Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.02.1991, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 14.02.1991, Qupperneq 2
2 Fréttir Víkurfréttir 14. febrúar 1991 Aðalfundur Eldeyjar á sunnudag: Rekið með hagnaði á síðasta árí Boðað hefur verið til aðal- fundar hjá útgerðarfélaginu Eldey h.f. fyrirdvö ár, þ.e. 1989 og 1990. Verður fundurinn haldinn á Glóðinni næsta sunnudag. Auk venjulegra aðalfund- arstarfa, leggur stjórnin fram tillögu að lágabréýtingum, til að rýmka tilgang fyri,rtækisins og markmið. Reikningar félagsins fyrir árin 1989 og 1990 liggja. frammi á skrifstofunni Hafn- argötu '80, fyrir hluthafa. Sam- kvæmt þeim k.emur í ljós að fé- lagið var rekið með hagnaði á síðasta ári, en • undanfarin ár hefur verið taþ. Vegna tapsins mun þó ekki greiðast tekju- slcattur á árinu 1991 eða eins og segir í reikningum félagsins urn skattamál: „Félagið mun ekki greiða lekjuskatt á árinu 1991 þrátt fyrir hagnað á árinu 1990 vegna ójafnaðra tapa frá fyrri áfum. Ojöfnuð töp í árslok 1990 sem heimilt er að flytja áfram sam- kvæmt skattalögum nemur kr. 123.237.317 og hefur hagnaður ársins 1990 þá verið færður til ' lækkkunar á yfírfæranlegum töpum". ,. Á síðasta ári gerði Eldey h:f. út fjögur fiskiskíp, þ.e. tveir bátar voru teknir til leigu auk eigin skipa. St'ðar í mánuðinum mun fjölgaenn í skipafiotanum er togari sem keýptur hefur verið frá Dalvík bætist í hóp- inn. Þorrablót Þorrablót Styrktarfélags aldraöra á Suö- urnesjum verður haldiö í Stapa, sunnu- daginn 17. feb. kl. 12 á hádegi. Þorrablót félagsins hafa ætíö verið vel sótt af eldri borgurum. Enn eru lausir miöar fyrir þá sem áhuga hafa, og er þeim bent á aö hringja í síma 46568-46544 eöa 11328 og panta miða. Hcr í þcssu stóra húsi áætlar Vatnarr h.f. að stofnsetja átöpp- unarverksmiðju fyrir islcnskt vatn til útflutnings. Ljósm.: epj. Atöppunarverk- smiðja fyrir vatn Nú stendur yfir undirbúningur að uppsetningu átöppunarverk- smiðju fyrir íslenskt vatn til út- flutnings, sem staðsett yrði við Fitjabraut í Njarðvík. Er það fyr- irtækið Vatnarr h.f., sem stendur að þessu. Áð sögn Bjöms Emilssonar hjá Vatnarr h.f., er áætlað að hefja reksturinn um leið og Vatnsveita Suðurnesja er komin v gagnið. Hin nýja vatnsveita er m.a. ástæðan fyrir staðsetning- unni hér, svo og náiægð við Keflavíkurflugvöll og góða höfn. Sagði Björrt að nú væru gíf- urlegir markaðir að opnast m.a. vegna Persaflóastríðsins og því væri eftirspurnin mikil. Mun fyrirtækið því notast á næstunni við þær átöppunarverksmiðjur sem til eru í landinu til að svara þessari eftirspurn. meðan fyrir- tækið hér er ekki komið í gagn- ið. Hefur verið gerður samningur við Trausta Einarsson um að nýta hús hans við Fitjabraut. Jafn- framt hefur verið óskað eftir því við stjórn Hitaveitu Suðumesja að hún tæki þátt í þessu verkefni. Á fundi stjómar Hitaveitunnar 25. jan. sl. var eftirfarandi bókað um málið: „Stjórn telur þátttöku í slíku fyrirtæki ekki samræmast hlut- verki hitaveitunnar. Hinsvegar lýsir hún ánægju sinni yftr þessu framtaki". Grindavík: Sjó- varnar- garðar eyði- lögðust Töluverðar skemmdir urðu á sjóvamagörðum við Grindavík í óveðrinu sem gekk yftr landið sunnudaginn 3. febrúar sk Sjóvamagarður við Isólfs- skála austan Grindavíkur rofn- aði