Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.10.1991, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 24.10.1991, Blaðsíða 18
18 Yíkurfréttir 24. október 1991 íþróttir BRIDS 0*0* Sveit Grethe með forystu Nú stcndur yt'ir hraðsveitar- keppni hjá Bridsfélagi Suðumesja. Sjö sveitir taka þátt og stendur keppnin yfir í tvö kvöld. Staða sveita að loknu fyrra kvöldinu er þessi: 1. Grethe-Sigríður/ Karl-Hjálmtýr.........513 2. „Redoblsveitin“ Gunnar- Birgir/Logi-Gísli.....483 3.-4. Sigurður-Jóhann/ Kjartan-Þórður........418 3.-4. „Doblsveitin" Eysteinn- Eiríkur/Lárus-Garðar..418 5. Óli Þór-Pétur/ Arnar-Sigurður........399 6. Björn-Reynir/ Björn-Sigurhans.......396 7. Gestur-Helgi/ Óskar-Kolbcinn........394 Meðalskor er 432 Næstkomandi mánudag verður spilað seinna kvöldið í hraðsveil- arkeppninni en síðan tekur við Minningarmótið um Guðmund Ing- ólfsson. Mótið er sveitakeppni. þar sem spilaðireru tveir 16 spila leikir á hverju kvöldi. Keppniti mun standa yfir í 4-5 kvöld. Spilamennska mun hefjast kl. 19.45 og eru spilarar því beðnir að vera stundvísir. Mólið fer Iram í Gistihúsinu Kristínu í Njarðvík og eru áhorfendur velkomnir. Stjórnin Naumur ósigur gegn Islandsmeisturunum Keflavíkurstúlkumar í handboltanum sýndu að þær geta svo sannarlega bitið frá sér, þegar þær léku á heimavelli gegn ís- landsmeisturum Stjörnunnar sl. föstu- dagskvöld. Keflavík leiddi mest allan tíma leiksins, og var yfir 11:9 í hálfleik. í síðari hálfleik liélt IBK forystunni allt fram á síðustu mínúturnar, er Stjörnunni tókst að jafna og komast yfir 19:18. Síðustu sekúndur leiks- ins voru örlagaríkar. ÍBK lékk boltann og liafði u.þ.b. hálfa mínútu til að jafna. Dæmt var aukakast, og áður en ÍBK stúlkur gátu tekið það, dæmdi annar dómari leiksins leiktöf, hversu fáránlegt svo sem það kann að virðast. Stjörnustúlkur fengu því boll- ann og héldu honum þar til bjallan glumdi. Það má segja að skortur á leikreynslu hafi orðið til þess að IBK-stúlkurnar misstu þarna af a.m.k. einu stigi, en þær sýndu þó oft á tíðum stórgóðan leik. Má fullvíst telja að þær hafa ekki sagt sitt síð- asta orð, þrátt fyrir brösugt gengi í upphafi deildarkeppninnar. Hajni Mezei var sem fyrr atkvæðamest hjá IBK. skoraði sex mörk. Eva Sveins- dóttirog Olafía Lóa Bragadóttir áttu einnig góðan leik og gerðu fimm mörk livor. Hin tvö tnörkin gerði Þuríður Þorkelsdóttir. KARFA: Góður útisigur gegn ÍR Keflavíkurstúlkumar í 1. deild körfuboltans unnu góðan sigur á IR í Seljaskóla um helgina, 56:52. Kellavík byrjaöi betur, komst í 10:2. og liéll forystu allan fyrri hálfleikinn. Staðan í hálfleik var 33:26, Keflavtk í vil. IR-stúlkur mættu ákveðnar til leiks í síðari háltleik og söxuðu smám saman á forskot IBK. Þegar 5 mín. voru til leiksloka komust IR-stúIkur yfir 45:48 og þá vökn- uðu Keflavíkurstúkurnar lil lífsins. Þær skoruðu 11 stig í röð og tryggðu sigur sinn, þrátt fyrir að ÍR skoraði tvær síðustu körfurnar. Lokastaðan varð því 56:52. Slig IBK skoruðu: Anna María Sveins 14. Guðlaug Sveins 12. Björg Hafsteins I I. Kristín Blöndal 9. Olaa Færseth 6, og Katrín Eiríks 4. Iþróttafélag fatl- aöra stofnað á Sudumesjum Fyrirhugað er að stofna íþróttafélag fyrir fatlaða á Suð- urnesjum. að tilhlulan Sjálfs- bjargar, Þroskahjálpar, Sundfé- lagsins Suðurnes og Iþróttasam- bands fatlaðra. Að sögn Jóns Helgasonar, form. SFS, var farið fram á það við fé- lagið að stofna sérstaka deild innan félagsins fyrir fatlaða, og tók fé- lagið vel í þá hugmynd. Hefur þegar verið fenginn