Víkurfréttir - 11.08.1988, Síða 8
mun
8 Fimmtudagur 11. ágúst 1988
jUUU
molar
Umsjón: Emil Páll
Tengdasonur Keflavíkur
Ferðamiðstöðin hefur
undanfarin ár haft ferðir til
Benidorm ein og sér. Nú í ár
hafa Samvinnuferðir-Land-
sýn komist inn á markað
þeunan. Þegar rætt er um
Benidorm koma þrjár per-
sónur, er tengjast Keflavík,
fyrst upp í huga flestra þeirra
er til Benidorm hafa komið.
Er þar fyrst að telja þann sem
kallar sig „tengdason Kefla-
víkur“ en nefnist Gerard
Chinotti og er tengdasonur
Tómasar Tómassonar og
með honum starfa þarna
tvær dætur Tómasar, þær
Jórunn og Bergþóra. Þessi
þrenning er þarna sem sann-
kallaðir sendiherrar Suður-
nesja.
í slökkviliðsmannalcik
Molahöfundur var
nokkuð hissa er hann sá lög-
regluna í Keflavík vera að
leika slökkviliðsmenn síð-
asta laugardagskvöld er
kveikt hafði verið í rusli neð-
an við Nýja bíó í Keflavík.
Skyldu þeir ekki hafa vitað
að í næsta húsi við lögreglu-
stöðina hefur slökkviliðið
menn á vakt allan sólar-
hringinn, sem nánast bíða
eftir útkalli? Þessir menn
voru aðgerðarlausir meðan
lögreglan lék hlutverk
slökkviliðsins. Er eldur kom
síðan aftur upp á sama stað
kvöldið eftir var annað uppi
á teningnum og þá var kallað
í þá sem hafa atvinnu af bar-
áttu við elda, að sjálfsögðu.
Góður beingarður þar?
Eitt þeirra auglýsinga-
trompa sem Arnarflug notar
þessar vikurnar er að matur-
inn í flugvélum félagsins sé
mjög góður. Um það eru
flestir sammála. Vegna þessa
hafa Flugleiðir einnig reynt
að bæta matinn í sínum flug-
vélum. í síðustu viku kom til
landsins hópur sem fékk
tækifæri til að bera þennan
mat saman, því á útleiðinni
var borðaður Arnarflugs-
maturinn sem matreiddur er
hjá Veisluþjónustunni,
Keflavík, en á heimleiðinni
var það Flugleiðamatur frá
flugeldhúsinu á Keflavíkur-
flugvelli. Ekki voru allir þeir
sem snæddu síðarnefnda
matinn þó ánægðir með það
sem borið var áborð fyrir þá,
því kona ein fékk beingarð í
stað lúðunnar en það sem þó
var skondnast við atvikið var
að umrædd kona er eigin-
kona þess manns sem er höf-
uðið í hinni góðu matargerð
sem boðið er upp á hjá Arn-
arflugi, Axels Jónssonar. Má
því segja að mistök þessi hafi
varla getað lent á verri stað
fyrir þá Flugleiðamenn.
Sérkennilegur
starfstitill
Um síðustu mánaðamót
urðu bæjarstjóraskipti í
Keflavík er Vilhjálntur Ket-
ilsson lét af störfum og Guð-
finnur Sigurvinsson tók við
stólnum. Sem kunnugt er
tekur Vilhjálmur við störfum
skólastjóra Myllubakka-
skóla 1. sept. n.k. Má því
segja að starfsheiti Vilhjálms
nú sé æði sérkennilegt eða
fyrrum bæjarstjóri, væntan-
legur skólastjóri og bæjar-
fulltrúi í sumarleyfi.
Víkurfréttadreifing
í nýlendunum
Þeir Suðurnesjamenn, sem
dvelja um tíma erlendis,
verða fljótt mjög fréttaþyrst-
ir eins og aðrir samlandar.
Þeim dugar þó ekki að fá að-
eins Moggann og DV, heldur
fá þeir, sem dvelja á Suður-
nesjanýlendunum tveimur,
nú líka Víkurfréttir til sín
vikulega við mikinn fögnuð.
Liggja blöðin frammi hjá
Kjartani Má i Kemperfhenn-
er í Hollandi og á Islendinga-
barnum La Goleta á Beni-
dorm, þar sem Bergþóra
Tómasdóttir sér um að Suð-
urnesjamenn fái að fylgjast
með þvi sem gerist í þeirra
heimahögum.
Hadda í Gatsby
Annars staðar hér í dálki
þessum segjum við frá
„tengdasyni" Keflavíkur og
hans meðsystrum er starfa í
Benidorm. Þau eru þó ekki
einu Keflvíkingarnir sem
starfa í þessari vinsælu sól-
skinsparadís, því í tísku-
verslun einni er Gatsby heit-
ir og staðsett er á Laugavegi
þeirra starfar hún Hadda,
frænka þeirra Tómasar-
dætra. Hadda þessi heitir
fullu nafni Halldís Jónsdótt-
ir og er dóttir Ásgerðar
Kormáksdóttur og Jóns Jó-
hannssonar, forstöðumanns
íþróttamannvirkja Keflavík-
ur.
Grillpottur á Benidorm
Á meðan flestir lands-
menn bölvuðu rigningunni
og lélegu sumri hér heima
voru aðrir sem ferðuðust út
fyrir landsteinana. Flestir
voru þeir samankomnir á
tveimur ,,nýlendum“ Suður-
nesjamanna, þ.e. hjá Kjart-
ani Má í Hollandi og á Beni-
dorm. Síðustu vikur hafa
sést á síðarnefnda staðnum
Suðurnesjamenn úr marg-
breytilegum atvinnugreinum
eða allt frá fógeta og klerki
og niður í verkafólk og
nema. Enda ekki amalegt
hitastigið. Það fólk sem kom
heim í síðustu viku eftir
þriggja vikna dvöl þar syðra
hafði verið í sannkölluðum
grillpotti, hiti mældur kl. 18
var 35-38° í skugga alla daga
sem svarar til 40-50° í sólinni
og yfir heitasta tímann sem
var unt miðjan daginn.
Hús í byggingu við Lyngmóa í Njarðvík
f
■ . , L-
UTLIT YE3TUR.
UTLlT SUOUR
.1 i/7-i
Um er að ræða sjö glæsileg
einbýlishús á einum besta
stað á Suðurnesjum, - stutt
í verslanir, skóla, pósthús,
banka, einnig atvinnulega
séð.
Húsin bjóða upp á þann
möguleika að hægt er að
hafa 3 eða 5 svefnherbergi.
Arinskáli er í miðju húsi
með birtu frá þakglugga.
Sólstofa fylgir.
Byggingaraðili: Stein-
smíði h.f. Simi 12500.
Arkitekt: Vifill Magnússon
Söluaðilar:
Eignamiðlun Suðurnesja
Símar 13868 - 11700
Fasteignaþjónusta Suðurnesja
Símar 13722 - 15722