Víkurfréttir - 22.10.1987, Blaðsíða 21
mun
Fimmtudagur 22. október 1987 21
Keflvíkingar sátu hjá í 1. umferð úrvalsdeildarinnar, en mæta Haukum í kvöld. Ljósm.: mad.
Gunnar Þorvarðarson, þjálfari ÍBK:
„Ætlum að sigra
Haukana í kvöld“
„Við stefnum að sigri gegn
Haukunum, annað kemur ekki til
greina,“ sagði Gunnar Þorvarð-
arson, þjálfari úrvalsdeildarliðs
ÍBK íkörfuknattleik, isamtali við
Víkurfréttir. Keflvíkingar mæta
Haukum í sínum fyrsta leik í
kvöld kl. 20:00 og fer hann fram í
íþróttahúsinu i Keflavík.
Gunnar sagði að liðið hefði
æft að undanförnu með því
markmiði að ná upp meiri hraða
í leik sínum. „Eg hef breytt leik-
kerfunum lítillega og er bjart-
sýnn á að liðið eigi eftir að leika
hraðan og skemmtilegan körfu-
knattleik í vetur.“
Keflvíkingar geta ekki teflt
fram sínu sterka,sta liði í kvöld.
Gylfi Þorkelssonermeidduren í
hans stað kemur Magnús Guð-
finnsson, sem verið hefur í
Bandaríkjunum í eitt ár. Magn-
ús stóð sig vel ytra, hann er vax-
andi leikmaður sem á áreiðan-
lega eftir að verða góður liðs-
maður fyrir IBK-liðið. Auk þess
er Axel Nikulásson kominn aft-
ur eftir dvöl í Bandaríkjunum og
hann er einnig góður styrkur
fyrir liðið.
Lið Keflvíkinga er að öðru
leyti skipað sömu leikmönnum
og á síðasta keppnistímabili.
Einar Bollason, fyrrum lands-
liðsþjálfari og þjálfari ÍR-inga,
telur að IBK-liðið verði sterkt í
vetur og það, ásamt íslands-
meisturum UMFN og KR.verði
þau lið sem berjist um meistara-
titilinn.
KR-ingar
sluppu með
skrekkinn
KR-ingar sluppu með skrekk-
inn þegar þeir mættu nýliðum
Grindvíkinga í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í Grindavík á
sunnudaginn. Urslit leiksins réð-
ust ekki fvrr en á síðustu mínút-
unum og þá vó leikreynsla vestur-
bæjarliðsins þungt og KR-ingar
skoruðu 7 siðustu stigin og
breyttu stöðunni úr 70:70 í 77:70
sem urðu lokatölur leiksins.
Heimamenn komu KR-ing-
um í opna skjöldu með mikilli
baráttu í upphafi leiksins og
höfðu þeir forystu nær allan
fyrri hálfleik, mest 8 stig, en KR-
ingum tókst að minnka muninn
í eitt stig fyrir hálfleik og staðan
þá var 36:35.
I síðari hálfleik misstu Grind-
víkingar flugið á köflum og KR
komst í 8 stiga forystu en undir
lok leiksins hresstust heima-
menn og náðu að jafna 70:70, en
í lokin voru KR-ingar yfirveg-
aðri og tókst að tryggja sér sigur.
Guðmundur Bragason var
bestur í liði UMFG og eins áttu
þeir Eyjólfur Guðlaugsson og
Steinþór Helgason góðan leik.
Grindvíkingar sýndu það í þess-
um leik að þeir eru aðeins sýnd
veiði en ekki gefin á sínum
heimavelli því KR-ingar eru
taldir líklegir til að blanda sér í
baráttuna um Islandsmeistara-
titilinn.
Stig UMFG: Guðmundur
Bragason 16, Eyjólfur Guð-
laugsson 12, Steinþór Helgason
12, Rúnar Arnason 10, Hjálmar
Hallgrímsson 7, Olafur Þór Jó-
hannsson 4, Sveinbjörn Sigurðs-
son 4, Guðlaugur Jónsson 3 og
Jón Páll Haraldsson 2 stig.
HEIMSFRÆGUR
PÍLUKASTARI TIL
KEFLAVÍKUR
Heimsfrægur pílukastari
mun koma til Islands í nóv-
ember-mánuði og sýna
listir sínar. Heitir kappinn
Bob Twomolov og er
bandarískur.
Bob Twomolovv, heimsfrægur
pílukastari, kemur til
Kcflavíkur 13. nóv.
