Víkurfréttir - 22.06.1989, Page 9
viKun
jutU%
Tólf bílhræ eru við gömlu bæjarskemmurnar, ýmist á vegum Bíla-
braggans eða annarra aðila.
Ástandið er lítið betra við Bifreiðaskoðunina.
Hjá Steinari Ragnarssyni er umgengni til fyrirmyndar af bílaverk-
stæði að vera. Ljósm.: epj.
28
bílflök
við
Iða-
velli
Fulltrúi Heilbrigðiseftir-
lits Suðurnesja þurfti í síð-
ustu viku að líma aðvörunar-
miða á 16 bílflök við Iðavelli
í Keflavík, þ.e. á kaflanum
frá Aðalgötu og suður fyrir
Bifreiðaskoðun Islands. Auk
þess voru 12 bílflök til við-
bótar við gömlu bæjar-
skemmurnar.
Þó þetta sýni mjög slæmt
ástand við umrædda götu
eru þar einnig staðir til fyrir-
myndar, s.s. Tré-X og bíla-
verkstæði Steinars Ragnars-
sonar. A næstu dögum verða
umrædd bílflök fjarlægð á
kostnað eigenda eða um-
ráðamanna viðkomandi
lóða.
Þroskaheftir unglingar
til Luxembourgar
Fyrirhugað er að fara með
þroskahefta unglinga af Suð-
urnesjum í sumarhús stutt frá
Luxembourg. Til þess að þessi
ferð verði möguleg hefur
Þroskahjálp sent fyrirtækjum
á svæðinu bréf, þar sem óskað
er eftir fjárstuðningi til farar-
innar.
Segir í bréfinu að þetta sé
þeirra fyrsta ferð og sé það ósk
þeirra að hún megi takast sem
best og að unglingarnir fái að
upplifa það sama og heilbrigð-
ir unglingar, án þess að þurfa
sjálf að kosta miklu til.
Þar sem unglingarnir geta
ekki sjálfir safnað fyrir ferð-
inni, þá hafa starfsmenn á
Ragnarsseli í Keflavík bakað
kleinur og selt, ásamt fleiru, til
að styrkja þau en betur má ef
duga skal.
Félagsbíó í Keflavík hefur
ákveðið að gefa ágóða af þrjú-
sýningu kvikmyndahússins
næsta sunnudag. Sýnd verður
myndin Alf og félagar. Þá
munu starfsstúlkur á Ragnars-
seli selja kleinur á stæðinu við
Stapa í Njarðvík nk. föstudag.
Þau fyrirtæki sem sjá sér fært
að styrkja unglingana til farar-
innar eru beðin að hafa sam-
band við forstöðumann Ragn-
arssels, Suðurvöllum 7, Sigríði
Eyjólfsdóttur, í síma 14333
eða framk væmdastjóra
Þroskahjálpar, Önnu Mar-
gréti Guðmundsdóttur, Suð-
urvöllum 9, síma 15331.
Fimmtudagur 22. júní 1989 9
Þú ættir næst
að biðja um
BKI kaffi
Fæst í næstu búð
Heildverslun
Gunnars Hjaltasonar
Opið á laugardögum kl. 14 - 16.
Aörir timar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.
BILALEIGA
GOÐIR BILAR - GOTT VERÐ
Hafnargötu 38 - Sími 13883
Framtakssemi þökkuð
í Grindavík
Forysta knattspyrnu-
deildar UMFG hefur óskað
eftir að koma á framfæri
þökkum fyrir framtakssemi
bæjarstjórnar Grindavíkur
varðandi íþróttasvæðið í
Grindavík.
Að sögn Gunnars Vil-
bergssonar, formanns deild-
arinnar, er hér fyrst og
fremst um að ræða fram-
k væmdir við grasvöll og mal-
arvöllinn og gerð skjólgarðs.
Sagði hann viðkomandi að-
ila mjög ánægða með verkið
og því ástæða til að þakka
það.
70/-----------------
// VIÐ ERUM
// í TAKT VIÐ
§ TÍMANN....
° Prentum á tölvupappír.
/ Öll almenn prentþjónusta.
Reynið viðskiptin.
PLONTUSALA
DRANGAVÖLLUM 3, KEFLAVÍK
Fjölbreytt
úrval af
garðplöntum.
Tré, runnar
og limgerði.
Blóm, rósir
og kvistir.
Lífrænn
áburður.
Vikur og
blómaker.
ATH:
Opið virka daga Sama verð
fra kl. 13-22, Iaugar- 0 Reykjavík
daga kl. 10-18 og
sunnudaga kl. 13-17.