Víkurfréttir - 14.02.1991, Qupperneq 14
14
IÞROTTIR
Víkurfréttir
14. febrúar 1991
HANDBOLTI
KEFLAVÍK í
1. DEILD!
YfirburÖarsigur á IR, 33-
24, tryggöi ÍBK-stúlkum sæti
í 1. deild kvennahandboltans
á næsta keppnistímabili. Stað-
an íhálfleik var 16-16.
Gísli Jóhannsson að-
stoðarþjálfari liðsins sagði að
leikurinn hafi verið einstefna
frá upphaft til enda og ein-
ungis fonnsatriði að ljúka
honum.
„Við ætlum okkur hins
vegar að sigra KR í Keflavík
á mánudagskvöldið", bætti
Gísli við.
Eva Sveinsdóttir skoraði 9
mörk, Þurý Þorkelsdótlir 8 og
Ingibjörg Þorvaldsdóttir gerði
6. Við óskum stúlkunum til
hamingju með þennan sigur
og vonum að sem llestir mæti
á mánudagskvöldið og hvetji
þær til sigurs gegn KR.
UMFN ÖRUGGT
í 4. SÆTI
Njarðvíkingar máttu sætta
sig við tap gegn HK í Njarð-
vík sl. miðvikudagskvöld. 36-
28 fyrir HK. Heimamenn
höfðu tveggja marka forskot
þegar 10 nn'nútur voru til
leikhlés, en þá var sem allur
kraftur væri á þrotum og and-
stæðingarnir nýttu sér það vel
og hólu stórsókn. Komust þeir
á lítils mótþróa í gegnum vörn
Njarðvíkinga og sérstaklega
áttu hornamennirnir hjá HK
greiða leið í gegn.
Þrátt fyrir slakan leik eru
Njarðvíkingar hins vegar ör-
uggir í úrslitakeppnina og eiga
því ennþá tækifæri lil að sýna
sitt besta. Hannes Leifsson var
besti maður Njarðvíkinga og
Óli Thordarsen skoraði
skemmlileg mörk í síðari
hálfleik. Einar Skaftason
varði vel á köflum og verður
ltann ekki sakaður um mörkin
36.
ÍBK í úr-
slitakeppnina
Keflvíkingar sigruðu Aft-
ureldingu með 22 mörkum
gegn 18 í 2. deild hand-
knattleiks kvenna í Mos-
fellsbæ á sunnudaginn. Með
sigri þessum tryggðu ÍBK-
stúlkur sér öruggt sæti í úr-
slitakeppninni.
Það verða því tvö lið frá
Suðurnesjum sem eiga eftir að
berjast um það hvort komist í
1. deild, en ljóst er að róðurinn
er erftður fyrir báða aðila.
Nafn þjálfara
misritaðist
I umfjöllun um leik hjá 3.
flokki kvenna IBK í hand-
knattleik hér í blaðinu á dög-
unum, misritaðist nafn þjálf-
ara stúlknanna. Var þjálfarinn
sagður heita Jón Júlíusson, en
hið rétta mun vara að hann
heitir Jón Júlíus Arnason. Er
hann beðinn velvirðingar á
misritun þessari.
Góöur árangur unglingaflokks ÍBK
Á síðasta keppnistímabili lenti
unglingallokkur IBK (leikmenn 20
ára og yngri) í öðru sæti Is-
landsmótsins í körfuknattleik. Lið-
ið lenti einnig í öðru sæti í bik-
arkeppni KKI. Fyrir þetta
keppnistímabil urðu miklar breyt-
ingar á liðinu. Þrír lykilmenn gengu
upp úr tlokkunum, tveir fóru til
náms í Bandaríkjunum og einn
leikmaður gekk til liðs við úr-
valsdeildarlið Snæfells.
