Víkurfréttir - 07.06.1990, Side 19
19
r
Ur ýmsum áttum
Víkurfréttir
7. júní 1990
Það er ekki plássleysið á nýja vínveitingastaðnum í Stapa í Njarðvík.
borðið.
Gísli Mauksson er fyrir innan bar-
Ljósm.: hbb
Stapi, Njarðvík:
Pöbb opnar á
laugardagskvöld
Vínveitingastaður verður
opnaður í félagsheimilinu
Stapa í Njarðvík á laugardags-
kvöldið. Er það fyrsti vínveit-
ingastaðurinn í Njarðvík.
Gísli Hauksson, rekstrarað-
ili félagsheimilisins Stapa,
sagði í samtali við blaðið að
pöbbinn verði fyrst um sinn
einungis opinn á laugardags-
kvöldum frá kl. 20-03. „Eg
ætla að sjá hvernig þetta verð-
ur og hvort að grundvöllur sé
fyrir því að hafa opið á öðrum
tímuni," sagði Gísli.
Það stendur mikið til í Stapa
á næstunni. A opnunarkvöldi
pöbbsins verður sjómanna-
dansleikur þar sem hljómsveit
Birgis Gunnlaugssonar leikur
fyrir dansi. Dansleikurinn
mun hefjast klukkustundu fyr-
ir miðnætti.
Stuðmenn eru einnig vænt-
anlegir í Stapa um aðra helgi
með stórdansleik og 22. júní
verður Sálin hans Jóns míns.
Unglingar ættu að fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð í suniar
því á föstudagskvöldum
stendur til að halda unglinga-
dansleiki, þó svo skýrar línur
séu ekki um það ennþá.
Norræna félagið - Nordjobb:
Leitað húsnæðis
Eins og undanfarin sumur,
þá mun Norræna félagið í
Keflavík, í samvinnu við
NORDJOBB, taka á móti
ungu fólki á aldrinum 19-26
ára frá hinum Norðurlöndun-
um. Að þessu sinni koma 6
ungmenni og hafa þau öll
fengið atvinnu.
Norræna félagið leitar nú að
húsnæði hér í Keflavík/Njarð-
vík til leigu í 6-8 vikur frá og
með 15. júní fyrir þetta unga
fólk.
Nú í sumar verða 10 ung-
menni af Suðurnesjum á veg-
um félagsins við vinnu í vina-
bæjum Keflavíkur á hinum
Norðurlöndunum og eru 3
stúlkur þegar farnar utan.
Til að leysa húsnæðisvanda
þess unga fólks sem hingað
kemur, treystir Norræna félag-
ið á aðstoð þeirra bæjarbúa
sem aðstöðu hafa.
Nánari upplýsingar hjá
eftirtöldum: Guðný Gunnars-
dóttir, sími 15570; Björn Stef-
ánsson, sími 11770; Ólafur
Björnsson, sími 11216; Eyjólf-
ur Eysteinsson, sími 1 1064.
Knattspyrnuúrslit
• Hafnamenn unnu góðan
sigur á Augnabliki í 4. dcild.
Ólafur Sólmundsson skoraði
2 fyrir Hafnir, Hallgrímur
Sigurðsson eitt og Augnablik
hjálpaði til með einu sjálfs-
marki.
• Njarðvíkingar sigruðu
Fjölnismenn örugglega á
gervigrasinu í Laugardal með
4 mörkum gegn engu.
• Keflvíkingar nældu sér í tvö
dýrmæt stig er þeir sigruðu
Selfyssinga á útivelli, 2:1.
Mörk IBK gerðu Marko Tal-
asic og Jóliann Magnússon.
• Siglfirðingar töpuðu sín-
um öðrum leik á Suðurnesjum
er þeir lutu í lægra haldi fyrir
Víði á fostudagskvöldið í
Garðinum, 0:1. Mark Víðis
gerði bróðir þjálfarans, Stein-
ar Ingimundarson.
• Grindvíkingar töpuðu fyr-
ir Breiðabliki í Kópavogi, 1:2.
Mark UMFG gerði Einar
Daníelsson.
Þvottamaður
Oskum eftir að ráða þvottamann til starfa.
Verður að liafa rútupróf. Upplýsingar í af-
greiðslu SBK eða í síma 15551.
Sérleyfisbifreiðir
Keflavíkur
Vélstjóri óskast
Vélstjóra vantar á Eldeyjar-Hjalta. Upplýs-
ingar í símum 15111, 985-27052 eða 68413.
Eldey hf.
íþrótta- og leikjanám-
skeið í Njarðvík 1990
11. júní n.k. byrjum við með námskeið eins og verið hefur undanfarin ár.
íþrótta- og leikjanámskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6-12 ára og
standa yfir í 3 vikur. Fyrra námskeiðið hefst 11. júní og lýkur 29. júní, en
seinna námskeiðið hefst 2. júlí og lýkur 20. júlí. Kennt verður frá mánu-
degi til föstudags.
6- 7 ára eru frá kl. 13.00-15.00
8-12áraeru fra kl. 10.00-12.00
Kennd verða undirstöðuatriði í ýmsum íþróttagreinum. Auk þess verður
farið i gönguferðir, sund, þríþrautarkeppni, farið í golf o.fl. o.fl.
Kennsla fer fram bæði á íþróttasvæðinu í Njarðvík og inni í íþróttahús-
inu i Njarðvík. Mæting er alltaf við íþróttavallarhúsið í Njarðvík (við Vall-
arbraut) og þar fer innritun fram laugardaginn 9. júní frá kl. 10.00-12.00.
Þátttökugjald (greiðist við skráningu) er 1700 krónur og veittur er
systkinaáfsláttur.
4 íþróttakennarar ásamt aðstoðarfólki sjá um íþrótta- og leikjanám-
skeiðin. Þeir eru: Guðbjörg Finnsdóttir, Einvarður Jóhannsson, Ingvar
Guðmundsson og María Jóhannesdóttir.
Iþróttaráð Njarðvíkur
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Njarðvíkur
N/ Lögtaksúrskurður
Að beiðni Gjaldheimtu Suðurnesja úrskurðast hér með að lögtök
geta farið fram vegna vangoldinnar staðgreiðslu opinberra
gjalda í Keflavíkurbæ, Njarðvíkurbæ, Grindavíkurbæ, Miðnes-
hreppi, Gerðahreppi, Vatnsleysustrandarhreppi og Hafna-
hreppi. Þ.e. vanskilafé, álag og sektir ásamt dráttarvöxtum og
kostnaði fyrir tímabilin 01., 02., 03. og 04. 1990 (janúarmánuður
til og með aprílmánuður 1990), á grundvelli 1. tl. 1. gr. og4. gr.
laga nr. 29/1885 og 29. gr. laga nr. 45/1987, sbr. 14. gr. laga nr.
90/1987.
Lögtök geta farið fram að 8 dögum liðnum frá birtingu úrskurð-
ar þessa ef ekki hafa verið gerð skil fyrir þann tíma.
Bæjarfógetinn í Keflavík, Njarðvík og Grindavík.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Árni Haukur Björnsson, ftr. (sign).