Víkurfréttir - 02.03.1989, Side 2
\)iKun
2 Fimmtudagur 2. mars 1ð89
Félagslegar byggingar í Höfnum:
Fyrsta íbúðin
af sjö
—'TTi' i 'i i m 1 rn wbiik.»
P- wm ■ i
y
afhent
Djúpivogur 12, sem nú var tekinn í notkun.
Laugardagurinn 25. febrúar
var stór dagur hjá hrepps-
nefnd Hafnahrepps því þann
dag afhenti Ragnar Halldórs-
son hjá RH innréttingum í
Njarðvík hreppsnefndinni
fyrstu íbúðina af fjórum, sem
hann er með í byggingu fyrir
sveitarfélagið. Eru íbúðir þess-
ar allar byggðar sem félagsleg-
ar íbúðir og þá sem verka-
mannabústaðir eða íbúðir sem
verða í eigu hreppsins og síðan
leigðar út fólki sem á rétt á
verkamannabústöðum.
Ibúð sú sem afhent var á
laugardag er að Djúpavogi 12 í
Höfnum. Það hús hafði staðið
upphlaðið í mörg ár og var
orðið óhrjálegt er Ragnar hóf
framkvæmdir við það í ágúst
sl. Hefur hann lokið við að
gera þarna mjög gott húsnæði
sex mánuðum á undan upp-
haflegri verkáætlun.
Eftir formlega athöfn á
laugardag, þar sem Ragnar af-
henti Jóhanni Sigurbergssyni,
oddvita Hafnahrepps, lykla af
íbúðinni, var íbúðin til sýnis
fyriralmenning. Degisíðarvar
fyrsta leigutaka, Olafi Ragnari
Hilmarssyni, afhent íbúðin.
Við athöfnina fluttu þeir
Þórarinn St. Sigurðsson sveit-
arstjóri og Ragnar Halldórs-
son verktaki stutt ávörp, þar
sem eftirfarandi kom m.a.
fram:
Þórarinn St.
Sigurðsson
„Verkamannabústaðir
þessir og leiguíbúðir eru
byggðar á grundvelli félags-
legra ibúða og greiðir ríkið
85% og sveitarfélagið 15% af
byggingarkostnaði. Upphafið
að þessu máli má rekja til ár-
anna 1977-78 er eitt hús var
byggt í Höfnum á vegum sveit-
arfélagsins á grundvelli þeirra
laga sem þá giltu um verka-
mannabústaði. Það hús er nú
Djúpivogur 22 og hefur ávallt
verið nýtt mjög vel.
Síðan gerðist það á árinu
1984 að hreppsnefndin sam-
þykkti að beita sér fyrir bygg-
ingu á allt að fjórum íbúðum.
Árið 1986 var ákveðið að
kaupa eitt hús í hreppnum og
um leið ákveðið að fresta 4ra
íbúða áformunum, aðallega
vegna þess að þá voru hér í
smíðum þrjú hús, sem ekki var
vitað með framhaldið á. Eitt
þessara húsa er einmitt þetta
hús sem við erum stödd í nú.
Með öðrum orðum, ákveðið
var að sjá hvernig gengi með
umrædd hús og grípa inní ef
þörf væri.
1987 gerðist það síðan að
núverandi hreppsnefnd ákvað
að sækja um lánsheimild til allt
að sjö íbúðum hjá Húsnæðis-
málastofnun og sá fáheyrði at-
burður gerðist að allar um-
sóknirnar voru samþykktar.
10. apríl 1988 var ákveðið að
kaupa tvö þessara húsa af
þrem sem fokheld voru,
Djúpavog 5 og 12. Enda var
ástand þessara húsa þannig að
hreppsnefndin var sammála
um að ekki væri fært að láta
mál þróasta öllu lengur, því
húsin lágu bókstaflega undir
skemmdum. Þetta var upphaf-
ið að því að þetta hús var klár-
að.