Að sögn Sigurðar Eiríks-
sonar í Reiðhjólaverkstæði
M.J. í Keflavík, mun kapp-
inn koma til Keflavíkur
föstudaginn 13. nóvember
n.k. og kasta pílunum í
Golfskálanunr í Leiru, og
eru allir velkomnir.
Bob Twomolow er at-
vinnumaður í pílukasti og
mun hann verða með sýn-
ingu, jafnframt því sem
pílukastarar af Suðurnesj-
um geta spreytt sig gegn
honum. Pílukast hefur átt
vaxandi fylgi að fagna
meðal yngri sem eldri og
eru margir píluklúbbar
starfræktir hér á Suðurnesj-
um.
ÚRVALSDEILDIN I KÖRFU:
LÉTT HJÁ
NJARÐVÍK
Njarðvíkingar fóru léttilega
með nýliða IR-inga í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í íþróttahús-
inu í Njarðvík á föstudagskvöldið.
Lokatölur leiksins urðu 93:65
fvrir UMFN eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 45:27. ísak
Tómasson, sem verið hefur einn
besti maður liðsins, lék ekki með.
Isak, sem er trésmiður, meiddist i
baki fyrjr leikinn og gat ekki
keppt. „Ég vona að þetta séekk-
ert alvarlegt og ég verði tilbúinn í
slaginn fyrir næsta leik,“ sagði
Isak í samtali við Víkur-fréttir.
Fjarvera hans virtist ekki hafa
mikil áhrif á leik Islandsmeistar-
anna og er það góð vísbending um
hversu jafnt liðið er. Allir í liðinu
fengu að leika og allir skoruðu.
Jóhannes Kristbjörnsson
skoraði fyrstu stigin í leiknum
og fyrstu stigin í Islandsmótinu
og þegar í upphafi stefndi í stór-
sigur heimamanna, en IR-ingar
börðust allan leikinn þrátt fyrir
ofurefli og eiga hrós skilið. „Ég
vissi að þetta yrði erfitt og það er
gott að hafa Iokið þessunt leik,“
sagði Einar Bollason, þjálfari IR
eftir leikinn. „Við gátum ekki
fengið sterkari andstæðinga í
fyrsta leik okkar í úrvalsdeild-
inni og éger þeirrarskoðunarað
það verði ekki mörg lið sem veita
Njarðvíkingum keppni í vetur.
Liðið er ákaflega sterkt og mér
er til efs að UMFN hafi átt svona
sterkt lið,“ sagði Einarennfrem-
ur.
Helgi Rafnsson var besti
maðurinn í liði UMFN í þessum
leik, hvort heldur hann var í
vörn eða sókn. Helgi var stiga-
hæstur með 24 stig og hirti auk
þess fjöldann allan af fráköst-
um. Jóhannes Kristbjörnsson
og Hreiðar Hreiðarsson voru
líka áberandi að þessu sinni.
Valur Ingimundarson var
óvenju daufur að þessu sinni og
það tók hann 19 mínútur að
skora sín fyrstu stig.
Stig UMFN: Helgi Rafnsson
24, Jóhannes Kristbjörnsson 18,
Hreiðar Hreiðarsson 15, Arni
Lárusson, Sturla Örlygsson,
Kristinn Einarsson, Teitur Ör-
lygsson og Valur Ingimundar-
son 6 stig hver, Ellert Magnús-
son 4 og Jóhann Sigurðsson 2
stig.
Leikinn dæmdu Bergur Stein-
grimsson og Gunnar Valgeirs-
son. Gunnar dvaldi í Bandaríkj-
unum s.l. ár og dæmdi þar jafn-
framt og gætti bandarískra
áhrifa greinilega í látbragði
hans.
Helgi Rafnsson var stigahæstur Njarðvíkinga með 24 stig.
Ljósm.: mad.
Stefán leið-
beinir frjáls
íþróttafólki
»
Hinn landskunni frjáls-
íþróttamaður, Stefán
HaHgrímsson, margfald-
ur íslandsmeistari í tug-
þraut, verður frjáls-
íþróttafólki og öörum
sem áhuga hafa, til leið-
beiningar í tækjasal Perl-
unnar n.k. laugardag kl.
13-16. - Allir velkomnir.
PERLAN
Þrekmiðstöð - Sólbaðsstofa
Hafnargötu 32 - Simi 14455
OPIÐ:
mánud.-fösiud.
kl. 8-23:00
I^ug.-sunnud.
kl. 9-21:00