Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.02.1991, Side 16

Víkurfréttir - 14.02.1991, Side 16
16 Fréttir Viðhorf Víkurfréttir 14. febrúar 1991 Brunavarnir Suöurnesja: Slökkviliðsmenn segja sig úr landssambandi Samþykkt hefur verið á lög- mætan hátt að Félag slökkvi- liðsmanna hjá Brunavömum Suðurnesja segi sig úr Lands- sambandi Slökkviliðsmanna. Er félagið þar með hið þriðja á skömmum tíma sem gerir slfkt, hitt eru slökkviliðsmenn í Vest- mannaeyjum og Grindavík. Hinir síðamefndu höfðu þann háttinn á að greiða ekki aðildargjöld í tvö ár og voru þar með strikaðir út. Til að segja sig úr sltkum samtökum þurfa tveir þriðju hlutar fundarmanna á tveimur fundum að samþykkja úr- sögnina og gekk það vel eftir á fyrri fundinum í Keflavík, en á síðari fundinum munaði aðeins einu atkvæði. Félagsmenn í Keflavík hafa lengi haft horn í síðu LSS og mun tillaga þess efnis að segja sig úr samtökunum, oft áður hafa komið fram, en ekki geng- ið í gegn fyrr en nú. Þéttiþjónusta Jóns og Þóris Gerum við lek þök, svalir, sprungur, glugga og rennisteina. Upplýsingar í síma 91-68-73- 94. + HJARTANS ÞAKKIR sendunt við öllum þeim er sýndu okkur hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærs föðurs, sonar og bróður SIGURÐAR J. BERGMANNS Sérstakar þakkir til Landhelgisgæslu íslands og starfs- manna hennar. Guð blessi ykkur öll. Helga Sigurðardóttir Sigríður Gísladóttir Þorsteinn Bergmann Valgerður Ingimundardóttir Magnús Bergmann Bjarni Bergmann Gunnar Bergmann Anna Gunnarsdóttir Þakkir Innilegar þakkir færi ég öllum sem glöddu mig á 85 ára afmælisdegi mínum 15. janúar sl. Steinþór Sighvatsson, Vatnsnesvegi 36, Keflavík „Prúðbúinn og vatns- greiddur í fjölmiðlum“ Undanfarna daga hafa landsmenn verið óþyrmilega minntir á legu landsins og þær hamfarir náttúrunnar sem ávalt þarf að reikna með að geti orðið. Obætanlegur skaði Nú hafa á stuttum tíma orðið eldgos, jarðskjálftar og nú síðast fárveður, sem valdið hefur milljarðatjóni og eins og ávalt óbætanlegum skaða hjá einstaklingum , þó þeir hafi sig oft minnst frammi. Suðurnesin þó þau fengju sinn skammt af fárviðrinu eru þar síst ver en aðrir, útleikin og svæði sem eru í flestum talin Suðurnesjum frama, sleikja ekki síður sín sár. Mær gæti sýnst að verstu sárin hafi Almannavarnir ríkisins fengið í þessu áhlaupi, því þær sönn- uðu einu sinni enn ræfildóm sinn og getuleysi. Fárviðrið var ekki fyrr skollið á en mestur hluti landsins varð raf- magnslaus og þar með út- varpslaus. Velgreiddur í sjónvarpi Þó forstjóri Almannavarna sé huggulegur og velgreiddur maður í sjónvarpi á góð- viðrisdögum, þegar lægðir eru grunnar og hann útskýri ágæti sinnar stofnunar og ákaflega merkilegar áætlanir, ef til vandræða komi, þá var nú þannig að helsta bækistöð Al- mannavarna á laugardaginn var bæði hita- og raf- magnslaus í sólarhring. Astæðan var að ekki hafði verið höfð ræna á að koma þangað vararafstöð. Það kom nefnilega í ljós einu sinni enn að það voru hjálparsveitir áhugamanna sem dugðu mest og best, bæði hér og alstaðar annarsstaðar. Sveitir sem ríkið hefur getað gert það eitt fyrir að leggja