Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 17.03.1987, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 17.03.1987, Blaðsíða 9
\iiKun jtUUi Þriðjudagur 17. mars 1987 9 REYKJANESBRAUTIN Fyrir um þaö bil tveimur ára- tugum var ráöist í það nauö- synjaverkefni að leggja varan- lega akbraut frá höfuðborgar- svæðinu til Suðurnesja. Á þeim tíma var um stórverk- efni að ræða sem kostaði mikla umræðu og umfjöllun áður en til skarar var látið skríða. M.a. voru átök um hvernig fjármagna skyldi þessa mannvirkjagerð og ákafar deilur risu um það mál- efni, sem stóðu lengi eftir að vegurinn var lagður. Niðurstað- an varð sú, að settur var vegar- tollur á öll ökutæki sem um veg- inn fóru ákveðið árabil. - Þessari framkvæmd fjármögnunar fylgdi varöskýli á hinni nýju Reykjanes- braut, þar sem vegartollur var innheimtur af umráðamönnum ökutækja, nótt sem nýtan dag. í dag stöndum við frámmi fyrir því að vera mesta bílaþjóð ver- aldar miðað við íbúafjölda, komnir fram fyrir Bandaríkja- menn, ef rétt er með tölurfarið. - Það hefur mikið vatn runnið til sjávar siðan Reykjanesbrautin var lögð, forsendur brautarinnar gagnvart umferðaröryggi hafa breyst, enda slysatíðni á henni með því hæsta sem þekkist hér á landi. Ákveðnir kaflar brautarinnar hafa reynst vegfarendum mjög hættulegir og er þá Kúagerði oft nefnt. Sem von er ræðiralmenn- ingur mikið um ástæður umferð- arslysanna og er þá ýmislegt til- greint, en færra hef ég heyrt frá ábyrgum aðilum, svo sém frá Vegagerð ríkisins eða þing- mönnum kjördæmisins. Krafa almennings í dag er ein- faldlega sú, að vegfarendur njóti eins fullkomins öryggis í umferð Gylfi Guðjónsson og kostur er á. Ákveðna tíma sól- arhringsins er gífurleg umferö um brautina og ýmsarveðurfars- legar aöstæður gera hana stór- hættulega.. Ég hefi ekið þessa braut við ýmsar aðstæður og hef- ur mér brugðið illa við hve oft ég fæ þá tilfinningu að ég sé í veru- legri hættu staddur á ferð minni. Hættan á Reykjanesbrautinni er ekki eingöngu veðurfarinu að kenna. Megin hættan liggur i því, að brautin ber ekki þá umferð sem um hana fer. - Rúmlega tveggja áratugagömul áætlun og framkvæmd á samgöngumálum milli Suðurnesja og höfuðborg- arsvæðisins er úr leik. Tollurinn sem greiddur hefur verið undan- farin ár og framvegis án aðgerða er ekki í formi peninga við varð- skýli. Tollurinn er greiddur með blóði vegfarenda. Aukinn ferðamannafjöldi frá útlöndum til Islands og spár þar að lútandi krafðist m.a. nýrrar flughafnar á Keflavíkurflugvelli. Fjöldi landsmanna ekur um Reykjanesbraut einmitt vegna staðsetningar hins alþjóðlega flugvallar ofan við Keflavík. Þetta mál snertir ekki aðeins Suður- nesjabúa, sem verða að þola sívaxandi umferðarþunga um sína samgönguæö til höfuðborg- arinnar, heldur alla þjóðina. Lausn þessa máls felst ekki ein- göngu í nauðsynlegum umbót- um svo sem betri vegmerkingum eða frágangi vegkanta, heldur nýjum vegi sem lagður yrði við hlið hins gamla. Yrðu þá tværak- reinar með einstefnu til Suður- nesja og aðrar tvær með ein- stefnu til höfuðborgarsvæðisins Ekki mæli ég meöþeirriaðferðtil fjármögnunar þessu mannvirki að setja uþþ varðskýli sem stöðvar alla vegfarendur til inn- heimtu á skatti, heldur að lækka kostnað við heilbrigðisþjónustu slasaðra á þessari braut um kom- andi ár og gefa ungum sem öldnum Suðurnesjabúum svo og öðrum vegfarendum betra tæki- færi til að ganga sinn æfiveg til enda. Að endingu óska ég eftir því að Suðurnesjamenn og aðrir Reyk- nesingar veiti Framsóknarflokkn- um það brautargengi í komandi kosningum að framfylgja megi þessu málefni beturengerthefur verið á síðasta kjörtímabili. Mosfellssveit í mars 1987. Gylfi Guðjónsson Höfundur skipar 6. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi Sjávarborgin og Goðinn við bryggju í Njarðvík. Ljósm.: epj. ÚTSALA Rýmum fyrir nýjum vörum 30% afsláttur af öllu. FÖNDURSTOFAN Hafnargötu 68a - Keflavík - Sími 2738 ATVINNA Óskum að ráða bílstjóra með meirapróf. Einnig vantar okkur fólk í fiskaðgerð. Upplýsingar gefnar í síma 7395. ICE-SCOTT, Garði AÐALFUNDUR Styrktarfélags Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs verður haldinn fimmtudaginn 26. mars kl. 20.30 að Vík, Hafnargötu 80. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjómin Iðnaðarhúsnæði - Geymsluhúsnæði í Grindavík DREGINN AD NORDAN Um miðnætti aðfaranótt laugardagsins kom björgun- arskipið Goðinn með rækju- veiðiskipið Sjávarborg GK 60 frá Sandgerði í drætti til Njarðvíkur. Skip þetta hefur verið á rækjuveiðum fyrir norðurlandi undanfarna mánuði og var einmitt statt út af Eyjafirði er skyndileg bilun varð í skrúfu skipsins. Tók togarinn Arinbjörn bátinn í tog að Horni, en þangað kom Goðinn og dró skipið til Njarðvíkur, þar sem það var tekið upp í slipp á laugardag. En áður land- aði það um 50 tonnum af rækju í Njarðvík. til sölu. Mikið endurnýjað, 130 ferm. timburhús, góð raflögn og hitalögn. Laust nú þegar. Leiga kemur til greina. Upplýsingar hjá Fasteignaþjón- ustu Suðurnesja, sími 3722. FRÁ BÆJARSJÓÐI KEFLAVÍKUR Minnum á greiðslu útsvara og aðstöðu- gjalda. BÆJARBÚAR! STÖNDUM í SKILUM - og forðumst óþarfa kostnað. >v ii — ATH: Breyttan opnunartíma. ^ Bæjarskrifstofurnar eru opnar p| frákl. 9-16 I alla virka daga. 1 Eftir sem áður er K opið í hádeginu.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.