Víkurfréttir - 06.07.1989, Síða 6
6 Fimmtudagur 6. júlí 1989
Sundlaugin
í Grindavík verður opin
í sumar sem hér segir
Virka daga:
Morguntímar ......... 07:00-10:00
Eftir hádegi ........ 14:00-21:00
Um helgar:
Nýjung!
Laugardaga og sunnudaga 10:00-16:00
Heiti potturinn alltaf jafn vinsæll!
Iðkiö sund reglulega
-það er heilsubætandi og hressandi!
mun
jtUUi
molar Grín - Gagnrýni - Vangaveltur Umsjón: Emil Páll
Hættumerki
Léttismanna
Fyrir um ári síðan kepptu
á Iðavallarvellinum í Kefla;
vík lið Léttis og Hafna. í
þeim leik slasaðist einn leik-
manna með þeim afleiðing-
um að flytja varð hann með
sjúkrabíl til læknis. Nú, ári
síðar, gerist sami hluturinn í
leik þessara sömu Iiða á þess-
um sama velli. Því hlýtursú
spurning að vakna, hvort
þessi lið mætist ekki næst á
einhverjum öðrum leikvelli.
Ætlaði Konni að
skjóta þá í kaf?
Þó slys séu yfirleitt ekki til
þess fallin að hafa í flimting-
um getum við ekki orða
bundist, þegar skondin tilvik
koma upp á, t.d. það sem nú
er altalað hjá gárungunum.
Eins og menn vita hefur Há-
kon Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Kópu, staðið í
bréfaskriftum við Islenskan
Markað vegna einkennilegs
húsaleigumáls. Á mánudag
henti það atvik, að gaskútur
sprakk hjá Kópu h.f. og
þeyttist hátt í loft upp og yfir
umrætt deiluhúsnæði. Segja
gárungarnir því að hér hafi
Hákon gert heiðarlega til-
raun til að sprengja viðkom-
andi hús í loft upp, eða þann-
>g-
Nýir vælubílar...
Það er ekki að spyrja að
þeim Suðurnesjamönnum.
Þessa mánuðina fer fram
gagnger endurnýjun á bíla-
flota lögreglu, slökkviliðs og
sjúkraflutninga. Koma eigi
færri en fimm nýir bílar.
Grindavíkurlögreglan fékk
þann fyrsta, sem kom upp úr
miðjum síðasta mánuði,
Rauða kross deild á Suður-
Liggjandi flatur í sólinni
Sólin skcin glatt á okkur í cndaða síðustu viku og þá grcip Ijós-
myndari blaðsins þcnnan starfsmann glóðvolgan, þarsem hann lá
flatur í sólinni. Til nánari skýringa, þá vinnur maðurinn við
sjúkraflutninga og sliikkvistörf. Til þess að maðurinn gcti staðið á
saklcysi sínu, þá upplýsist það hér með að myndin er tekin í há-
deginu sl. fimmtudag. Ljósm.: hbb
nesjum fékk til landsins nýj-
an sjúkrabíl í síðustu viku
sem er að koma á göturnar.
Tveir lögreglubílar, annaraf
BMW-gerð en hinn af
Volvo-gerð, bíða í umboðum
sínum eftir afhendingu til
Keflavíkurlögreglu og síðan
má fljótlega vænta fullkom-
ins slökkvibíls til Bruna-
varna Suðurnesja. Er því
ljóst að með hausti verður
kominn töluverður floti af
nýjum (sírenu)vælubílum til
Suðurnesja.
...viltu kaupa
slökkvibíl?
En það er ekki nóg að
kaupa nýja bíla. Það þarf
einnig að selja þá gömlu. Er
vitað að til sölu eru ennþá
sjúkrabíll og hjá BS eru tveir
slökkvibílar til sölu, þar af
annar sem er einskonar
antík, því hann kom á
götuna á 5. áratugnum. Þá er
auk þess fornbíls til sölu einn
slökkvibíll af stærri gerðinni.
Geta menn því farið í eigin
brunabílaleik ef þeir kaupa.
Er hrepparígur
til staðar?
Garðmenn og Sandgerð-
ingar hafa í gegnum tíðina
ekki verið allra bestu vinir og
oft talað um ríg milli þessara
sveitarfélaga, þ.e. Miðnes-
hrepps og Gerðahrepps.
Með árunum hefur þó dregið
úr þessum ríg og meira sam-
starf orðið með sveitungum.
Gamli þjóðvegurinn á milli
þessara byggðarlaga virðist
þó vera nokkurt vandamál.
Þegar hann er heflaður af
báðum byggðarlögunum, þá
er alltaf skilinn eftir kafli á
milli björgunarstöðvarinnar
í Garði og Ásgarðs í Miðnes-
hreppi. Er þessi kafli harður
og holóttur, svo ekki er
nokkur leið að aka með góðu
móti. Það sérstæða við þetta
er að einmitt þessi vegar-
spotti er langmest ekinn af
öllum gamla þjóðveginum.
Það er þess vegna spurning
hvers vegna sveitarfélögin
láta ekki hefla síðustu metr-
ana af veginum í sínum sveit-
arfélögum. Er það kannski
gamli hrepparígurinn?
----70/
B VIÐ ERUM
$ í TAKT VIÐ
§ TÍMANN....
o/ Prentum á tölvupappír.
/ Öll almenn prentþjónusta.
Reynið viðskiptin.
Sértilboð
Á ÚTIMÁLNINGU - Stóraukin málningarþjónusta.
BETT, BECKERS
OG HEMPELS
málningarvörur.
Litaval
Baldursgötu 14 - Sími 14737
SKIPAAFGREIÐSLA
SUÐURNESJA
KRANALEIGA
LYFTARALEIGA