Víkurfréttir - 17.03.1987, Síða 8
\fiKur<
8 Þriðjudagur 17. mars 1987
TILKYNNING
til viðskiptamanna
Hitaveitu Suðurnesja
LOKANIRs
Varist lokanir og
greiðið orkureikningana
á réttum tíma.
ATH: Lokunargjald er
kr. 1.000. -
LÁTTU ORKUREIKNINGINN
HAFA FORGANG.
Innheimtustjóri =
Njarðvíkurbær
Fasteigna-
gjöld
Þriðji gjalddagi fasteignagjalda
1987 var 15. mars sl.
ATH: - Dráttarvextir reiknast
mánuði frá gjalddaga og eru nú
2.25% fyrir hvern byrjaðan
mánuð.
Greiðum útsenda gíróseðla
fyrir eindaga og forðumst
þannig óþarfa kostnað.
Bæjarsjóður - Innheimta
juUit
Eggert Guðmundsson og Jón Sigurðsson i hinum nýju húsakynnum Vikurhugbúnaðar við Hafnargötu 16
i Keflavík. Ljósm.: bb.
VÍKURHUGBÚNADUR SF.
á Hafnargötuna
flytur
VÍKURHUGBÚNAÐUR
SF. hefur nú flutt starfsemi
sína frá Vatnsnesvegi 14 að
Hafnargötu 16. Fyrirtækið
hefur sérhæft sig í þróun á
bókhaldskerfum og hefur hug-
búnaður frá fyrirtækinu verið
viðurkenndur fyrir gæði og er
nú notaður hjá fjölmörgum
aðilum. Víkurhugbúnaður sf.
hóf starfsemi sína fyrir tveim
árum og voru stofnendur
tveir, Eggert Guðmundsson
og Jón Sigurðsson og hafa
þeir hannað allan hugbúnað
sem fyrirtækið hefur á boð-
stólum.
Eggert Guðmundsson
sagði í samtali við Víkurfrétt-
ir að þeir félagar hefðu enga
háskólagráðu í tölvufræðum
en væru báðir með tölvu-
dellu. Hugbúnaður frá þeim
væri nú notaður í mörgum
fyrirtækjum og notaði
Tölvufræðslan sf. Ráð-hug-
búnað frá þeim til kennslu í
tölvu og bókhaldsnámskeið-
um.
Hugbúnaður frá Víkur-
hugbúnaði sf. er miðaður við
IBK PC eða sambærilegar
tölvur og eru nú um 60 fyrir-
tæki sem nota Ráð-hugbún-
að. Eggert sagði að kostnað-
ur í dag við að tölvuvæða
meðalstór fyrirtæki væri um
120 þúsund krónur með öll-
um Súnaði.
Opið bréf til hrepps-
nefndar Gerðahrepps
Viröulega hreppsnefnd.
Nú eru liönir tæpir þrir mán-
uðir síðan að Kvenfélagið Gefn
seldi Gerðahreppi leikskólann
Gefnarborg. Flestir áttu von á að
hreppurinn ræki leikskólann á-
fram á svipuðum nótum og gert
er í nágrannasveitarfélögunum.
Þið ákváöuð hins vegar að bjóða
reksturinn út til einkaaðila.
Tvær konur sýndu áhuga á því
aö taka við rekstrinum, hvorugar
meö fósturmenntun. í lögum um
byggingu og rekstur dagvistar-
heimila fyrir börn nr. 112/1976
stendur í 16. gr., að forstöðu-
maður dagvistarheimilis og
starfslið er annast fósturstörf,
skuli hafa hlotið fósturmenntun,
svo og þeir sem annast umsjón
með dagvistarheimilum ávegum
rekstraraðila. Starfsmaður
menntamálaráðuneytisins hef-
ur tjáð mér að undanþága frá
þessari grein fái einkaaðilarekki.
Starfsmönnum leikskólans var
sagt upp störfum frá og með 1.
apríl næstkomandi. Frá þeim
tíma að þið auglýstuð eftir rekstr-
araðilum fyrir leikskólann hafa
starfsmenn hans verið í óvissu
um stöðu sína.
Það var ekki fyrr en á hrepps-
nefndarfundi 11. mars sl. að þið
samþykktuð að ræða við starfs-
menn leikskólans og biðja þá að
gegna störfum áfram næstu tvo
mánuði. Þann tíma ætlið þið að
nota til þess að ræða við þær
konur sem sýndu útboðinu
áhuga. Á þessum sama fundi
höfnuðuð þið tillögu þess efnis
að halda kynningar-og umræðu-
fund með foreldrum um málefni
leikskólans. Ég veit að foreldrar
eru ekki ánægðir meö þá niður-
stöðu.
Ég leyfi mér hér á eftir að
spyrja ykkur nokkurra spurn-
inga:
1. Hver er ástæðan fyrir því að
þið ákváðuð að bjóða rekstur
leikskólans út til einkaaðila?
2. Ef ástæðan er hagkvæmari
rekstur, hvar teljið þið þá
möguleika á sparnaði?
3. Hvað ætlið þið að gera ef til-
raunir til þess að fá hæfan
einkaaðila takast ekki?
4. Hver yrði samningstími, ef
samningar tækjust milli
hreppsins og einkaaðila?
5. Teljið þið að rekstur einka-
aöila skapi meira rektstrar-
öryggi heldur en ef hreppur-
inn sæi um hann?
6. Hvað ætlið þið að gera til
þess að fá menntaðan starfs-
kraft til leikskólans?
7. Hvert teljið þið að sé hlutverk
leikskóla í nútíma þjóðfélagi?
Vonandi er ykkur Ijóst að mál
sem þetta þarfnast meiri
umræðu og undirbúnings en þið
hafið í upphafi gert ráö fyrir.
Ég vona að þegar þið takið
lokaákvörðun í þessu máli hafið
þið það efst í huga að í leikskóla
eru börn, og þegar börn eru ann-
ars vegar þarf að vanda sig sér-
staklega.
Með von um skjót og góð svör.
Oddný G. Haraðrdóttir,
kennari, Björk, Garði
Róstusamt
á götum
Talsvert róstursamt varað
sögn lögreglunnar á götum
Keflavíkur síðasta föstudag.
Þó var ekki um mjög mikla
ölvun að ræða, en þeir sem
voru ölvaðir voru þeim mun
verri viðureignar. Var ástand
þetta við skemmtistaðina, á
götunum og í heimahúsum
og voru fangageymslur lög-
reglunnar fullar af þessum
sökum þá um nóttina.
Um helgina þurfti lögregl-
an að hafa afskipti af báðum
verbúðunum sem enn eru við
lýði í Njarðvík og Sandgerði
þ.e. hjá Brynjólfi h.f. Innri-
Njarðvík og Nirði h.f. Sand-
gerði. Þurfti lögreglan m.a.
að korna á friði á báðum
stöðum.
A laugardagskvöldið hafði
lögreglan mjögmikiðaðgera
vegna afskipta af ölvuðu
fólki, en þó gistu fáir fanga-
geymslurnar þá nótt.