Víkurfréttir - 02.03.1989, Qupperneq 11
10 Fimmtudagur 2. mars 1989
„Mikill áhugi
fyrir keppninni“
- segja þær Ágústa Jónsdóttir og Birna Magnúsdóttir,
umsjónarmenn Fegurðarsamkeppni Suðurnesja
Ágústa og Uirna, ásamt Önnu Leu, segja stúlkunum til á æl'ingu
fyrir skömmu. Ljósm.: pkct.
„Það hefur gengið vel að fá
þátttakendur en eins og und-
anfarin ár kernur megnið af
hópnum frá stærstu byggðar-
lögunum. Undirtektir frá
minni stöðunum mættu vera
meiri en við vonum að það
breytist“ sögðu þær Agústa
Jónsdóttir og Birna Magnús-
dóttir, umsjónarmenn Feg-
urðarsamkeppni Suðurnesja
1989, en þær stöllur hafa und-
anfarin fjögur ár haft hita og
þunga af umsjón keppninnar.
Mikill undirbúningur
„Undirbúningur hófst strax
eftir áramót þegar búið var að
velja 9 stúlkur til þátttöku.
Þær hafa síðan stundað æfing-
ar af kappi til þess að vera í
sem bestu formi þegar stóra
stundin rennur upp. Stúlkurn-
ar hafa stundað leikfimi og Ijós
og verið undir handleiðslu hjá
hárgreiðslu- og snyrtifólki.
Þær hafa síðan verið á göngu-
æfingum í Glaumbergi undir
stjórn þeirra Agústu og Birnu.
-En er almennur áhugi hjá
fólki fyrir fegurðarsam-
keppni?
„Fólk fylgist mjög vel mcð
og það er mikill áhugi fyrir
keppninni en því ntiður kom-
ast færri að en vilja á loka-
kvöldið í Glaumbergi, enda er
mikil lagt í allan undirbúniní;
til að gera þetta sem glæsileg-
ast.
Þessi mikli áhugi hefur gert
það að verkum að það hefur
gengið mjög vel að fá fólk og
fyrirtæki til að vinna með okk-
ur við undirbúninginn og vil ég
fá að nota tækifærið og þakka
þessum aðilum sérstaklega.
Án þeirra væri þetta ekki
hægt.“
-Eiga Suðurnesjamenn mik-
ið af fallegu kvenfólki, sem á
heima í svona keppni?
„Það er mikið af hugguleg-
um stúlkum á Suðurnesjum og
ímynd ungs fólks í dag er að
líta vel út. En svo má eflaust
alltaf deila um það hvort þessi
eða hin á heima í fegurðarsam-
keppni. Svo vilja ekki allar
stúlkur taka þátt í svona
keppni."
-Að lokum, Ágústa og
Birna. Erum við með Fegurð-
ardrottningu Islands í þessum
hópi?
„Það er ekki hægt að segja
til um það. Sennilega er það
sjaldnast hægt. En það er víst
að einhvern tíma kemur að
því“ sögðu þær Ágústa Jóns-
dóttir og Birna Magnúsdóttir
að lokum.
Gjafalistinn lengist
í síðasta blaði var greint
frá þeim aðilum er gefa feg-
urðardömunum gjafir. Þá
láðist að geta Stefáns Thor-
arensen-heildverslun sem
ásamt Snyrtivöruversluninni
Gioriu gefa öllum þátttak-
endununt Viseble Differencc
„body línu“ frá Elisabeth
Arden.
Snyrtivöruverslunin
SMAR'f, sem opnaði nýlega
í Uólmgarði, hefur einnig
ákveðið að gelá öllum stúlk-
unum í legurðarsamkeppn-
inni CAPUCCl ilmvatn.
Þá má geta þess að Guð-
laug Sigurðardóttir, sem er
að nenta nudd, hefur nuddað
stúlkurnar að undanlornu en
hún mun á næstunni opna
nuddstofu í Garðinum.
víkuk
jUttit
muti
juttit
Fimmtudagur 2. ■. .ars 1989 11
Viðburðaríkt ár“
- segir Guðbjörg Fríða Guðmundsdóttir, Fegurðardrottning Suðurnesja 1988
„Þetta er búið að vera
mjög viðburðaríkt ár og
skemmtilegt. Ætli ferðin til
Þýskalands sé þó ekki eftir-
minnilegust" sagði Guð-
björg Fríða Guðmundsdótt-
ir, Fegurðardrottning Suð-
urnesja 1988, en hún mun
næsta laugardag krýna nýja
fegurðardrottningu í
Glaumbergi.
Veglegasta keppnin
„Maður hefur lært mikið
og þroskast á þessu eina ári.
