Víkurfréttir - 06.07.1989, Síða 1
Ljósm: Jóhann Bergmann
Fyrstu sundtökiii i nýju sundmiðstöðinni
.nngar
lagðar á
þjóðvegi:
Lögreglan
hélt niðri
ökuhraða
Undanfarna góðviðris-
daga hefur verið unnið að
lagningu klæðninga á hina
ýmsu þjóðvegi hér á Suður-
nesjum. M.a. hefur verið lagt
á hluta nýju Reykjanes-
brautarinnar, hluta Hafna-
vegar og einnig á Grindavík-
urveginn.
Miklar kvartanir bárust til
lögreglunnar í Grindavík
vegna steinkasts frá bílurn
sem fóru of greitt yfir klæðn-
inguna. Brást lögreglan við
með því að staðsetja bifreið
við radarmælingar við ný-
lagða klæðninguna. Ægir
Ágústsson hjá lögreglunni í
Grindavík sagði að það hai'i
haft mikil áhrif á aksturinn,
en lakkskemmdir hefðu orð-
ið þó nokkrar á bifreiðutn.
Á miðvikudag í síðustu
viku tóku tveir af starfs-
mönnum Húsaness fyrstu
sundtökin í hinni nýju sund-
miðstöð, sem er í byggingu í
Keflavík. Þetta voru þeir
Einar Hannesson og Ingvi
Hjörleifsson. Verið var að
prófa þéttleika laugarinnar
og því var vatni hleypt í
hana.
Sýnir myndin Einarí laug-
inni en Ingva á bakkanum en
ráðgert er að opna laugina
almenningi í haust.
- Sjá nánar bls. 2
Mildi að ekki
varð stórslys
- þegar gaskútur sprakk við vélsmiðjuna Kópu
Mikil mildi var að ekki
hlaust af stórslys er gaskútur
sprakk utan við vélsmiðjuna
Kópu í Njarðvík á mánudag
og þeyttist síðan 150 metra
vegalengd yfir tveggja hæða
hús og lenti utan vegar
skammt frá fjórum krökkum
sem þar voru að leik.
Við sprenginguna varð
stórtjón á húsi vélsmiðjunn-
ar en enginn þeirra þriggja
starfsmanna, sem voru að
störfum utan við vélsmiðj-
una og við þann stað sem
kúturinn stóð á, urðu fyrir
meiðslum vegna þessa, sem
telst mikil mildi. Á síðu 7 í
blaðinu í dag greinum við
nánar frá óhappi þessu.
Krakkarnir fjórir við kútinn,
eins og hann lítur út eftir
sprenginguna. Talið frá vinstri:
Anna María Jónsdóttir, Olöf
Ivarsdóttir, Jóhann Bergmann
Friðriksson og Borgar Erlends-
son. Ljósm.: epj.
Vélbyssuskot
í sorpgámi
Vélbyssuskot fundust i
sorpgámi við félagsheimilið
Festi í Grindavík sl. fimmtu-
dag. Var verið að henda
sorpi í gáminn þegar 37 stór
vélbyssuskot kornu í Ijós.
Var þeim þegar komið til
lögreglunnar. Lét lögreglan
þegar losa gáminn en ekki
reyndust vera fleiri skot í
honum.
Skotin sem fundust voru
samskonar og þau er fund-
ust við bæinn á síðasta vetri.
Er hugsanlegt að einhver
hafi verið að losa sig við skot
sem þá hafi fundist. Vill lög-
reglan í Grindavík beina því
til fólks sem finnur þessi
skothylki, eða hefur þau í
fórum sínum, að koma þeim
til lögregiunnar.
Skemmdarverk í
Alberti Úlafssyni
Á fimmtudagskvöldið í
síðustu viku var brotist inn í
Albert Ólafsson KE 39, þar
sem hann lá við bryggju i
Keflavíkurhöfn, nýkominn
úr miklu málningarviðhaldi.
í>eir sem þar voru að verki
tóku slökkvitæki traustataki
og sprautuðu úr þeim yfir
millidekk og vélarrúmið. Þá
tóku þeir bílútvarpstæki úr
matsal skipsins.
Nokkrum erfiðleikum var
bundið að ná slökkviduftinu
af veggjum og vélum, þar
sem ekki má bleyta það held-
ur einungis ryksuga það upp.
Er síðast fréttist var ekki vit-
að hverjir þarna voru að
verki.