Víkurfréttir - 06.07.1989, Qupperneq 15
MiKun
juiUt
Kampakátir Bílbótarbræður fagna sigri utan við Eikagrill í
Reykjavík. (F.v.) Halldór Sigurjónsson og Ólafur Sigurjónsson.
Ljósmyndir: Gunnlaugur Rögnvaldsson
Bremsulausir
Bílbótarbræður
sigruðu aftur!
- Eru komnir með örugga forystu í
íslandsmeistarakeppninni í ralli
Suðurnesjarallararnir Ólaf-
ur og Halldór Sigurjónssynir
sigruðu í annari rallkeppninni
í röð um sl. helgi, er þerir fóru
með sigur af hólmi í Eikagrills-
rallinu. Halldór Sigurjónsson
sagði í samtali við blaðið að
þetta hefði verið skemmtileg
keppni. Þeir bræður náðu for-
ystunni strax á fyrstu leiðun-
um. Voru með langbestu tím-
ana á fjórum fyrstu leiðunum
og héldu fyrsta sæti alla
keppnina. Aðallega var ekið
um Suðurlandsundirlendið.
„Við ætlum okkur að keppa
í allt sumar og leggjum allt í
sölurnar. Við erum þegar
komnir með gott forskot í
keppninni um Islandsmeist-
aratitilinn," sagði Halldór.
Hvernig gekk keppnin um
síðustu helgi?
„Þetta gekk allt eins og í
sögu. Að vísu ókum við
bremsulausir fyrstu tvær leið-
irnar og heddpakkningin fór
hjá okkur um miðja keppnina,
en bíllinn komst þó á enda og
við lukum keppni án stór-
óhappa,“ sagði annar rall-
bróðirinn, Halldór Sigurjóns-
son, að endingu.
Keppnisbíll þeirra bræðra í rykmekki á sérleið við Gunnarsholt, þar
sem þeir settu nýtt hraðamet.
Fimmtudagur 6. júlí 1989 15
Hörpudeildin í knattspyrnu, 1. deild:
ÍBK-Fylkir
á Keflavíkurvelli, sunnudaginn 9. júlí kl.20.
ÍBK vann sinn
fyrsta sigur um
síðustu helgi.
Fjölmennum á
leikinn og
hvetjum Kefl-
víkinga til
sigurs!
Knattspyrnuráð
Keflavíkur
Knattborðsstofa Suðumesja:
Heimsklassa snóker-
spilarar kenna í Keflavík
Nú er nýafstaðið heims-
meistaramót unglinga í snók-
er, sem haldið var hér á landi,
nánar tiltekið í íþróttahúsinu
við Strandgötu I Hafnarfirði.
Mótið, sem stóð í 10 daga, fór
mjög vel fram og má með
sanni segja að framkvæmd
þess hafi verið þeim til sóma
sem að stóðu. Eitt var það sem
kom á óvart í þessu móti en
það var í hversu háum gæða-
flokki spilararnir, margir
hverjir, voru. Það er viðtekin
venja að sá sem sigrar á ungl-
ingameistaramótinu fari að
því loknu beint í atvinnu-
mennsku í íþróttinni, en að
loknu þessu móti mætti búast
við að efstu 4-5 eigi erindi inn í
hinn harða heim atvinnu-
mennskunnar. Eitt heimsmet
var sett á mótinu en það er
kallað þegar spilari nær að
skora 147 stig í einni lotu. Það
var Gary Hill sem þeim glæsi-
lega árangri náði, I leik sínum
við Gunnar Adam Ingason.
Dómari í þessari viðureign var
enginn annar en Börkur Birg-
isson, eigandi Knattborðs-
stofu Suðurnesja, en sam-
kvæmt lögum Alþjóða Snók-
ersambandsins fæst heimsmet
ekki staðfest á móti nema af al-
þjóðlegum dómara, en þaðvar
Börkur ekki fyrir þetta mót.
Var því unnið í því að fá Börk
viðurkenndan sem slíkan og
það tókst og þá eingöngu sök-
um mikillar reynslu Barkar
sem dómara. Hann fékk því
skírteini og heimsmetið fékkst
skráð í bækur. Auk Gunnars
Adams léku þrír aðrir kepp-
endur frá Suðurnesjum á mót-
inu, þeir Ragnar Omarsson,
Guðbjörn Gunnarsson og
Halldór Már Sverrisson.
Tveir af þátttakendum
þessa móts eru nú væntanlegir
hingað til Keflavíkur, þar sem
þeir munu leiðbeina áhuga-
sömum spilurum í að ná sem
bestum tökum á íþróttinni, því
það er eins með snóker eins og
svo margar íþróttir, að ef ein-
staklingurinn nær góðum og
réttum tökum á undirstöðuat-
riðunum, þá má eiga von á
mun betri árangri. Þessir tveir
snókersnillingar eru þeir Troy
Shaw, sem lenti í 3.-4. sæti, og
Oliver King, en hann hafnaði í
'5.-8. sæti, báðir frá Englandi.
Eru þeir báðir spilarar i há-
gæðaflokki.
Kennslan á Knattborðs-
stofu Suðurnesja hefst mánu-
daginn 10. júlí og verðurkennt
alla þá viku og endað á móti
milli þátttakenda síðasta dag-
inn, sunnudaginn 16. júlí.
Kennt verður í tvo tíma á dag
og verður hægt að fá hvort
tveggja, dag- eða kvöldtíma.
Það skal tekið fram að kennsla
þessi er jafnt fyrir byrjendur
sem lengra komna.
Skráning þátttakenda er á
Knattborðsstofu Suðurnesja
og er áhugasömum bent á að
láta skrá sig sem fyrst svo hægt
sé að raða niður I námskeiðið.
Námskeiðið kostar kr. 3500
fyrir 16 ára og yngri en kr.
5000 fyrir fullorðna (eldri en
16 ára).
)y Shaw hefur skorað tvisvar sinnum 147 stig
oftar en 500 sinnum 100 stig.
Oliver King hefur einu sinni skorað 147 stig og
oftar en 400 sinnum 100 stig.