Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.10.1991, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 24.10.1991, Blaðsíða 10
10 Skemmtanalíf \i kurfréttÍT 24. október 1991 ÁRNAD HEILLA Hver verða brúðhjón ársins? Víkurfréttir hafa koniist að samkomulagi við I jósmvndarana á Suð-urnesjum um reglulega birtingu á mvnduin af nýjuni brúðhjónum. í næstu blöðuin inunuin við birta nokkrar myndir af nýjum brúðbjónum og þegar draga ferað jólum inunum við draga úr hópnum eina mynd sem við ætlum að kjósa Brúðhjón Suðurnesja 1991 og munu þau bljóta vegleg verðlaun at' því til- cfni, sem við inunuin greina frá síðar. Þau brúðhjón frá Suðurnesjum, sem ekki bafa farið til Ijós- myndara á Suðurnesjum, látið vini eða kunningja mynda sig eða Ijósmyndara annars staðar á landinu eru hvött til að senda okkur mynd til birt-ingar. 6. apríl voru gefin saman í hjónaband í Ytri-Njarðvíkur- kirkju af séra Þorvaldi Karli Helgasyni, brúðhjónin Saengd- uan Sinpru og Slefán Vestmann, Hátúni 16, Keflavík. Ljósm.: Nýmynd. 15. júní voru gefin saman í hjónaband í Innri-Njarðvíkur- kirkju af séra Ragnari Fjalar Lárussyni, brúðhjónin Guðrún Ásmundsdóttir og Jón Magnús Björnsson, Njarðvíkurbraut 23, Innri-Njarövík. Ljósnr.: Nýrnynd. 6. júlí voru gefin saman í hjónaband í Keflavíkurkirkju af séra Erni Bárði Jónssyni, brúð- hjónin Bryndís Guðmundsdóttir og Arnar Þór Sigurjónsson. Suð- urgötu 7. Keflavík. Ljósm.: Nýmynd. lo. júní voru gefin saman í hjónaband í Keflavíkurkirkju af séra Olafi Oddi Jónssyni, brúð- hjónin Stefanía Helga Björns- dóttir og Arnbjörn Hannes Arn- björnsson, Reykjanesvegi 44, Njarðvík. Ljósm.: Nýmynd. 29. júní voru gefin saman í hjónaband í Grindavíkurkirkju af séra Hirti Magna Jóhannssyni, brúðhjónin Sigrún Harpa Ein- arsdóttir og Sigurður Oli Hilm- arsson, Hólavöllunr 7, Grindavík. Ljósm.: Nýmynd. 6. júli voru getin saman í hjónaband í Njarðvíkurkirkju af séra Olafi Oddi Jónssyni, brúð- Itjónin Elínborg Ellertsdóttir og Bjarne P. Svendsen, Grundarvegi 21. Njarðvík. Ljósnt.: Nýmynd. GÓÐ STEMMNING Á SIRRÝARKVÖLM Sirrýarkvöld í Félagsheimilinu Festi í Grindavík fékk góðar við- tökur fjölmargra gesta sl. laug- ardagskvöld. Margþætt dagskrá var í boðið fyrir gesti áður en efnt var til stórdansleiks með hljóm- sveitinni Eldfuglinum, sem er skipuð bræðrunum Karli og Grét- ari Örvarssonum og félögum. Meðal þess sem í boði var má nefna snyrtivörukynningu frá Apóteki Grindavíkur. Kynntur var nýr dömulimur frá Gucci og Adi- das rakspíri fyrir herra. Góðir gæjar úr Keflavík sýndu nýjustu fötin frá Versluninni Gæjum. Þá kom dansatriði frá Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar og Tísku- sýning frá versluninni Stórum stelpum. Þaö var sjarmörinn Heiðar Jónsson, snyrtir, sem kynnti dag- skrána, en Hárgreiðslustofan Taco úr Grindavík sá um alla hár- greiðslu á þeim módelum er fram komu. Þótti sýningin takast vel og fengu aðstandendur hennar gott lófaklapp. Meðfylgjandi myndir tók Haukur Júlíusson við þetta tækifæri og þær tala sínu ntáli sjálfar. PORRAUNDIRBÚNINGUR HAFINN Axel búinn að leggja í súr Þó enn séu tæpir þrír mánuöir í þorrann. eru veitingamenn þegar farnir að hugsa og jafnvel und- irbúa þorramatinn. Einn þeirra er Axel Jónsson veitingamaður í Matarlyst. Tók fyrirtæki hans að þessu sinni 100 slátur ásamt öllu tilheyrandi og í síðustu viku voru þær matartegundir sem þekktastar eru á þorrabakkanum lagðar í súr hjá fyrirtækinu. Axel hefur nú útbúið þorramat í 13 ár, og sagði hann að bestu gæðin hefðu tekist í fyrra. „Eg er hinsvegar sannfærður um að nú hefur tekist vel til og ef eitthvað er, þá betur en á síðasta ári," sagði hann í samtali við blaðið. En hver skyldi vera galdurinn á bak við góðan þorramat. Gefum Axeli orðið: „Númer 1.2, 3,4, og Fimm er það hreinlæti og aftur hreinlæti." Að endingu vildi hann koma því að svona í lokin að þegar nær dregur þorra verða hinir vinsælu þorrabakkar til sölu hjá Matarlyst á Iðavöllunum. • Axel Jónsson sýnir okkur súrmatinn sein verður á þorrabökkunuin frá Mat- arlyst á þorranum eftir uin þrjá mánuði. Ljósm.: epj.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.