Víkurfréttir - 06.07.1989, Side 2
2 Fimmtudagur 6. júlí 1989
\fiKun
jutUt
Nyja sundmiðstöðin í Keflavík:
Framkvæmdir
standa
Að sögn Hafsteins Guð-
mundssonar, formanns
íþróttaráðs Keflavíkur,
standa framkvæmdir við
nýju sundmiðstöðina í Kefla-
vík áætlun, en þær hófust í
þessum áfanga í maí. Eru
raflagnir og pípulagnir langt
komnar og múrlögn gengur
vel.
Er reiknað með að byrjað
verði að flísaleggja útilaug-
ina og pottana innan tíðar,
en það verk tekur um tvo
mánuði. Stefnt er að vígslu
áætlun
15. nóvember, þ.e. á útilaug-
inni, fjórum pottum ogþeirri
aðstöðu sem því fylgir s.s.
starfsmannaaðstöðu og veit-
ingaaðstöðu inn af anddyri.
Um síðustu áramót var
kostnaðurinn kominn upp í
tæpar 50 milljónir og á þessu
ári bætast 45 milljónir við.
Eftir eru þá framkvæmdir
við innilaugina en þær fram-
kvæmdir bíða svo og frá-
gangur á búningsklefunum,
en búið er að steypa þá upp.
Svona er umhorfs á útisvæði við sundmiðstöðina í Keflavík í dag. Vatn var sett í laugina og alla potta
í síðustu viku til að athuga þrýsting. Ljósm.: hbb
LAUNÞEGAR
Geymið launaseðla ykkar vandlega, því þeir eru eina kvittunin fyrir
greiðslu ykkar í lífeyrissjóð, orlof, útsvar, skatta og félagsgjöld.
ATH: Ef vinnuveitandi hefurekki greitt inn orlofið, þegar þið farið í
sumarfrí, þá er nægjanlegt að framvísa launaseðli til Póstgíróstof-
unnar, því þá mun hún greiða ykkur út orlofið.
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur
og nágrennis
ÞEKKING OG ÞJÓNUSTA
í FYRIRRÚMI - fyrir þig!
fj dropinn
Hafnargötu 90 Sími 14790
Keflvíkingur nemur byggingartæknifræði í Danmörku:
Hlaut hæstu
Fjölmargir Suðurnesja-
menn dvelja árlega við nám
víðsvegar um heim. Danmörk
er vinsæl á meðal námsmanna
og undanfarið hafa nokkrir
lagt stund á byggingartækni-
fræði og byggingarverkfræði.
Einn þeirra, sem lokið hafa
námi í byggingartæknifræði,
er Keflvíkingurinn Eyjólfur
Þórarinsson. Lokaverkefni
sitt við skólann vann Eyjólfur
á vegum bæjaryfirvalda í
Lundi, sem er lítið þorp utan
við Horsens á austurströnd
Jótlands, þar sem liann býr.
í bréfi frá skólayfirvöldum í
Horsens til blaðsins, segir að
lokaverkefnið, sem Eyjólfur
vann að ásamt tveimuröðrum
nemendum við skólann, hafi
verið jarðfræðirannsóknir.
Voru rannsóknirnar gerðar á
60 hcktara svæði og að niður-
stöðum fengnum var unnið að
tillögugerð um undirstöður
þeirra húsa, sem þarna munu
rísa í framtíðinni. Staðurinn
sem Eyjólfur vann lokaverk-
efni sitt á, er ætlaður undir
íþrótta-, námskeiða-, fram-
haldsskóla- og iðnaðarsvæði.
Fyrir verkefni sitt hlaut Eyj-
ólfur hæstu einkunn. Blaðið
hafði samband við Eyjólf í
Danmörku og hafði hann
þetta að segja:
„Þetta nám gefur mér mikla
möguleika. Það er hugmyndin
hjá mér að sleikja sólina hér
ytra í sumar og að fá mér at-
vinnu, en síðan mun ég koma
heim í ágúst og skoða vinnu-
möguleika þar,“ sagði Eyjólf-
ur Þórarinsson frá Keflavík að
lokum.
Ný og betri útimálning
STEINTEX frá Málningu hf.
ntábmig "■
einkunn fyrir
lokaverkefnið
Eyjólfur Þórarinsson (lengst til hægri) ásanit tveiniur öðrum nem-
endum við skólann, sem unnu að verkefninu með honum.