Víkurfréttir - 30.04.1987, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 30. apríl 1987
yfiKun
jUOU
iá
ú
Ú
ú
ú
Ú
Ú
Ú
Ú
ú
Ú
Ú
Ú
Ú
Ú
Ú
ú
Ú
u
Ú
Ú
FRÁ FÖNDURSTOFUNNI
s Ý N 1 N G
Suðurnesjamenn!
Komið á sýninguna okkar á Hallveigar-
stöðum, Túngötu 14, Reykjavík, laugar-
dag og sunnudag.
Úrval af munum unnum með
TRI-CHEN litum.
Sýningin verður opin báða dagana frá
kl. 14-19.
*
n
n
n
f*
n
n
n
n
n
n
n
n
n
Tilboð - Útboð
Málun - Málun
Óskað er eftir tilboðum í utanhússmáln-
ingu ásambýlishúsinu Birkiteig 4-6, Kefla-
vík. Útboðsgagna og verklýsingu skal
vitja um að Birkiteig 4.
Upplýsingar í síma 1848. Tilboðin opnuð
11. maí n.k.
Tónlistarskólinn
í Keflavík
Innritun
fyrirnæsta veturerhafin. Til 8. maíertekið
við umsóknum frá nemendum sem eru í
skólanum í vetur. 11. maí verður tekið við
umsóknum frá nemendum úr forskóla 3.
Nýir nemendur verða innritaðir í haust.
Skólastjóri
Ú
NJARÐVÍK
Lögtök
ATH: Lögtök eru hafin á vangreidd-
um gjöldum frá fyrra ári.
Þeir sem skulda enn þessi gjöld og
vilja losna við þann mikla kostnað
sem fylgir þessari innheimtuaðgerð,
er bent á að hafa samband við bæj-
arskrifstofurnar fyrir 10. maí n.k.
Bæjarsjóður - Innheimta
Frá áhugafélaginu
um brjóstagjöf
Áhugafélag um brjóstagjöf á
Suðurnesjum er lítið, skemmti-
legt félag, sem heldur nú aðal-
fund sinn í þriðja skipti. Á þess-
um þremur árum hefur félagið
vaxið og dafnað, eins og brjóst-
mylkingarnir, sem það ber svo
mjög fyrir brjósti. Starf félags-
ins er orðið fjölþætt og sífellt
koma fram nýjar hugmyndir um
fleiri verksvið.
En hvers vegna er þörf fyrir
Áhugafélag um brjóstagjöf? Er
það ekki einkamál hverrar konu
hvort hún hefur barn sitt á
brjósti? Jú, það er vissulega rétt
og það er ekki markmið félags-
ins að hafa áhrif á þá ákvörðun.
En þeim sem velja að hafa barn
sitt á brjósti viljum við hjálpa ef
vandamál koma upp.
Konurnar, sem starfa innan
félagsins, hafa flestar reynslu af
þeim vandamálum sem upp
kunna að koma og vita að þau
má leysa, ef tekið er á þeim
strax. Reynsla og þekking kem-
ur þar að miklum notum.
Fræðslufundir eru því haldnir
reglulega um málefni brjósta-
gjafarinnar og ýmis skyld efni.
Fæðing barns er undursam-
legur atburður. Nýtt líf lítur
dagsins ljós. Hamingja og fögn-
uður fyllir hug móðurinnar. Líf
hennar hefur fengið nýjan til-
gang, nú þarf að koma barninu
til manns. Það er löng leið fram-
undan. Næstu 20 árin verður
hún að axla ábyrgð sem á hana
var varpað í einu vettfangi. Til-
finningar hinnar ungu móður
eru því margvíslegar. Mörgum
finnst gott að ræða hugrenning-
ar sínar í eigin hópi. Þess vegna
höfum við rabbfundi einu sinni í
mánuði, þar sem ræða má allt
það sem lýtur að fæðingu barns,
brjóstagjöf og uppeldi ung-
barna. Einnig er á dagskrá hjá
félaginu að mynda leshring um
uppeldismál á hausti komanda.
Konurnar í félaginu hafa
undanfarna vetur stundað leik-
fimi með börnum sínum. Þar
hafa allir fengið hreyfingu við
hæfi, börnin skemmt sér
konunglega í leikjum með
mæðrum sínum. Við söknum
hins vegar feðranna.
