Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.06.1990, Side 12

Víkurfréttir - 07.06.1990, Side 12
12 4- Fréttir Vikurfréttir 7. júní 1990 Soroptimistaklúbbur Keflavíkur 15 ára: STÓRGJÖF TIL SJÚKRAHÚSSINS í tilefni af 15 ára afmæli Sor- optimistaklúbbs Keflavíkur hafa fclagskonur gefið Sjúkra- húsi Keflavikurlæknishéraðs hársnyrtitæki eða allt sem þarf til einnar hársnyrtistofu. Gjöl'in til sjúkrahússins er til minningar um tvo af stofn- félögum Soroptimistaklúbbs Kellavíkur, þær Ragnheiði Brynjólfsdóttur, Ijósmóður, og Valgerði Pétursdóttur, matráðskonu, en þærstörfuðu lengst af sinni starfsævi við Sjúkrahús Keflavíkurlæknis- héraðs. Andvirði gjafarinnar er vcl á 300 þúsund krónur. Einnig afhentu félagar úr klúbbnum fyrsta eintakið af bæklingi, sem gefinn hefur verið út í tilefni af lesári Sam- einuðu þjóðanna. Soropti- mistar afhenda öllum börnum er fæðast á þessu ári slíkan bækling. Jóhannes Sigurðsson Almannavarnir Suðurnesja: Jóhannes Sigurðsson framkvæmda- stjóri Almannavarnarnefnd Suður- nesja hefur ráðið til sín starfs- kraft. Var það gert á fundi með björgunar- og hjálparaðilum í Sandgerði í síðustu viku. Hefur Jóhannes Sigurðs- son, varaslökkviliðsstjóri, ver- ið ráðinn framkvæmdastjóri Almannavarna Suðurnesja. Er um að ræða 10% stöðugildi sem felst m.a. í því að halda saman upplýsingum um allan mannafla í hjálparliðssveitum almannavarna á Suðurnesj- um. Er Jóhannes ráðinn frá og með 1. júní sl. Bióma- markaður í Ytri Njarðvík Hinn árlegi blómamarkað- ur Systrafélags Ytri Njarðvík- urkirkju verður haldinn nú á laugardaginn og hefst kl. 13 við kirkjuna. Þarna verður til sölu sumarblóm, runnar, tré og fjölær blóm, ásamt blómstrandi pottablómum. Agóðinn af sölunni rennur til Ytri Njarðvíkurkirkju og því hvetja þærsysturfólk til að koma og kaupa blóm, en jafn- framt verður heitt á könnunni. Viðbrögð við eldgosi á Reykja- nesi æfð Fyrirhugað er að halda æf- ingu í haust á vegum Alnianna- varna Suðurnesja í viðbrögðum við cldgosi á Reykjanesskagan- um. Mun æfingin taka viku- tíma. Kom fram á fundi með Al- mannavarnanefnd Suðurnesja í siðustu viku að æfingin verð- ur svokölluð skrifborðsæfing. þ.e. æfingin er ekki úti á vett- vangi. Stella Olsen afhendir Arndísi 7'óinasdóttur „hárgreiðslustofuna". l.jósm.: hbh ATVINNA Vantar vana smiði í tímabundið verkefni. Mælingavinna. Upplýsingar í síma 13930 og 14211 eftir kl. 18. FJÖLIN SF. Atvinna - Vaktavinna Vantar starfskraft í Pulsuvagninn. Ekki sumarafleysingastarf. Vaktavinna. Upp- lýsingar aðeins gefnar á staðnum. Pulsuvagninn Dagvistarfulltrúi Staða dagvistarfulltrúa á félagsmálastofnun Keflavíkur er laus til umsóknar. Askilið er að umsækjendur liafi fóstrumenntun. Staðan veitist frá 1. júlí 1990. Upplýsingar um stöðuna eru veittar hjá dagvistarfulltrúa, í síma 11555 alla virka daga. Skriflegar umsóknir þurfa að bcrast félagsmálastjóra fyrir 15. júní nk. Félagsmálastjóri Keflavíkurbæjar Guðrún Jónsdóttir aflicnti Guðrúnu F. Stefánsdóttur fyrsta bækl- inginn. Skrifstofustarf Óska eftir að ráða vana manneskju til skrif- stofustarfa. Hlutastarf til að byrja með. Góð laun fyrir góðan starfskraft. Ahugasamir komi í viðtal að Hrannargötu 4, Keílavík, milli kl. 17 og 19, 11. og 12. júní og tali við Ólaf. Norðurfiskur hf. Dómritarastarf-Keflavík Laust er til umsóknar starf dómritara við embættið að Vatnsnesvegi 33 í Keflavík frá og með 1. júlí 1990. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg og tölvukunnátta. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar undir- rituðum, sem veitir allar upplýsingar um starfið fyrir 15. júní 1990. Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu. Jón Eysteinsson (sign).

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.