Verkið var boðið út og til-
boð opnuð 14. júlí 1988. Alls
bárust fimm tilboð og voru
þau öll hærri en kostnaðar-
áætlun. Þeim var því öllum
hafnað. Hreppsnefndin tók þá
upp samninga við þann aðila
sem átti lægsta tilboðið og end-
aði það mál með því að samið
var við umræddan aðila,
Ragnar Halldórsson.
Eg vil þakka honum sér-
staklega fyrir verk hans.
Tæknideild Húsnæðismála-
stjórnar tók verkið út síðasta
fimmtudag án athugasemda.
Áfram var haldið og útboð
gert á tveimur verkamanna-
íbúðum 23. ágúst sl. Fjögur til-
boð bárust, lægst var tilboð
RH innréttinga, rétt um 90%
af kostnaðaráætlun og því var
tekið. Er annað þeirra húsa að
rísa hér rétt hjá. Hafa mál því
atvikast þannig að Ragnar er
hér verktaki að byggingu 4ra
íbúða og fyrir liggur tilboð frá
honum í næsta parhús fyrir
verkamannabústaði en enn
hefur engin afstaða verið tekin
til þess máls en jafnvel nú í vik-
unni er ákvörðunar að vænta.
Hér er því merkur áfangi í
þróunarsögu þessa sveitarfél-
ags og sérstaklega vegna þess
að þeir verkamannabústaðir
sem eru að rísa eru þeir fyrstu í
þessu byggðarlagi,“ voru
lokaorð Þórarins.
Ragnar Halldórsson
„Verksamningur að þessu
húsi var frágenginn í ágúst-
byrjun á síðasta ári. Áttum við
að afhenda þetta hús í ágúst
1989. Er það því okkur mikil
ánægja að geta afhent þetta
hús sex mánuðum á undan
áætlun.
Alls unnu 15 manns við
þessa byggingu. Þeir verktak-
ar og aðilar, er höfðu hér hönd
í bagga, eru Páll Eggertsson,
jarðvegs verktaki, Albert
Hjálmarsson, pípulagninga-
verktaki, Rafverktakafyrir-
tækið Geisli og Eðvald Bóas-
son, húsasmiður, og starfs-
menn RH innréttinga. Færi ég
þessum aðilum þakkir fyrir
mjög vel unnin störf.
Húsið sjálft var ekki beint
álitlegt þegar verkið hófst í
ágúst. Hlaðið hús þar sem
steinninn var orðinn grænn af
slýi. Nú er það mjög vel ein-
angrað, bæði utan, innan og
lofti, og mælist 150fermetrar
að stærð. Eftirlit annaðist
Verkfræðistofa Suðurnesja.
Þeir eiga þakkir fyrir mjög
vönduð vinnubrögð. Þá á Þór-
arinn ekki síður þakkir skildar
fyrir gott framlag, því hann
hefur séð til þess að ekki hefur
skort fé úr byggingasjóðnum
til að halda þessu verki gang-
andi, sem er sérstakur þáttur,
að þurfa ekki að verða févana í
svona byggingu. Þetta hefur
gengið mjög fljótt og vel.“
Hafin er byggingarframkvæmd verkamannabústaðar frá grunni við
Djúpavog.
50 kall í bíó!
FÉLAGSBÍÓ
Hin stórgóða bíómynd
„SHAKEDOWN“
endursýnd föstudagskvöld
kl. 21. Miðaverð 50 krónur.
félags bíó
Sími 11960
I Ireppsnefndarmennirnir Björgvin l.úthersson (t.v.) og Þórarinn St. Sig-
urðsson sveitarstjóri, við athöinina. Ljósmyndir: epj.
Viltu láta mála þig?
Snyrtisérfræðingur frá Estée Lauder
verður í versluninni nk. föstudag
frákl. 14-18. T ,,, .. w
-Lattu sja þig.
SNYRTIVÖRUVERSLUNIN
sraaRt
Hólmgarði 2 Sími 15415