Guömundur Vigfússon skrifar okurskatta á allan þeirra út- búnað, enda í flestum tilfellum ekki prúðbúnir og vatnsgreiddir í fjöl- miðlum að lofa sitt ágæti, en reyn- ast þeim mun betur þegar í nauðir rekur. Óhófshít ríkisins? Það sem vakti þó ekki minni skelfingu í mínum Ituga var það að þegar loks komst aftur á útvarp á stuttbylgju, skyldu fyrstu fréttir frá því opinbera vera þær að Við- lagatrygging bætir ekki tjón af fár- viðri. Er það vegna þess að fólk getur keypt sér hjá trygg- ingafélögunum, bótaskyldu. Þar að auki var Viðlagasjóður tómur - ég bara spyr: Hvað verður um allar þær millj- ónafúlgur sem landsmenn eru kúgaðir til að greiða árlega í Viðlagagjöld? Hirðir ríkið það í sína óhófshít, eins og þau gjöld sem Ríkisútvarpið átti að fá til m.a. að reisa nýja lang- bylgjustöð, en það var ákveð- ið með lögum 1983 eða 5. Arafat eða langbylgjan? Auðvitað hefði forstjóri Almannavarna átt að sjá svo um að við það væri staðið og drifin upp fullkomin lang- bylgjustöð, en þessi gömlu og ónýtu möstur, sem nú hafa fallið væri ekki það haldreipi sem stólað skyldi á. Því þau voru dæmd ónýt fyrir 20 árum. Þó ráðherrar okkar hafi ekki skilið mikilvægi þess að byggja nýja langbylgjustöð, er það að vissu marki skiljanlegt. Þeir hafa verið svo uppteknir af stríðsátökunum úti í hinum stóra heimi og í stöðugum ferðalögum á henuálaráð- stefnur og heimsóknum til Jasser Arafat og álíka kóna, að langbylgjustöð á Islandi til öryggis fyrir sjómenn og sæ- farendur og landsmenn á ör- lagatímum hverfur nátt- úrulega í skuggann. Þar sem um eðlilegar náttúruhamfarir er að ræða og skilningur ráð- herra nær ekki eins til þeirra mála eins og hernaðartækni. auk þess sem þessi ferðalög kosta náttúrulega mikla pen- inga, sem ekki verða þá not- aðir í annað. Guðmundur Vigfússon, Sandgerði .... til öryggis fyrir sjó- menn og sæfarendur og landsmenn á örlagatímum hverfur náttúrulega í skugg- ann. Þar sem um eðlilegar náttúruhamfarir er að ræða og skilningur ráðherrana nær ekki eins vel til þeirra og.....“ Holt Innri Njarðvík Okkur vantar fleiri fóstrur. Erum tvær á staðnum. Holt er tveggja deilda leikskóli með sveigj- anlegan vistunartíma. Góð vinnuaðstaða, gott starfsfólk og spennandi verkefni. Upplýsingar í síma 16100. Forstöðumaður Kaldalónstónleikarnir endurteknir Karlakór Keílavíkur og Kvennakór Suðumesja hafa ákveðið að endurtaka Kalda- lónstónleika sína sent haldnir voru 12., 13. og 14. jan. sl. Fara þeir fram í Félagsbíói í Kefla- vík, sunnudaginn l7.febrúarog hefjast kl. 20.30. Einnig átti að syngja í Víðistaðakirkju í gær og að Flúðum 16. mars. Húsfyllir var á tónleikunum í Grindavík, Reykjavík og Njarðvík sem haldnir voru í síðasta ntánuði. Voru undir- tektir mjög góðar og bárust fjölda áskorana um fleiri tón leika og hefur því verið ákveðið að þetta verði síðustu tónleikarnir.Ættu því þeir sem ekki sáu sér fært að mæta, að koma nú og njóta þeirra. Eru tónleikamir haldnir í til- efni af 110 ára ártíð Sigvalda Kaldalóns. Frá Kaldalónstónleikunum í Ytri-Njarðvíkurkirkju íjanúar. Ljósm.: Heimir.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.