Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.02.1991, Síða 6

Víkurfréttir - 14.02.1991, Síða 6
6 ALLT FULLT AF NÝJUM VÖRUM Ódýr vinnufatnaður Gallabuxur st. 30-42 kr. 1690.- Flauelsbuxur kr. 1520.- Vinnuskyrtur kr. 895.- Herradúnúlpur kr. 6100.- Ódýr nærföt og fóðraðir samfestingar. Sjófatnaður, stígvél, vettlingar og fleira Herragallabuxur í stórum númerum. Nýkomnir þykk- ir jogginggallar meö rennilás og hettu. st. 8-16 kr. 3990,- st. S-XL kr. 4990.- Ódýrir krumpugallar. Dömustæröir kr. 5400,- Telpnastæröir kr. 4990.- Opið alla daga til kl. 23 SANDGERÐI Sími 37415 Keflavíkurbær óskar eftir að ráða í eftirtalin störf að Tjamargötu 12 (skrifstofur bæjarins); -Matráðskonu, vinnutími frá kl. 8 til 14, alla virka daga. -Starfsmann í bókhald. -Sumarafleysingarstarf í afgreiðslu. Laun eru samkvæmt kjarasamningum S.T.K.B. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu bæjarins að Hafnargötu 12. Umsóknarfrestur er til 20. febrúar vegna starfa matráðskonu, en l. mars 1991 vegna annarra starfa. Nánari upplýsingar gefur bæjarritari. Bæjarritarinn í Keflavík A beininu Umsjón: Emil Páll „Þá urðu margir reiðir og sárir“ -Jón Gunnarsson, oddviti Vatnsleysustrandarhrepps, tekinn á beinið um ólguna milli núverandi og fyrrverandi valdhafa í hreppsnefndinni, álmálið og sameiginleg sveitarstjórnarmál Við síðustu sveitarstjórnar- kosnin$>ar var meirihluta sveit- arstjórnarinnar í Vatnsle.vsu- strandarhreppi kollvarpað. Frá þeim tíma hafa menn orðið varir við mikil sárindi fyrrum valdhafa gegn þeim er nú tóku við. Oddviti nú er Jón Gunn- arsson, sem í raun liefði átt að vera oddviti í fvrri meirihluta vegna þess að þá var óhlut- Inmdin kosning og liann hafði mesta fylgið bak við sig. Þó fóru leikar svo aö hann varð í minnihluta þá. Gn skvldu þessi mál vera að gróa um heilt, eða halda þau áfram. Til að fá fregnir að því tókum við Jón Gunnarsson á beiniö um þessi mál, álmálið o.n. sem rak á fjörur okkar er unnið var að þáttagerð þessari. -Snvst ólgan um eitthvað persónulcgt milli vkkar Omars Jónssonar fyrrum oddvita? „Nei, í mínum huga er það ekki, en eins og oddvitakjörið fór eftir kosningar 1986, þá urðu margir reiðir og sárir. Það hefur ennþá áhrif á samstarfið". -Hvað heldur þú að hafi or- sakað það að ykkar listi felldi hans? „Aðallega (vennt. I fyrsta lagi: Hvernig oddvilakjörið fór í kosn- ingunum á undan. í öðru lagi: Við sem stóðum að óháða framboðinu gerðum alveg eins ráð fyrir að ná ekki meirihluta og unnum samkvæmt því. En Lýð- ræðissinnar hafi sofið á verðinum og talið sig nokkuð örugga með meirihlutann". -Nú hefur liann gagnrýnt það að sveitarstjórinn er jafnframt stjórnarmaður í þínu fvrirtæki. Er sú gagnrýni réttmæt? „Sú gagnrýni er algjörlega óréttmæt. þar sem fyrirtækið hef- ur engin samskipti við Vatns- leysustrandarhrepp. Öðru máli gegndi ef fyrirtækið væri staðsett í hreppnum. Allar upplýsingar sem ég hef afiað mér um þetta mál eru á einn veg, um að það sé ekkert óeðlilegt við þetta“. -Er full samstaða um álverið í sveitarfélaginu? „Eg hef ekkert orðið var við annað. Endanlegum samningum er ekki lokið og ómögulegt að sverja fyrir það að full samstaða verði um þá samninga, sem end- anlega nást. En þó hef ég enga ástæðu til að ætla annað". -Er það rétt að þið viljiö sjálfir fá allar tekjurnar af ál- verinu, en kostnaðurinn viö að fá það eigi að skiptast milli sveitarfélaganna á Suðurnesj- um? „Sem oddviti í Vatnsleysu- strandarhreppi er það skylda mín að gæta hagsmuna hreppsins út í ystu æsar. En að við séum að láta hin sveitarfélögin greiða allan