Strax eftir fegurðarsam-
keppnina hér heima byrjaði
maður á æfingum fyrir Is-
landskeppnina sem haldin
var á Hótel Islandi. Þar sem
að í fyrsta skipti var sjón-
varpað beint frá keppninni
þurfti að æfa meira. Sund-
bolaatriðið var tekið upp
kvöldið áður en keppnin fór
fram og var mjög stíft pró-
gramm því það tók langan
tíma. Við vorum í upptöku
til miðnættis þannig að þessa
síðustu daga var ekki mikið
um svefn“ segir Guðbjörg,
þegar hún er beðin að leiða
hugann til síðasta árs.
„Annars er gaman að
segja frá því að keppnin okk-
ar hér á Suðurnesjum er ör-
ugglega veglegasta keppnin
sem haldin er, að undanskil-
inni sjálfri Islandskeppninni.
Hvergi er lögð eins mikil
vinna í undirbúning, mynda-
tökur og annað. Og þegar ég
sagði hinum stúlkunum að
það hafi orðið uppselt á ein-
um klukkutíma þá urðu þær
hissa. Eg held góðu sam-
bandi við allar stúlkurnar úr
keppninni í fyrra og það er
mjög skemmtilegt þegar við
hittumst.“
„Queen of the world“
Nokkrum mánuðum eftir
Fegurðarsamkeppni Islands
var Guðbjörg Fríða valin af
Vikunni til að vera fulltrúi
Islands í kepnninni „Queen
of the world“ í Þýskalandi.
„Þetta varóvenjuleg en mjög
skemmtileg ferð. Áður en
sjálf keppnin fór fram ferð-
uðumst við mjög mikið og
héldum sýningar og sátum
fyrir í myndatökum fyrir
mörg kunn fyrirtæki en alls
vorum við 70 þátttakendurn-
ir frá mörgum löndum. Það
sem kom mér mest á óvart í
þessum sýningum var að þær
voru ekkert undirbúnar. Við
áttum að gera þetta sjálfar
sem við og gerðum. Þarna
þurfti maður að treysta á
sjálfan sig, ákveða hvert og
hvernig maður ætlaði að fara
inn á sviðið, oft fyrir framan
þúsundir manna. Við sýnd-
um mikið pelsa en einnig
annan fatnað, sport- og
tískufatnað. Auglýsinga-
myndatökurnar voru fyrir
þekkt snyrtivörufyrirtæki,
tóbaksfyrirtæki og mörg
fleiri. Þetta var mikið um-
stang og hraði á öllu, og allt
saman mjög nýtt fyrir mér og
reyndar flestum okkar
stúlknanna. I ferðinni kontu
allar gjafirnar sem ég fékk í
kringum þátttökuna heima,
að góðum notum“.
Guðbjörgu gekk ágætlega
í keppninni, komst í 35
manna úrslit.
Boðin þátttaka í
„Miss Globe“
-Getur þátttaka á erlendri
grundu ekki gefið af sér góð
tækifæri, t.d. við fyrirsætu-
og sýningarstörf?
„Jú, það er engin spurn-
ing. I þessum stóra hópi var
umboðsmaður fyrir keppni
er kallast „Miss GIobe“ sem
haldin er í Tyrklandi. Hann
bauð mér að taka þátt í henni
næsta sumar og sagðist vilja
fá tvær stúlkur frá íslandi.
Hann sagðist hafa mikið álit
á íslensku kvenfólki og
nefndi m.a. Henný Her-
manns í því sambandi. Ef ég
vildi ekki koma bað hann
mig um að koma því í kring
að fá sendar myndir og um-
sóknir frá tveimur stúlkum
til þátttöku í þessa keppni.
Eftir keppnina i Þýskalandi
var okkur öllum boðið að
fara til Frakklands ef við
vildum reyna fyrir okkur í
fyrirsætustörfum. Eg hafði
ekki áhuga, þó svo að þetta
geti verið spennandi.“
Líst vel á hópinn
En hvað segir Guðbjörg
um þátttakendurna í Feg-
urðarsamkeppni Suðurnesja
að þessu sinni? „Mér líst
mjög vel á hópinn. Þær eru
allar fegurðardrottningar í
mínum augum.“ Ertu búin
að velja? „Já, eiginlega...“
sagði Guðbjörg Fríða að lok-
um.
„Hef lært mikið
og þroskast á
þessu eina ári“,
segir Cuðbjörg
Fríða. Myndina
tók HeimirStígs-
son á Ljósmynda-
stofu Suðurnesja.
Guðbjörg Fríða ásamt stúlkunum sem komust í 35 manna urslit. Sigurvegarinn i keppnmm,
„Queen of the VVorld", er önnur frá hægri í fremri röð.
SrL
Útsala í Járn & Skip!
Gólfdúkar
2.198
GóÚtepP1
vt 690 f«>
Snjósleða^—
„4990
Fatahornið
FuUt af
V\ x— * ,
fa
tnaði
flotgöU'
um
yg£
gvéluaa
stv
isskóiu
or-
o
f\.
<
Járn & Skip v/Víkurbraut Sími 15405
t £S
o
•*»