Aðstæður kvenna til brjósta-
gjafar eru ekki jafnar, margt
getur spillt fyrir, t.d. getur bú-
seta skipt máli. Ef barn fæðist
fyrir tímann og þarf að vera á
barnagjörgæslu fyrstu vikurnar,
þá er erfitt fyrir móður á Suður-
nesjum að aka til Reykjavíkur
dag hvern og gefa brjóst. Með
því að pumpa mjólkina heima
og færa síðan barninu þegar að-
stæður leyfa, verður móðurinni
unnt að gefa fyrirburanum
bijóstamjólkina. Brjóstamjólk
er öllum börnum holl, en fyrir-
burum er hún ómetanleg, því
hún hefur einmitt rétta efna-
fræðilega samsetningu fyrir þá.
Til að auðvelda konum þetta
hefur félagið ákveðið að gefa
fæðingardeild Sjúkrahúss
Keflavíkur brjóstapumpu, sem
notuð verði til útlána þegar
nauðsyn beri til. I þessum til-
gangi var efnt til fjársöfnunar
meðal nokkurra af glæsilegri
fyrirtækjum Suðurnesja, svo og
sveitarfélaganna á Suðurnesj-
um. Félagið mætti einstakri
góðvild og hlýhug hjá þessum
aðiljum og kann þeim innilegar
þakkir fyrir. Þessar jákvæðu
undirtektir styrkja okkur í þeirri
trú að við séum á réttri braut.
Eins og getið var um í upphafi
heldur Áhugafélagið aðalfund
sinn n.k. laugardag. Fundurinn
verður haldinn í Iðnsveinahús-
inu kl. 2 e.h. Auk venjulegra að-
alfundastarfa verður sýni-
kennsla í ungbarnanuddi. Það
er Guðrún Þórarinsdóttir kenn-
ari, sem ætlar að sýna okkur
hvernig hún fer höndum um
barn sitt. Konráð Lúðvíksson
kvensjúkdómalæknir mun tala
um breytingaskeiðið, segja okk-
ur frá því sem við eigum von á
þegar aldurinn færist yfir. Ýmis-
legt fleira verður sér til gamans
gert og að venju bjóðum við upp
á okkar bestu krásir.
Verið því velkomin að eyða
með okkur skemmtilegum eftir-
miðdegi.
Stjórnin
Tveir Keflvíkingar taka þátt í verki þessu. Þeir eru Gisli Gunnarsson (2. f.v.) og Marta Eiríks-
dóttir (lengst t.h.).
Hinn eini sanni Seppi
í þessari viku gefst okkur,
sem búum hér fyrir sunnan,
kostur á að sjá tvo þræl-
skemmtilega einþáttunga í
uppfærslu Litla leikklúbbs-
ins frá ísafirði. Þessir ein-
þáttungar nefnast „Hinn eini
sanni Seppi“ eftir Tom
Stoppard og „Svart og siifr-
að“ eftir Michael Frayn.
Báðir þættirnir eru vissulega
af gamansömu tagi, en veru-
leg ádeila á gagnrýnendur er
reyndar fólgin í leikriti
Stoppards. Hér er annars
ekki við hæfi að rekja efnið,
en það er sannarlega sett
fram með kostulegum hætti,
bæði fyrir og eftir hlé.
Um frumsýningu á íslandi
er að ræða en þessir einþátt-
ungar vora íslenskaðir af
Guðjóni Olafssyni, mennta-
skólakennara á Isafirði, en
hann leikstýrði þáttunum
einnig með ágætum. Vert er
að geta þcss að á meðal leik-
ara eru tveir innfæddir Kefl-
víkingar, þau Gísli B. Gunn-
arsson og Marta Eiríksdótt-
ir. Þau hafa tekið virkan þátt
i leiklistarlífmu vestur á
fjörðum í vetur.
Við Suðurnesjamenn ætt-
um nú að drífa okkur í Kópa-
vogsbíó og sjá sveitunga
okkar ásamt fleiru hressu
fólki fara á kostum í
skemmtilegum einþáttung-
um.
Sýningar verða í Kópa-
vogsbíói, Fannborg 2, föstu-
daginn 1. maí kl. 21 og laug-
ardaginn 2. maí kl. 16 og21.
Miðapantanir teknar í síma
41985 sýningardagana.