á 150 metra kafla og garður við iitla Hópsnes skemmdist á um 200 metra kafla. Ljóst er að kostnaður við viðgerðir verður mikill. Má þar nefna að að 2-3 milljónir- kostar að bæta út sjó- vörnum í Gerðahreppi. Vandinn er hins vegar sá að ekkert fjár- magn fæst til framkvæmda, þar sem fjárveiting þessa árs fór til að greiða upp skuldir vegna skemmda sem urðu við Stokks- eyri og Eyrarbakka í veður- hamnum á síðasta ári. Kaupir Höfnin Keflavík-Njarövík, Sjöstjörnuhúsiö? Stíf fundahöld "Að sögn Péturs Jóhannssonar hafnarstjóra Hafnarinnar Kefla- vík-Njarðvík hafa að undanförnu verið stíf fundarhöld um hugs- anleg kaup hafnarinnar á húsum þrotabús Sjöstjörnunnar h.f. í Njarðvík, við Islandsbanka og Grindavíkurbær - Bæjarstjóri Fundarboð Bæjarstjórn Grindavíkur kaus Bjarna Andrésson, Eirík Tómasson og Sævar Gunnarsson til jjess að kanna grundvöll fyrir byggingu og rekstri húss á lóð ísfélagsins h.f., á Miðgarði. Er hér með boðaður almennur fundur til að kynna málið. Verður fundurinn haldinn í veitingahúsinu Vör, Grindavík, mánudaginn f8. febrúar nk. kl. 20.30. Á fundinum verður lögð fram tillaga um kosningu nefndar, sem undirbyggi stofnfund félags sem ætti og ræki fyrirhugað hús. Unnið verði undir kjör- orðinu: HÚS FYRIR HAUSTIÐ. Grindavík 12. febrúar 1991. F.h. nefndarinnar, bæjarstjóri. aðra þá aðila sem málið varðar. Er málið nú komið á þann farveg að leitað hefur verið eftir því við bæjarstjórnir Keflavíkur og Njarðvíkur, hvort þær sam- þykki kaupin og veiti heimild til Íántöku með bæjarábyrgð fyrir kaupunum allt að 70 milljónir. Fyrir liggur áhugi tveggja hópa um kaup á frystihúsinu af höfninni og síðan myndu skemmurnar leigjast eða seljast Fiskmarkaði Suðurnesja, fyrir gólfmarkað o.fl. Þessir hópar eru annars vegar Haraldur Jónsson sem kenndur er við Sjólastöðina og Gísli Erlendsson í Rekstr- artækni og hinsvegar Jón Gunn- arsson og félagar í íslenskum gæðafiski h.f. í Njarðvík. Enn hafa þó engin bein tilboð komið frá aðilum. Kom fram á bæjarstjórnar- fundi í Keflavik í síðustu viku að ef af yrði mætti tryggja að bæj- argjöld rynnu til hafnarinnar, en ekki beint til Njarðvíkurbæjar eingöngu. Er málið nú í frekari skoðun í bæjarráðum beggja bæjarfélaganna. Ástæðan fyrir áhuga hafnarinnar, er að með til- komu hússins í rekstur á ný, yrðu umsvifin meiri og eins ef fisk- markaðurinn kæmi þar upp þeirri aðstöðu sem rætt hefur verið Takist samningar verður húsakostur Sjöstjörnunnar sálugu nýttur seni frystihús og fiskmarkaður. Ljósm.: epj. STÆRSTA FRÉTIA-OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Útgefandi: Víkurfréttir hf. —^ Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717, 15717. Box 125, 230 Keflavík. Póstfax nr. 12777. - Ritstjórn: Emil Páll Jónsson, heimas. 12677, bílas. 985-25917. Páll Ketilsson. heimas. 13707, bílas. 985- 33717. - Fréttadeild: Emil Páll Jónsson, Hilmar Bragi Bárðarson. - Auglýsingadeild: Páll Ketilsson. - Upplag: 5800 eintök sem dreift er ókeypis um öll Suðurnes. - Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða og Upplags- eftirliti Verslunarráðs. - Eftirprentun, hljóðritun. notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Umbrot, filinuvinnu og prentun: GRÁGÁS hf. Keflavík.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.