Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.06.1990, Side 13

Víkurfréttir - 07.06.1990, Side 13
13 Sveitarstjórnarmál Yíkurfréttir 7. júní 1990 Breytingar breyt- inganna vegna Opið bréf til Þóru Bragadóttur í 3. sæti H-listans í Vatnsleysustrandarhreppi Sæl vertu Þóra! í síðasta tölublaði Víkur- frétta fyrir kosningar, birtist greinarkorn eftir þig þar sem kastað er fram ýmsum stað- hæfingum. Þar sem mér er málið að sumu leyti skylt, finn ég mig knúna til að svara þér. Það skal tekið fram að við L- lista menn ákváðum allir sem einn að elta ekki ólar við gróu- sögur og óhróður úr smiðju ykkar H-lista manna fyrir kosningar, þannig að nú er ég ekki bundin af því lengur. Þú byrjar greinina á að hæð- ast að framboði L-listans fyrir nýafstaðnar kosningar, með því að setja nafn listans innan gæsalappa og gefur þar með í skyn að ekki hafi verið staðið að framboðinu með lýðræðis- legum hætti. Sannleikurinn er hins vegar sá, eins og þeir vita sem skilja hvað orðið lýðræði merkir, að haldið var prófkjör þar sem allir kjörgengir ibúar gátu gef- ið kost á sér og allir kjörgengir íbúar gátu kosið í og raðað á listann. Þar komu m.a. fram- bjóðandi af H-listanum, mak- ar frambjóðenda og afkvæmi svo og helstu áróðursmaskín- ur ykkar H-lista manna. Ja, ef þetta er ekki lýðræði þá er það ekki til. En þú Þóra, hefur nú hingað til verið kennd við annað fyrir- bæri sem hefur verið nefnt ein- ræðið í Kreml, þannigað þér er nokkur vorkunn. Síðan talar þú fjálglega um félags- og æskulýðsmál og seg- ir algjöra stöðnun hafa ríkt hér í þeim málum, undir stjórn oddvitans. Hingað til hafa fimm menn setið í hrepps- nefnd og ættu þeir þá allir að sitja undir sömu ásökunum og er þá efsti maður H-Iistans ekki undanskilinn. Eitt dæmi um aðgerðaleysi oddvita: Fyrir tveimur árum gekk hann persónulega (ekki i nafni oddvita) í flest fyrirtæki í hreppnum og safnaði um hálfri milljón króna til að koma íþróttavellinum í viðun- andi ástand, þ.e. láta leggja á hann toppefni svo hann yrði nothæfur. Hvar var ykkar maður þá, Þóra? Ennfremur reyndi hann ítrekað að fá fólk til að taka við forystu í skátastarfinu sem hefur legið niðri um langan tíma. Þá var tækifærið Þóra, að láta verkin tala, þaðdugirekki að kvarta og kveina og sitja svo með hendur í skauti sjálf. Þetta á nú ekki að vera nein lofrulla um oddvitann, heldur þörf áminning til allra þeirra sem vilja eingöngu sjá óvin- sælu málin sem oddviti hefur þurft að vinna að, sem for- svarsmaður hreppsnefndar. Loks talar þú um skrifstofu- húsnæði hreppsins og segir það hafa verið í forgangi fyrir öðrum málaflokkum. Þóra! Þú sem kaupfélags- nefndarmaður ættir nú að vita hvers vegna m.a. var ráðist í byggingu þjónustumiðstöðv- arinnar. Til að hressa upp á minni þitt (þú hefur kannski ekki mætt á fundina?): Kaupfélaginu hafði verið Sigrún Skæringsdóttir. sagt upp húsnæði sínu og vará hrakhólum, treysti sér ekki til að fjárfesta í viðunandi versl- unarhúsnæði vegna taprekst- urs á versluninni í Vogum. Jafnvel íhugaði stjórnin að Ieggja alfarið niður verslun á staðnum á þeirra vegum. Þá tóku sig til áhugamenn um betra mannlíf í sveitarfél- aginu, sem skynjuðu hvílíkt rothögg þaðerfyrireitt byggð- arlag að missa einu verslun staðarins. Mikil vinna lá á bak við þetta framtak, sem ieiddi til þess að húsið var byggt, sveitarfélaginu til sóma, með þeirri starfsemi sem þar er. Til að gera þetta kleift, þurftu allir aðilar að ná sam- stöðu og taka höndum saman. Því tók hreppsnefnd þá ákvörðun að vera með til þess að leggja sitt af mörkum, svo versluninni yrði ekki lokað og um leið að komast í sómasam- legt húsnæði. Þannig greiddi hreppurinn sinn hlut í húsinu í janúar 1988: Með gatnagerðargjöldum v/ Iðndals 2 og 4 kr. 2.080.985 (35,6%). Seldar eignir (gamla skrifstof- an o.fl.) kr. 1.250.000(21,4%). Greitt með peningum kr. 2.513.432 (43,0%). Samtals kr. 5.844.288. (100%). Þess má geta að sú upphæð sem hreppurinn greiddi í pen- ingum jafngildir leigugreiðsl- um til 12 ára á húsnæði vegna bókasafns, skjalageymslu, og fundarherbergi sem hreppur- inn hafði á leigu. Með þessu var versluninni borgið og er það vel, a.m.k. fyrir þá sem versla heima og þá sem komast ekki af bæ, t.d. eldri borgarar. Það hljóta allir að vera sammála þvi. Mér er til efs að ef svona hefði ekki verið staðið að mál- um væri umrædd bygging og sú þjónusta sem þar er ekki til staðar. Þetta er nú varla nein spurning. Jæja Þóra, greinin þín var ágæt, fáar stafsetningarvillur og framsögn þokkaleg, en efn- ið og útfærslan sérkennileg og sýnir hvorki víðsýni né þekk- ingu á þeim málefnum sem þú tókst til umfjöllunar, læt ég skólamál og leikskólann liggja á milli hluta. Eitt að lokum, sýndu nú kjósendum þínum að þú sért verðug kosningarinnar og að þú náðirekki kjöri eingöngu af því þú ert kona, því það dugir ekki eitt og sér. Vogum, 31. maí 1990. Sigrún Skæringsdóttir. Sendum sjó- mönnum bestu kveðjur í tilefni sjómanna- dagsins. ISLANDSBANKI Sjómannadagurinn DAGSKRA Sjómannadagsins í Keflavík-Njarðvík, sunnudaginn 10. júní Kl. 9:00 íslenski fáninn dreginn að húni við Minnismerki sjómanna og við höfnina. Kl. 11:00 Sjómannamessa í Keflavikurkirkju. Kl. 12:30 Skemmtisigling með börn. Farið verður bæði frá Keflavík- ur og Njarðvíkurhöfn, en aðeins komið að i Keflavík. Börn fá ekki aðgang nema i fylgd með fullorðnum. Kl. 14:00 HÁTÍÐARHÖLD VIÐ HÖFNINA: 1. Hátíðarræða. - Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands íslands. 2. Aldraðir sjómenn heiðraðir. 3. Skemmtiatriði. 4. Kappróður. 5. Stakkasund, koddaslagur og reiptog. KAFFIVEITINGAR: Kaffi verður selt á Glóðinni, neðri sal. Erfólk hvatt til að notfæra sér staðinn. Opið verður á Glóðinni kl. 15-18. Merki sjómannadagsins verða afhent sölubörnum á Vikinni kl. 10:00 á sjómannadaginn. - Góð sölulaun. SJÓMANNADAGSRÁÐ

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.