Víkurfréttir - 14.02.1991, Blaðsíða 9
9
Frá kynningarfundinum í Njarðvík
Ljósm.: hbb.
Kynningarfundur um stóriöjuframkvæmdir:
Vilja sveitarfélögin
Keilisnes h.f. í stað Eldeyjar?
Fréttir
Njarövík:
Seylu-
braut nú
Njarð-
arbraut
Nokkur ruglingur hefur verið
með götuheiti á vegkafla þeim
sem liggur frá Fitjum og að
tengivegi milli Reykjanes-
brautar og Seyluhverfis við
Ramma í Njarðvík. Er veg-
kaflinn var vígður á síðasta ári
var hann nefndur Njarðarbraut,
en fyrir var áður hluti af honunt
sem hét Seylubraut og var
Rammi og Víkurblóm sagt við
Seylubraut.
Hefur bæjarstjórn Njarðvíkur
nú tekið af skarið og ntun veg-
kaflinn heita hér eftir Njarðar-
braut eins og gamla Reykja-
nesbrautin í gegnum Njarðvík
heitir. Verða húsin tvö um-
ræddu, því eftirleiðis kennd við
Njarðarbraut, en tengigatan
milli Seyluhverfis og Reykja-
nesbrautar innan við Ramma
nefnast Seylubraut.
Þá eru að sögn Kristjáns
Pálssonar bæjarstjóra uppi
áform um að ljúka tengingu
Njarðarbrautar á Fitjum á þessu
ári. En sem kunnugt er vantar
tenginguna yfir síkið á Fitjum.
Undirbúningsnefnd sam-
starfsfyrirtækis um stór-
iðjuframkvæntdir hélt kynn-
ingarfund í félagsheimilinu
Stapa í Njarðvík á dögunum.
Þar fór fram kynning á störfum
nefndarinnar og tillögur að
stofnsamningi og samþykktir
lagðar fram. Þá var jafnframt
kynning á drögum að sam-
starfssamningi og könnun á
hlutafjárloforðum svo eitthvað
sé nefnt.
Fundarmenn voru jákvæðir í
garð stofnunar á verk-
takafyrirtæki því sem nú er rætt
um að koma á laggimar. Tóku
margir fundarmanna til máls og
tjáðu skoðanir sínar á málinu og
voru allir jákvæðir.
Jón Norðfjörð kom með þá
fyrirspurn á fundinum hvort
ekki væri betra að fá stétt-
arfélögin inn í fyrirtækið, frekar
en sveitarfélögin og var mót-
fallinn því að sveitarfélögin
tækju þátt í stofnun félagsins.
Ellert Skúlason tók næstur til
máls og kvaðst vera ósammála
Jóni. Sveitarfélögin ættu að
selja sinn hlut í Eldey og kaupa
í Keilisnesi hf. Eftir að þessi
orð féllu tók Ingólfur Bárð-
arson til máls og taldi mjög
mikilvægt að Suðumesjamenn
stæðu saman og stofnuðu
myndarlegt verktakafyrirtæki.
Undir lok fundarins tók
Friðfinnur Skaptason til máls
og sagði að undirbúnings-
nefndin myndi starfa áfram á
sama hátt og vinna að því að fá
fleiri aðila til þátttöku í fé-
laginu. Að lokum var samþykkt
að halda stofnfund eftir 4-6
vikur.
Víkurfréttir
14. febrúar 1991
Seldur til
Ólafsfjarðar
Sigurþór GK 43, 30 tonna
eikarbátur frá Grindavík. hefur
nýlega verið seldur til Ólafs-
fjarðar. Hefur hann fengið
nafnið Vala ÓF 2 og verið
leigður Eldey h.f.
Kemur hann í stað Guðvarðs
ÓF sem Eldey h.f. var áður með
á leigu. I molum í dag er nánar
fjallað um þessa útgerð, enda
nokkuð skondin saga um hana.
Umferðar-
áróður skilar
árangri
Á síðasta voru sendi um-
ferðamefnd Hafnahrepps
stjómendum og starfsmönnum
fyrirtækja á Reykjanesi harðort
bréf vegna mikils um-
ferðarhraða í gegn um þorpið.
Hótaði nefndin að kært yrði,
yrði ekki breyting á.
Skilaði bréf þetta þegar ár-
angri og má nú heita algjör
undantekning ef bíll frá fyrir-
tækjum í Hafnahreppi er ekið á
ólöglegum hraða í gegnum
þorpið. Þó eru þeir sem virða
hraðatakmörkin enn of margir,
enda er umferð í gegnum Hafnir
töluverð og hættan hefur jafn-
framt aukist vegna þess að litl-
um bömutrt hefur fjölgað að
sögn nefndarmanna.
Reflvíkingar
athiigið!
Vegna flutnings bæjarskrifstofu,
tæknideildar, félagsmálastofnunar
og húsnæöisnefndar aö Tjarnargötu 12,
2. hæö, veröa viÖkomandi skrifstofur
lokaöar frá hádegi fimmtudaginn
21. febrúar nk. en opna aftur aö
Tjarnargötu 12 föstudaginn
22. febrúar kl. 14.00.
NÝTT SÍMANÚMER VERÐUR 16700