Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 30.04.1987, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 30.04.1987, Qupperneq 1
0 HUNDRUÐ MILLJÖNA KRÖNA SAMDRÁTTUR „Þróun sjávarútvegs og áhrif kvótakerfið á at- vinnulíf í Keflavík“ er nafn á skýrslu sem Hilm- ar Viktorsson hjá Ráð- garði hefur gert fyrir Keflavíkurbæ. Koma þar fram ýmsar fullyrðingar er staðfesta að kvótakerf- ið hefur rýrt hlut Kefla- vikur í heildaraflanum. Þá hefur fyrirkomulag ýmissa veiða einnig kom- ið harðar niður á Keflvík- ingum og byggðarlögum á Suðumesjum en þekkist í öðrum sjávarútvegs- plássum á landinu. Fram kemur að sam- dráttur í veiðum og vinnslu í Keflavík nemur hundruðum milljóna króna. Ef allur kvóti báta frá Keflavík væri unninn í Keflavík að viðbættum þeim kvóta skipa, sem seld hafa verið frá Kefla- vík, væri framleiðsluverð- mætið a.m.k. 800 milljón- ir. Er samdrátturinn í Keflavík álíka og ef út- gerð legðist niður á ísa- firði fyrir utan rækju- vinnslu. Kemur einnig fram að ekkert annað byggðarlag hafi orðið fyrir eins mikl- um búsifjum og Keflavík, nema þá Garðurinn. Nánar verður greint frá innihaldi skýrslunnar síð- ar. Arney aflahæst w i Sandgerði Arney var aflahæsti neta- báturinn í Sandgerði í síð- ustu viku, með 27,3 tonn í tveimur sjóferðum. Stirðar gæftir voru hjá bátunum í vikunni og nær stöðug ótíð. Sæborg kom næst með 22,2 tonn, Sandgerðingur^ var með 16,5 tonn, ÞorkellÁrna- son 16,3 tonn, Mummi 14,5 tonn og Þorkell Helgi var með 12,4 tonn. Sandkoli og ufsi uppistaðan Boði, sem stundar drag- nótaveiðar, landaði 40,9 tonnum í Sandgerði í síðustu viku. Aflinn fékkst í 3 sjó- ferðum. Uppistaða aflans var sandkoli og ufsi. Þá var Bliki með 19,2 tonn og Reykja- borg var með 5,3 tonn. Steinbítur utan kvóta Sóley KE, sem er 11 tonna bátur og er á steinbítsveið- um, fékk 11 tonn í síðustu viku í fjórum sjóferðum og verður að telja það býsna gott. Verðið á steinbítnum er frekar lágt, en á móti kemur að hann er utan kvóta og því sjá þeir á Sóleyju sér hag í því að stunda þessar veiðar. VÍKUti Trúnaðarskýrsla Keflavíkurbæjar birt í miðopnu blaðsins í dag birtum við margum- rædda endurskoðenda- skýrslu sem Hagskil h.f. gerði fyrir bæjarstjóm Keflavíkur á sínum tima. Er skýrslan birt að ósk Guðfinns Sigurvinssonar forseta bæjarstjórnar Keflavíkur. Bæjarráð Keflavíkur aflétti trúnaði vegna skýrslunnar á þriðjudag um leið og hún var kynnt og afhent stjórn Starfs- mannafélags Keflavíkur- bæjar. Eru Víkurfréttir því fyrst íjölmiðla til að birta hana orðrétta í þeirri mynd sem Hagskil skilaði henni til bæjar- ráðs. Afli Kefla- víkur- báta fremur rýr Afli Keflavíkurbáta var fremur rýr í síðustu viku, enda slæmt sjóveður og fáir bátar á sjó. Búrfell KE fór í 3 sjóferðir og Iandaði 35,6 tonnum og var aflahæstur. Vonin KEvarmeð31,2tonn, Skagaröst KE 24,3 tonn, Stafnes KE 17,3 tonn, Happasæll KE 12,3 tonn og Harpa RE var einnig með 12,3 tonn. Tveir línubátar lönduðu í Keflavík, Freyja GK var með 20,7 tonn og Sigurður Bjarnason GK landaði 12,3 tonnum. /■ Oskum launþegum tíl hamingju með 1. maí! NÆSTA BLAÐ KEMUR ÚT þriðjudaginn 5. maí. J11M&

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.