kostnað við málið, en sjálfir sitja uppi með tekjurnar, er alrangt. Vatnsleysustrandarhreppur hefur verið tekjulægsti hreppur- inn á hvern íbúa undanfarin ár og ekki undarlegt þó við leitum allra leiða til að bæta úr því". -Á síðasta kjörtímabili, gagnrýndir þú SSS f.vrir litlar áhyggjur af atvinnumálum. Nú ert þú kominn sjálfur í forystu, því spyrjum við hvað hefur þú gert til að breyta skoðunum í þessum málaflokki? „Já. það má segja að mín gagnrýni hafi meira snúist um það að okkar menn á þingi haft ekki gætt hagsmuna Suðumesja- manna í þessum málaflokki. Tíminn frá kosningum hefur farið í samninga um álið og auðvitað yrði það mikil lyftislöng fyrir at- vinnulífið á Suðurnesjum ef það næði farsællega í gegn. Eg er á móti því að sveitar- félögin taki þátt í atvinnurekstri með beinum fjárframlögum. en auðvitað eigum við að aðstoða þau á annan hátt". -Nú hefur þú gefið kost á þér í eitt af efstu sætunum á lista Alþýðuflokksins fyrir alþingis- kosningar og gætir því hugs- aniega lent í nefndum eöa sem varaþingmaður. IVIátt þú eitt- livað vera að slíku? „Það er nú einu sinni svo um tímann, að menn fara misjafnlega vel með hann. Eg hefði ekki gefið kost á mér í þetta sæti. nema ég hefði tíma til að sinna því, sem fylgir því“. -Fyrir síðustu kosningar lof- uðu þið brevtingum á yfirstjórn Vatnsleysustrandarhrepps. Hvað hefur gerst í því máli? „Það er alveg rétt. við lofuðum breytingum á yfirstjórninni, en tókurn það alltaf skýrt fram að forsendan fyrir þeirri breytingu væri að álveri yrði valinn staður annarsstaðar en á Keilisnesi. Við höfum náð að spara nokk- uð í yfirstjórn hreppsins, en sú mikla vinna sem búið er að leggja í hafnar- og lóðasamninga vegna álversins, hefur bæði kostað tíma og peninga". -Með tilkomu álvers húist þiö viö fjölgun íbúa. Þarf ekki að gera eitthvað til að laða þá að, t.d. byggja sundlaug eða aðra félagslega þjónustuþætti? „Við búumst við fjölgun íbúa í kjölfar álvers og að sjálfsögðu þarf að bjóða þá þjónustu sem spurt er um. En það væri ábyrgðarleysi að ráðast í slíka framkvæmd nú, meðan að ekki liggur fyrir hvort af byggingu ál- vers yrði". -Þurfið þið ckki að auglýsa kosti þess að búa t sveitar- félaginu til að laða þangað fleiri íbúa? „Jú. við mættum örugglega gera meira af því að auglýsa, hvað gott er að búa í Vogum. Það verður bara að segjasl eins og er að sú mikla vinna sem verið hefur í álverssamningum hefur orðiðtil þess að ýmsirgóðir hlutir hafa setið á hakanum". -Hver er skoðun þín á sam- einingu sveitarfélaga á Suður- nesjum? „Eg tel að það verði mjög erf- itt, allavega á næstu árum að sameina sveitarfélögin á Suður- nesjum. Eg held að næsta stóra skrefið sem þurfi að stíga sé að gera Suðurnesin að sér kjör- dæmi. Það er ekki vafi á því að ef um það næðist samkomulag að sam- eina sveitarfélögin á Suður- nesjum. þá yrði það fjárhagslega hagkvæmt". -Að lokum. Hvaö er fram- undan? „Framundan er að Ijúka samn- ingum sem varða álver og af nið- urstöðum þess máls mun stefnan markast í málefnum Vatnsleysu- strandarhrepps. Hreppsnefnd mun þó ekki leggja árar í bát, þó ekki yrði af byggingu álversins og tjár- hagsáætlun fyrir árið 1991, gerir ekki ráð fyrir neinum tekjum af álveri. Samt sem áður hefur verið ákveðið að ráðast í byggingu nýs leikskóla, verið er að ljúka fram- kvæmdum í smábátahöfninni og verið er að bora nýja holu fyrir vatnsveitu hreppsins. Þetta era meiri framkvæmdir en verið hafa í hreppnum undan- farin ár“, sagði Jón Gunnarsson, oddviti Vatnsleysustrandarhrepps að lokum.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.