Á þessu keppnistímabili hefur
unglingaflokki IBK gengið mjög
vel. Liðið sigraði í Reykja-
nesmótinu og er ósigrað eftir 10
umferðir í Islandsmótinu. IBK hef-
ur sex stiga forskot á lið Hauka sem
er í öðru sæti. Þegar þetta er ritað á
ÍBK eftir að leika tjóra leiki á mót-
inu og ef liðið sigrar í tveimur
þessara leikja þá verður það Is-
landsmeistari í vor.
Unglingaflokkur IBK er ekki
með hávaxið lið, en liðið bætir
hæðarleysið upp með hröðum leik
og ágætri hittni úr langskotum.
Liðið skorar að meðaltali 107 stig í
hverjum leik. Strákarnir í liðinu
hitta að meðaltali úr 8 þriggja stiga
skotum og vinna andstæðingana
með 27 stiga mun að meðaltali.
Úrslit leikja IBK á ís-
landsmótinu til þessa eru eft-
irfarandi:
ÍBK-UMFS 135-65
ÍBK - Haukar B 2-0
ÍBK-Valur 100-95
ÍBK - Drengjal. 109-74
ÍBK - ÍR 96-95
ÍBK-KR 101-86
ÍBK - Haukar A 78-63
ÍBK-Valur 106-81
IBK-UMFS 139-59
ÍBK - Drengjal. 97-93
IPR0TTIR
í HVERRI VIKU
UMSJÓN:
TÓMAS
TÓMASSON
KEILA
UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS
INGI GUNN-
ARS FÉKK
GULLMERKI
Ingi Gunnarsson fékk um síð-
ustu helgi gullmerki Ung-
mennafélags Islands. Var honum
veitt merkið fyrir hans störf að
körfuknattleiksmálum í Njarð-
vík, en lngi er einn af fremstu
forvígismönnum körfuboltans í
Njarðvík og hefur alla sína tíð
liaft brennandi áhuga fyrir íþrótt-
inni og gert henni vel.
Það er ekki oft sem Ung-
mennafélag Islands veitir orður
eins og gullmerkið og er það því
mikill heiður og viðurkenning á
störf þess er merkið hlýtur.
Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ, afliendir Inga orðttna.
Ljósm.: hbb
Úrslit í helgarmóti Keilufélags
Suðurnesja fóru á eftirfarandi hátt.
í B-flokki varð sigurvegari Úlfar
Sigurðsson með 529 stig. Önnur
varð Theodóra S. Pétursdóttir með
508 og Sigurvin Hreinsson varð 3.
með 483 stig. Hæsta leik átti Sig-
urvin Hreinsson 191.
í C-flokki varð í 1. sæti Gunn-
laugur Hafsteinsson með 481. jón
Ólafur Jónsson varð í 2. sæti með
464 og þriðji varð Sigurður Skjaldar
með 445. hæsta leik átti Jón Ólafur
Jónsson, 177.
Ekki var leikið í D-flokki þar
sem ekki var næg þátttaka. Ólafur
Sólmundsson var fluttur upp í C-
flokk og hafnaði þar í 4. sæti.
í tvíkeilu urðu Ólafur Sól-
mundsson (437) og Úlfar Sig-
urðsson (556) sigurvegarar með
samtals 993.1 öðru sæti urðu Ólafía
Sigurbergsdóttir (492) og Elmar
Ingibergsson (446) með 938 stig.
Hæsta leik átti Úlfar Sigurðsson,
216.
Keflvískar fim-
leikadrottningar stóðu
sig vel á skrúfumóti
Fimleikadrottningar úr Keflavík
stóðu sig vel á skrúfumóti sem
haldið var sl. laugardag, 9. febrúar.
Blaðinu hafa borist úrslit úr mótinu
og er eftirfarandi samantekt unnin
úr þeim:
Sigrún Gróa Magnúsdóttir FK
varð í 1. sæti í stökki í flokki eldri
þátttakenda og í öðru þrepi. I öðru
sæti varð Jóna Guðmundsdóttir frá
Akureyri og í því þriðja Iris Dröfn
Halldórsdóttir FK.
