Víkurfréttir - 22.10.1987, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 22. október 1987
Ðýður nokkur betur?
Vestur-þýsk úrvals tæki
á hagstæðu verði.
ATH: ITT er BENZ meðal
sjónvarpstækja.
20” ITT-tæki aðeins kr. 33.900.-
Tveggja tíma skemmtidagskrá
fyrir matargesti.
Opið fyrir
aðra en matargesti
frá kl. 23.
Hljómsveit
Magnúsar
Kjartanssonar.
Óvæntar uppákomur.
ATH: Sjávargullið lokað um helgina.
23. okt. Uppselt
24. okt. Örfáir miðar
30. okt. Uppselt
31. okt. Fáir miðar
6. nóv. Lausirmiðar
7. nóv. Lausirmiðar
Grænlandsfar strandaði
á Býjarskerseyri
Lítið grænlenskt flutn-
ingaskip strandaði á Býjar-
skerseyri við Sandgerði að-
íáranótt mánudagsins. Var
skipið búið að vera á strand-
stað á annan tíma er það lét
vita af sér um klukkan 3 um
nóttina.
Rúmlega eitt um nóttina
varð Guðjón Bragason, skip-
stjóri á Braga GK, hins vegar
var við strandið og eftir að
hafa athugað það betur var
björgunarsveitin Sigurvon
kölluð út. Er Sæbjörgin, bát-
ur björgunarsveitanna Sig-
urvonar og Ægis, kom að
skipinu kom í ljós að um var
að ræðá flutningaskipið Ejn-
ar Mikkelsen frá Angmagsa-
lik á Grænlandi. Hafði það
verið á leið frá Grænlandi til
Danmerkur í^vélaskipti, en
þar sem það hafði lent í verra
veðri en búist var við, var
ákveðið að leita inn til
Reykjavíkur og fá meiri ojíu.
Taldi skipstjórinn sig vera
strandaðan á Akurey við
Reykjavík og Garðskagaviti
væri sjö baujan. Er skipið
strandaði var að flæða að en
um einn og hálfur tími var í
flóð. Um það leyti sem áhöfn
skipsins ætlaði að fara að
yfirgefa það yfir í Sæbjörgu,
losnaði skipið og sigldi því
fyrir eigin vélarafli inn til
Sandgerðis, þarsem slökkvi-
liðið beið með dælur á
bryggjunni. Kom það í hlut
áhafnarinnar á Sæbjörgu að
lóðsa skipið að bryggju.
Til að geta gengið úr
skugga um Ieka þurfti að
skipa upp úr skipinu brett-
um og gámum sem voru í lest
þess. Síðar um daginn fóru
kafarar niður og skoðuðu
skemmdir og kom þá í ljós að
leki var með stefnisröri,
skemmdir á kili, skrúfu og
hlífðarplötum. Var skipið
tekið upp hjá Skipasmíða-
stöð Njarðvíkur á þriðjudag,
en þar verður gert við
skemmdirnar sem hlutust af
strandinu.
Annars staðar á síðunni
birtist viðtal við Guðjón
Bragason, skipstjóra, þar
sem hann Iýsir því þegar
hann sá skipið á strandstað.
Guðjón Bragason.
Ljósm.: epj.
hugaði þetta nánar út um
gluggann hjá sér sá hann
hvers kyns var og kallaði þá
út sveitina. Er þeir voru að
undirbúa sig heyrðist Ejnar
Mikkelsen kalla á hjálp í tal-
stöðinni og sagðist vera
strandaður á Akurey. Voru
þá liðin a.m.k. þrjú korterfrá
því hann strandaði og þar til
hann lét vita, en síðan kom í
ljós að þetta var sama skip-
ið,“ sagði Guðjón.
Ahöfn Sæbjargar, f.v.: Páll Gíslason skipstjóri, Valgeir Einarsson og
Siguróur Sigurðsson. Ljósm.: cpj.
„Fannst eitthvað
skrítið við bát
þarna úti á Eyrinni
66
- segir Guðjón Bragason skipstjóri í Sandgerði,
sem tók fyrstur eftir strandi grænlenska skipsins
andanum að útkalli þessu:
„Um kl. 01:30 átti ég leið
niður á bryggju í Sandgerði
og fannst þá eitthvað skrítið
við bát, sem var þarna úti á
Eyrinni. Var ég þó ekki alveg
öruggur á að um strand væri
að ræða og fór því og hringdi
í tilkynningarskylduna og
spurði hvort einhver hafi til-
kynnt um strand.
Svo var ekki. Fór ég því
niður eftir og kannaði þetta
betur og hringdi síðan í Sig-
urð Guðjónsson, formann
Sigurvonar. Þegar hann at-
Guðjón Bragason, skip-
stjóri á m.b. Braga GK 49 frá
Sandgerði, varð fyrstur
manna í landi til að taka eftir
að grænlenska flutningaskip-
ið Ejnar Mikkelsen var
strandað á Býjaskerseyri við
Sandgerði. Var því búið að
kalla út björgunarsveitina
Sigurvon er fréttir bárust af
strandi bátsins, sem raunar
taldi sig vera strandaðan á
Akurey við Reykjavík.
Af þessu tilefni fengum við
Guðjón til að lýsa aðdrag-