Víkurfréttir - 30.03.1989, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 30. mars 1989 13
„Erum með þessu að hvetja til innlána hjá okkur", sejjir Jóhanna Reynisdóttir, útibússtjóri.
„Mjög góð viðbrögð
við vinningsliðinu"
- segir Jóhanna Reynisdóttir, útibússtjóri Verslunar-
bankans í Keflavík, um nýstárlega þjónustu bankans
„Viðbrögð við þessari nýjung
hafa verið mjög góð, raunar
framar öllum vonum; fólk hefur
tekið þessu mjög vel“ sagði Jó-
hanna Reynisdóttir, útibús-
stjóri Verslunarbankans í
Keflavík, um hina nýju þjónustu
bankans, sem felst í þátttöku í
svokölluðu „Vinningsliði“.
Að sögn Jóhönnu hyggst
bankinn í framtíðinni leggja
áherslu á að þjóna þeim betur
sem eru arðbærastir í viðskipt-
um og eiga mikil innlán. Þeir
munu hafa beinan aðgang að
sérstökum liðsmanni í bank-
anum en verða jafnframt und-
anþegnir ýmsum gjöldum
vegna sinna viðskipta.
Verslunarbankinn hyggst
með „Vinningsliðinu“ skapa
sér sérstöðu meðal sparifjár-
eigenda án þess að mismuna
fólki eftir efnahag, heldur inn-
eign í bankanum. Röksemdar-
færslan er sú að þeir sem eiga
verulegar innistæður eigi rétt á
að fá notið þess að þeir eru arð-
bærari í viðskiptum. Þeir fá
sérstaka athygli og ýmis fríð-
indi líkt og þeir sem njóta
magnafsláttar. Það kemur þó
ekki til með að rýra þá þjón-
ustu sem aðrir viðskiptavinir
fá í bankanum. „Hugmyndin
að Vinningsliðinu er sú að til
að auka markaðshlutdeildina
þarf að ná til þeirra sem eiga
sparifé. Sérhæfingin byggir á
því að aðgreina viðskiptamenn
í hópa og styrkja tengslin við
þá arðbærustu með því að
veita þeim betri þjónustu“
sagði Jóhanna.
En hverjir komast í Vinn-
ingsliðið? Jóhanna sagði að
ekki væri 'verið að aðgreina
viðskiptavini m.t.t. eigna eða
tekna þeirra. Skilyrði fyrir
þátttöku í Vinningsliðinu væri
að viðskiptavinurinn þarf að
eiga að jafnaði 350 þúsund
krónur á innlánsreikningi.
Þannig er Vinningsliðið að-
greint miðað við hvort um
mikil viðskipti er að ræða.
„Vinningsliðið hefur í för með
sér talsverðan kostnaðarauka
og tekjutap fyrir bankann en
með auknum innlánum mun
það skila sér. I Vinningsliðinu
eru viðskiptavinir sem við
treystum. Við erum einnig með
þessu að hvetja til innlána hjá
okkur og viðbrögðin fyrstu
vikurnar eftir fyrstu kynningu
á þessari nýju þjónustu gefa til
kynna að fólkið kunni að meta
hana“ sagði Jóhanna Reynis-
dóttir, útibússtjóri Verslunar-
bankans í Keflavík, að lokum.
Engin Suðurnesjaverslun
í „kjötfarsúttektinni"
Engin verslun á Suður-
nesjum var í úttekt Neyt-
endasamtakanna á gerla-
innihaldi i nautahakki og
kjötfarsi, sem niðurstöður
voru birtar úr nývcrið.
I kjölfar niðurstaðna
könnunarinnar hefur fólk
farið að velta fyrir sér vinnsl-
uaðferðunt með kjötvöru og
meðferð hennar. Þærupplýs-
ingar fengust í Kjötseli í
Njarðvík að nokkuð reglu-
lega eru gerðar kannanir á
gerlainnihaldi í kjötafurðum
og í nánast öllum tilfellum er
um jákvæðar niðurstöður
fyrir kjötvinnsluna að ræða.
Birgir Scheving hjá Kjötseli
sagði að um nokkurs konar
happdrætti væri að ræða
fyrir kjötvinnslustöðvarnar.
Þær gætu verið með gott kjöt
i gær, sýkt í dag og aftur gott
á morgun. Sagði hann enn-
fremur að örugg aðferð væri
notuð við vinnsluna á þess-
ari matvöru og að urn mesta
misskilning væri að ræða að
notaðir séu gamlir afgangar í
kjötfarsið.
Kjötfarsið og nautahakkið
er unnið við lágt hitastig, sem
kemur í veg fyrir gerlamynd-
un í hráefninu.
Sagði Birgir að þegar svo-
nefndir saurgerlar finnist í
hráefmnu, rnegi rekja það til
viðkomandi sláturhúss, en
þar eru kjötskrokkarnir há-
þrýstiþvegnir og jafnvei vill
bregða við að lambaspörð
séu á nýslátruðum skrokk-
unum, þegar þeir eru há-
þrýstisprautaðir og þrýstast
þá spörðin inn í heita og
mjúka fituna. Þegar svona
kjöt finnst í framleiðslunni,
er því í öllum tilfellum kast-
að frá.
HOSKAHJÁLP A SUBVRNESJUM
AÐALFUNDUR
félagsins verður haldinn 4. apríl kl. 20.30 að
Suðurvöllum 9 í Keflavík.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
GREIÐSLUKORTAÞJONUSTA
VÍKUR
4uttít
Skrifstofustarf hjá
traustu fyrirtæki
Traust fyrirtæki í Keflavík óskar að ráða
starfsmann til skrifstofustarfa. Um heils
dags starf er að ræða. Viðkomandi þarf að
hafa góða bókhaldskunnáttu, geta séð um
tölvuvinnslu og unnið sjálfstætt.
Umsóknir skilist til Víkurfrétta merktar
„Traust fyrirtæki“ fyrir 5. apríl nk.
Kráarstemning
í Vitanum
Gítarinn á
sínum stað
í salnum.
Matargestir -
pantið borð
tímanlega.
20 ára aldurs-
takmark.
Hittumst hress!
OPIÐ FÖSTUDAGS- OG LAUGAR-
DAGSKVÖLD TIL KL. 03.
LOKAÐ SUNNUDAG
VEGNA EINKASAMKVÆMIS.
Höfum opnað aftur á sunnudögum
frá 11:30-21:00 - Opið alla virka
daga frá 9:30-20:00
Sandgerði - Sími 37755