Víkurfréttir - 06.07.1989, Page 7
Sprengingin í Kópu:
Gaslekinn hafði varað
í rúma klukkustund
Skömmu eftir kl. 14 á
mánudag varð mikil sprenging
við vélsmiðjuna Kópu, sem
staðsett er við Bolafót í Njarð-
vík. Orsök sprengingarinnar
var sú að gaskútur sprakk í loft
upp og þeyttist um 150 metra
frá staðnum, yfir tveggja
hæða hátt hús og hafnaði í
brekku hinum megin Bolafót-
ar.
Höfðu starfsmenn vélsmiðj-
unnar orðið varir við að kútur-
inn var farinn að leka og því
ekið honum út fyrir vegg vél-
smiðjunnar. Þar var hann bú-
inn að standa í rúma klukku-
stund er hann sprakk. Þá voru
þrír starfsmenn að vinna í ná-
munda við hann og einn þeirra
nýkominn ofan af þaki vél-
smiðjunnar. Á þeim tíma sem
kúturinn hafði staðið utan-
dyra voru starfsmenn marg-
búnir að ganga að honum og
skoða hann nánar.
Var sprengingin svo öflug
að rúður vélsmiðjunnar brotn-
uðu, tvær stórar hurðir stór-
skemmdust, skemmdir urðu á
loftklæðningu og járnplötur af
þaki losnuðu. Þá þaut kútur-
inn eins og áður segir mikla
vegalengd og lenti í um 15
metra fjarlægð frá fjórum
krökkum sem þar voru að leik.
Engann starfsmannanna né
krakkanna sakaði, sem telja
má mikla mildi.
Að sögn fróðra manna er
talið að starfsmaður hafi verið
að vinna að suðu er hann
missti vald á slöngunni. Hún
snerist þá á höndum hans og
suðuhausinn slóst utan í kút-
inn með þeim afleiðingum að
gat kom á hann. Við það er tal-
ið að glóð hafi myndast inni í
kútnum, sem síðan framkall-
aði sprenginguna þetta löngu
síðar.
„Þegar slikt kemur fyrir á
þegar í stað að kalla til slökkvi-
lið til að kæla kútinn og leggja
Séð frá þeim stað, þar sem kút-
urinn lenti. Einnig sést húsið
sem hann fór yfir. Kópa er á bak
við það hús.
yfir hann sprengjumottu,4'
sagði Ingiþór Geirsson,
slökkviliðsstjóri, í samtaii við
blaðið. „Jafnframt á að reka í
burtu allt fólk sem er í nálægð
við kútinn og ekki hleypa því
að fyrr en kúturinn er orðinn
kaldur," bætti hann við.
Þar sem þessar varúðarráð-
stafanir voru ekki gerðar sést
hve litlu hefur munað að ekki
varð af stórslys. En hvað
fannst krökkunum, sem sáu
kútinn koma þjótandi í átt til
sín, um málið? „Okkur brá
mikið, það var svo mikill há-
vaði að við héldum helst að
flugvél væri að springa."
Strax og tilkynning um
sprenginguna barst þusti
slökkvilið og sjúkraflutnings-
menn ásamt lögreglu á stað-
inn. En sem beturferþurfti lít-
ið eða ekkert á þeim tveim
fyrstnefndu að halda, en lög-
reglan hóf þegar rannsókn
málsins.
Við nánari rannsókn
slökkviliðs og lögreglu kom í
ljós að botninn úr kútnum
hafði við sprenginguna lent á
húsinu nr. 10 við Hæðargötu
og fallið síðan inn á lóðina nr.
8 við sömu götu, en hús þessi
eru í tæplega 200 metra fjar-
lægð frá slysstaðnum. Við
þetta urðu all nokkrar
skemmdir á þaki hússins nr.
10.
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson sér um
• •
FJORIÐ
fö,studags- og laugardagskvöld
(20 ára aldurstakmark)
Kaffihlaðborð
á súnnudag.
Öpið virka daga til 23:30,
föstudaga og laugardaga til 03
og sunnudaga til 21.
-Sími 37755-
Fimmtudagur 6. júli 1989
(jlam
'<s
SKEMMTISTAÐUR
Gígja Sig.
og 7und
Helgarfjörið er í Glaumbergi
Föstudagskvöld:
Nú mæta allir með hundraðkall í hægri
vasanum (og sexhundruð í hinum) og
bregða sér í dúndrandi diskóstuð. Dyrnar
opnar rétt fyrir ellefu. Ekki hanga í húnin-
um og ekki mæta í vinnugallanum. 18 ára
og eldri velkomnir.
Laugardagskvöld:
Suðurnesjasöngkonan Gígja Sigurðar-
dóttir hefur gengið til liðs við hljómsveitina
7und frá Eyjum, sem fyllti Glaumbergið
síðast. Mætum því tímanlega og sjáum
hina eldhressu Gígju í gargandi góðu
stuði. 20 ára aldurstakmark. Ekki mæta í
Ijótum strigaskóm. Hittumst hress.
SjAVARöULLIÐ
V RESTAURANT
Ferskleikinn yfirþyrmandi á þessum létta
og skemmtilega veitingastað. Opinn föstu-
dags- og laugardagskvöld frá kl. 18.30.
Borðapantanir í síma 14040.
Vilt þú hitta
skemmtilegt fólk
og borða góðan mat?
Stemningin er hjá okkur. Fullt hús og
skemmtileg stemning undir Ijúfum tónum
hjá Söru á píanóinu föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Rúnni Júl og
Tryggvi Hubner verða hjá okkur í kvöld.
Hvernig væri að kíkja?
Þaö er vissara að
panta borö um helgar.
Helgarsteikurnar
okkar eru gómsætar.
Smáréttaseðillinn sí-
vinsæli og góöar
pizzur.
bairinn
TJARNARGOTU 31a