
var farið inn í skála lögreglu-
manna og þaðan var stolið
útvarpstæki í eigu lögreglu-
félagsins.
Er málið upplýst, en hér
voru unglingar að verki.
Peningar
hurfu úr
íbúð
Á miðvikudag í síðustu
viku var lögreglunni tilkynnt
um peningahvarf í íbúðar-
húsi einu. Um er að ræða 38
þúsund krónur og 15 þúsund
danskar krónur. Ekki erljóst
með hvaða hætti peningarnir
hurfu.
Veski
stolið
I síðustu viku var stolið
veski í íþróttahúsi Keflavík-
ur. Af þessu tilefni hefurlög-
reglan óskað eftir að þeirri
ábendingu yrði komið á
framfæri að fólk geymdi ekki
íjármuni í fötum sínum, léti
frekar geyma þá hjá starfs-
fólki húsanna.