Víkurfréttir - 22.10.1987, Qupperneq 3
VlKUR
| jtitUí'
Fimmtudagur 22. október 1987
Stjórn Landeigendafélags Ytri-Njarðvíkur og Vatnsness:
TEKUR EKKI ÞATT I PROFMALI
Stjórn Landeigendafél-
ags Ytri-Njarðvíkur og
Vatnsness ætlar ekki að taka
þátt í prófmáli um réttmæti
lóðargjalda og ætlar að hefja
aðgerðir hjá þeim sem
skulda hæstu lóðarleigugjöld
með fjárnámi.
Keflavíkurbæ hefur
borist bréf frá lögmanni
Landeigendafélagsins, þar
sem ósk Keflavíkurbæjar
um að stöðva innheimtu
lóðarleigugjalda og taka
þátt í rekstri prófmáls er
hafnað.
Margir lóðarleigusamn-
ingar sem einstaklingar
hafa gert við Landeigenda-
félagið eru orðnir gamlir.
Þeir voru gerðir til langs
tíma og samkvæmt þeim
ber leigutökum ekki að
greiða margar krónur. Síð-
an hafa verið samþykkt lög
frá Alþingi varðandi þessi
mál og heimild gefin til að
hækka krónutölu gamalla
samninga. Til þessara laga
vísar Landeigendafélagið.
Vilhjálmur Ketilsson,
bæjarstjóri, sagði í samtali
við Víkur-fréttir að bærinn
gæti ekkert aðhafst fyrr en
fjárnámsgerðir hæfust hjá
fógeta og þá yrði hafið mál
til að fá réttmæti hækkunar
lóðargjaldanna, á kostnað
bæjarins.
Jón Eysteinsson, bæjar-
fógeti, sagði að erindi um
fjárnám frá lögmanni
Landeigendafélagsins hefði
ekki enn borist til embætt-
isins.
Lauf-
skálar í
Leifsstöð
Nýr veitingastaður,
Laufskálar, hefur verið
opnaður í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Ragnar Örn
Pétursson rekur staðinn,
sem er opinn fyrir al-
menning, flugfarjjega og
starfsfólk. Þess má geta
að staðurinn býður upp á
vínveitingar og því er ó-
hætt að segja að skammt
sé stórra högga á milli í
veitingarekstri hér á Suð-
urnesjum. Fjórir staðir
hér hafa nú leyfi til að
bjóða vín með mat.
SJÖ MANNS Á SJÚKRAHÚS
Alls voru sjö manns ílutt á
sjúkrahús eftir fimm umferð-
aróhöpp sem urðu í umdæmi
lögreglunnar í Keflavík,
Njarðvík og Gullbringusýslu
í síðustu viku, þ.e. frá mánu-
degi til mánudags. Alls urðu
óhöppin 14 þessa vikuna og
eignatjón mikið í mörgum
tilfellanna.
Hörðustu óhöppin voru er
árekstur varð á mánudag í
síðustu viku á gatnamótum
Skólavegar og Sólvallagötu í
Keílavík. Var einn fluttur á
sjúkrahús úr þeim árekstri
með minni háttar meiðsli. Þá
varð hörku árekstur á
Reykjanesbraut við Vogaaf-
leggjara. Ökumaður annars
bílsins var fluttur með lítil
meiðsli á sjúkrahús, en
bifreið hans er trúlega ónýt á
eftir.
Tveir voru fluttir á slysa-
deild Borgarspítalans og þar
af annar meira slasaður, eftir
bílveltu á Reykjanesbraut í
Kúagerði á laugardags-
kvöld. Tvennt var flutt á
Sjúkrahúsið í Keflavík eftir
harðan árekstur á Víkna-
vegi fyrir innan Grænás
aðfaranótt sunnudagsins.
Báðir bílarnir eru trúlega
ónýtir. Þá urðu miklar
skemmdir í hörðurn árekstri
á mánudagsmorgun á gatna-
mótum Reykjanesbrautar og
Grænásvegar í Njarðvík og
var annar ökumannanna
fluttur á sjúkraíiús með lítil
meiðsli.
Auk þess urðu tveir harðir
.árekstrar án slysa þar sem
báðir bílarnir voru óöku-
færir á eftir. Annar varð á
gatnamótum Flugvallarveg-
ar og Hringbrautar í Kefla-
vík og hinn á gatnamótum
Víknavegar og Borgarvegar í
Njarðvík.
Athygli vekur að flestir
urðu árekstrar þessirþarsent
aðstæður eru eins góðar og
best verður á kosið. Þó spil-
aði hálka inn í varðandi tvö
þessara tilfella.
Aðl'aranólt laujíardayíi varð liörku árekstur á Víknavegi innan við Grænás-
brckku. liáðir bilarnir eru trúlega ónýtir. \ arð árckstur þessi nteð þeim liætti
að bilreiö sem stóð utan vegar var skyndilega ekið inn á veginn í veg fyrir
leigubifreið og tekin svokölluð u-beygja, þ.e. snúið við á akbrautinni.
Ljósm.: epj.
Tech.nics
hljómtækjasamstæður.
Verð frá kr. 38.900
LASE R-SPILARAR
Hafnargötu 38 - Keflavík - Sinii 13883
verð frá kr. 18.900
L ASE R-PLOTUR
í miklu úrvali
Nýjustu titlamir - bæði innlend-
ir og erlendir.
Engin útborgun með
IJAPIS hf. í Keflavík: