Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.02.1991, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 14.02.1991, Blaðsíða 1
TAPAÐI VESKI MEÐ ALEIGUNNI Á JÁRNBRAUTARSTÖÐ ERLENDIS Tveir síðustu þátttakendurnir í Fegurðarsam- keppni Suðurnesja 1991 kynntir. • Sjá miðopnu ÞROTABÚ VEISLU HF. TEKUR KEFLWÍKURBÆR VEmNGAHÚSID Á LEIGU? í gær var búist við að skiptaráðandinn í Keflavík og bústjóri þrotabús Veislu h.f. fengju í hendur nýja matsgerð um eigur búsins og lista um hvaða eigur væru veðsettar og hverjar ekki. Að sögn As- bjöms Jónssonar hdl, sem jafnframt er bústjóri. er reikn- að með að eftir að aðilar hafi skoðað matsgerðina verði rætt við Keflavíkurbæ um hugs- anleg kaup eða sölu á eignum búsins. Sagði hann að það væri stefnan að koma húsinu sem fyrst í gang á ný. Gangi saman við Keflavíkurbæ, mun bæj- arráð taka ákvörðun um það hvort húsið verði leigt eða selt rekstraraðila. Nánar er fjallað um málið í molum í dag, s.s. hverjir hafa verið orðaðir sem hugsanlegir áhugaaðilar um rekstur hússins. FIMMTI KEFLVÍKINGURINN TIL KR? TEKUR GUÐNIVIÐ ÞJÁLFUN? KR-ingar hafa að undan- fömu leitað þjálfara í stað Ian Ross og meðal þeirra sem þeir hafa augastað á er Keflvík- ingurinn Guðni Kjartansson. Guðni er sem kunnugt er einn af þekktustu þjálfurum þessa lands og fékk nýlega al- þjóðlegt þjálfaraskírteini frá enska knattspymusamband- inu. Hann stundar nú nám við íþróttaháskólann í Köln, en kennslu lýkur í næsta mán- uði. Fari Guðni í raðir KR-inga verður hann fimmti Keflvík- ingurinn sem er innan þeirra raða að þessu sinni. Hinir eru Ragnar Margeirsson, Sigurð- ur Björgvinsson, Ólafur Gott- skálksson og Gunnar Odds- son.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.