I flokki yngri þátttakenda varð
Hilma Sigurðardóttir efst í 1 þrepi
og Ragna Laufey Þórðardóttir varð
í öðru sæti. Iris Jónsdóttir, Björk,
varð þriðja.
I æfingum á dýnu í eldri flokki,
2 stigi, varð Sigrún Gróa Mag-
núsdóttir FK í fyrsta sæti, Anna
Elín Björnsdóttir og Elín Margrét
Kristjánsdóttir frá Akureyri urðu í
2. og 3. sæti.
I æfingum á trampolini í eldri
flokki, 2. þrepi, varð Akur-
eyringurinn Elín Margrét Krist-
jánsdóttir hlutskörpust. Önnur varð
íris Dröfn Halldórsdóttir FK og í
þriðja sæti varð Laufey Stein-
dórsdóttir frá Akureyri.
FK stúlkur urðu í þremur efstu
sætunum í yngri flokki, 1. þrepi, í
æfingum á trantpolini. Hilrna Sig-
urðardóttir og Svala Reynisdóttir
fengu báðar jafnmörg stig fyrir
sínar æfingar 9,50. Næst á eftir
þeim kom Ragna Laufey Þór-
ðardóttir með 9.40 stig fyrir sínar
æfingar.
Sigrún Gróa Magnúsdóttir FK
varð hlutskörpust í gólfæfingum í
eldri flokki, 2. stigi, en tvær stúlkur
úr Björk. þær Linda Mjöll Þor-
steinsdóttir og Ásdís B. Pálmadóttir
urðu jafnar í 2. sæti.
I yngri flokki, 1. þrepi, varð
Ragna Laufey Þórðardóttir FK
hlutskörpust. Arna Sveinsdóttir úr
Björk varð önnur og Ásdís Jó-
hannesdóttir FK varð þriðja.
Fjöldi stúlkna úr Fimleikafélagi
Keflavíkur tók þátt í þessu skrúfu-
móti og náðu rnargar þeirra mjög
góðum árangri, þó svo þær hafi ekki
komist á verðlaunapalla.
Aðalstjórn UMFN
endurkjörin
• Aðalstjórn Ungmennafélags Njarðvíkur var endurkjörin á aðalfundi fé-
lagsins sl. laugardag. Stjómina skipa þau Böðvar Jónsson formaður, Helga
Sigrún Harðardóttir gjaldkeri og Kristján Jóhannsson ritari. Hlutu þau svo-
kallaða rússneska kosningu, þ.e. kosin með lófaklappi.
Hver fer með Samvinnuferðum-
Landsýn á Wembley?
v\kmmr
Geirmundur Jón
Geiri sló Stebba
út á 3 réttum
Það var enginn stór-
meistarabragur á þeim Geir-
mundi Sigvaldasyni og Stefáni
Jónssyni í síðustu leikviku. Geiri
fékk 3 rétta og Stefán aðeins tvo.
Stefán missti af úrslitakeppninni
hreinlega útaf Liverpool sem
hann setur alltaf tap á, á sinni
röð, sem hann gerir móralskt séð.
Stefán er anti-púlari. Þannig að
Geiri fór áfram og hefur skorað
á Jón Newman, einn af fjöl-
mörgum Liverpool-aðdáendum
hér á Suðumesjum.
Það fer að styttast í úr-
slitakeppnina sem hefst í apríl.
Verðlaunin em glæsileg eins og
áður hefur verið greint frá, ferð
til London með Sam-
vinnuferðum-Landsýn og miði á
bikarúrslitaleik ensku knatt-
spymunnar.
G J
Cambridge-Sheff. W. 2 2
Notts C.-Man. City X 1
Portsmouth-Tottenham 2 2
Chelsea-Wimbledon I 1
C. Palace-Q.P.R. 1 1
Blackburn-W.B.A. 1 X
Bristol Rov.-Watford 1 1
Hull City-Bristol City 2 X
Millwall-Plymouth 1 1
Oldham-Port Vale 1 I
Oxford-Charlton 1 X
Wolves-Leicester 1 I