Víkurfréttir - 06.07.1989, Page 5
\)iKun
jutUt
Fimmtudagur 6. júlí 1989
Máni fékk
„plastpoka-
peninga" til
uppgræðslu
Hestamannafélagið Máni
fékk nú nýverið úthlut-
að 250 þúsund króna styrk til
uppgræðslu. Er styrkurinn
veittur af Landvernd og er
hluti afrakstrar af plast-
pokagjaldi sem innheimt
hefur verið frá því í mars sl.
Að sögn eins forsvars-
manna Mána verður pening-
unum varið til áframhald-
andi uppgræðslu félagssvæð-
isins að Mánagrund.
Krakkarnir
látnir hella
bjórnum niður
Síðasta föstudagskvöld
var hópur 12-13 ára krakkaá
ferðinni við Hafnargötuna í
Keflavík. Voru þau staðin að
því að veifa bjór framan í
vegfarendur.
Kom lögreglan á vettvang
og lét krakkana hella niður
bjórnum, enda langt undir
þeim aldri að mega vera með
áfengi.
Frá upptökum við Reykjanesvita í síðustu viku. Gamla húsið bak við fólkið er einungis útveggirnir og
var reist fyrir tökurnar. Þegar Ijósmyndin var tekin var verið að taka upp atriði með björgunarsveitar-
fólki úr Grindavík. Ljósm.: hbb
Ný íslensk sjónvarpskvikmynd:
Myndað á Reykjanesi
Ríkissjónvarpið vinnur nú
að upptökum á nýrri ís-
lenskri sjónvarpsmynd. Er
myndin að mestu leyti tekin
upp hér á Suðurnesjum.
Egill Eðvarðsson, sem
stjórnar upptökum á mynd-
inni, sagði í samtali við
blaðamann að myndin væri
aðallega tekin upp á Reykja-
nesi og einnig í námunda við
Grindavík. Ekki vildi Egill
gefa upp nákvæman sögu-
þráð myndarinnar en hún á
að gerast við svonefndan
Höfðavita einhvers staðar á
norðurlandi. Ber myndin
nafnið Steinbarn og gerist í
nútímanum. Fóru tökur
fram við Reykjanesvita í síð-
ustu viku.
Margir þekktir leikarar
koma fram í sjónvarps-
myndinni en einnig leikur
fólk úr björgunarsveitinni
Þorbirni í myndinni. Verður
hún um klukkustundar löng
og að öllum líkindum sýnd í
sjónvarpinu um næstu jól.
Gönguleið-
ir á Suður-
nesjum í
sjðnvarpi
Sjónvarpið er nú með í
framleiðslu þáttaröð um
gönguleiðir hér á ' landi.
Munu fyrstu þættirnir verða
sýndir í júlímánuði og fjallar
1. og 2. þáttur um gönguleið-
ir á Reykjanesskaga.
Sá aðili sem ganga mun
fyrir hópnum í fyrsta þætti
og skýra það sem fyrir augu
ber er Jón Böðvarsson, en
göngustjóri í 2. þættinum er
Olafur Rúnar Þorvarðarson.
ðlvaðir
varnarliðs-
menn á ferð
A þriðja tímanum aðfara-
nótt laugardagsins kom lög-
reglan í Keflavík að tveimur
varnarliðsmönnum, ofurölvi
á almannafæri. Voru þeirán
útivistarleyfa, auk þess sem
þeir voru það lágt settir að
þeir máttu ekki vera á al-
ntannafæri á þessum tíma.
Vqru þcir lluttir á lög-
reglustöðina í Keflavík og
þangað sótti herlögreglan
þá.
Eigum hentuga
sali fyrir hvers kyns
veislur, fundi og mann-
fagnaði. Fagleg ráðgjöf.
ódýrir SUMARREITIR
í ALLT SUMAR
í HÁDEGINU OG Á KVÖLDIN
Hádegisverður kr. 600-750
Kvöldverður kr. 850-1200
Forréttur eða súpa, kjöt- eða
fiskréttur og kaffi.
Einnig smáréttir og „léttir“
ódýrir réttir.