þjálfari fyrir deildina, og þess farið á leit við Keflavíkurbæ, að breyta gömlu Sundhöllinni, þannig að fallaðir geti gengið þar um. Að sögn Jóns nýtist nýja Sund- miðstöðin þessum liópi ekki. vegna þess m.a. að liafa þarf sér upp- hitaöa laug. Þttð munu vera um 15 fatlaðir krakkar á Suðurnesjum, sem hug hafa á að leggja stund á sundið. Auk þess stunda fatlaðir margar aðrar íþróttagreinar. og má þar nefna boccia scm dæmi. Undirbúningsfundur fyrir stofnun félagsins verður í Safn- aðarheimili Innri-Njarðvíkur- kirkju. mánudaginn 28. okt. nk. kl. 21.00. Eru allir setn áhuga hafa á málefninu hvattir til aö mæta. Utbreiðslufulltrúi Iþróttasam- bands fatlaðra. Anna K. Vil- hjálmsdóttir. verðurá fundinum og mun skýra frá starfsemi I.F. innanhússknattspyrnumót á Keflavíkurflugvelli Varnarliðið á Kellavíkurflug- velli stendur fyrir innanhússknalt- spyrnumóti fyrir 4. aldursflokk (14-16 ára) um helgina. Auk tveggja liða frá skólanum á Kefla- vikurflugvelli, keppa tvö lið Irá ÍBK. tvö frá UMFG og eitt lið frá Val í mótinu. Keppni hefst á laugardag kl. 15 og verður leikið til 18. Mótið klár- ast síðan á sunnudaginn, en þá hefjast lcikar kl. 12 og er stefnt að því að verðlaunaafhending hefjist um kl. 18. Allir íþróttaunnendur eru að sjálfsögðu velkomnir í íþróttahúsið á Ketlavíkurflugvelli til að fylgjast með keppninni. Annar stórsigur hjá HKN HKN byrjar keppnistímabilið vel í handboltanum. A sunnu- dagskvöldið, vann HKN. eitt yngsta félagslið á Islandi, sigur á Armanni, einu elsta félagsliði landsins, í Laugardalshöllinni. Það var l'yrst og fremst góður varnarleikur sem skóp sigur HKN. cn liðið hal'ði yfir 11:3 í hálfleik. Þá var markvarslan í leiknum frábær. en í markinu stóð Pétur Magn- ússon. fram yfir miðjan síðari hálf- leik. og Einar Ben. restina. Erlingur Magnússon. form. HKN, sagði sína menn hafa leikið eins og meistara í 45-50 mín„ en þeir hefðu slakað verulega á í lok- in. Flest mörk HKN skoruðu Romas Pavalonys og Gísli Jóhannsson, (sem vann þó það afrek að skjóta ylir tómt mark Armanns í einu skoti sínu), 6, Oli Thord gerði 5. Her- mann Hermansson 4. Magnús Þórðarson 3. Guðbjörn Jó- hannesson I. og Arinbjörn Þór- hallsson I. Deildarmeistararnir koma í heimsókn -HKN leikur viö Víkinga í bikarkeppninni Gísli og HKNá Oli með sameiningartákn lofti. Það er óhætt að segja að HKN- menn fái verðuga andstæðinga í fyrstu umferð bikarkeppninnar í ár. A nk. miðvikudag, 30. okt.. fá þeir sjálfa deildarmeistarana. Víking. eitt sterkasta félagsliö Evrópu, í heimsókn. Lið Víkinga þarf ekki að kynna fyrir handboltaáhugamönnum. Þar er valinn maður í hverju rúmi og liðið hefur á að skipa 8 núverandi og fyrrverandi landsliðsmönnum. Má þar nefna: Bjarka Sigurðsson. Guðmund Guðmundsson. Birgi Sigurðsson. Alex Trúfan, Hrafn Margeirsson. Björgvin Rúnarsson, Karl Þráinsson og Arna Frið- leifsson. Lið HKN. sem hefur fengið flúgandi start í 2. deildinni, er einnig skipað harðskeyttum köpp- um. og Itafa þrír liðsmenn komið við sögu landsliðs. Hannes Leifs- son. þjálfari og leikmaður. lék fjöl- marga landsleiki á 9. áratugnum. Romas Pavalonys lék með Lit- háiska landsliðinu, og Einar Ben.. markvörður. kom við sögu í einum landsleik Islands og Sovétríkjanna í KetJavík fyrir nokkrum árum. Þá hefur HKN á að skipa harð- jöxlum eins og „Sleðanum" Gísla Jóhannssyni og „Valtaranum" Ólafi Thordersen. sem aldrei gefa þuml- ung eftir. Telja má nokkuð \íst að Þor- bergur Aðalsteinsson, landsliðs- þjálfari. mæti og fylgist með leikn- um. enda vérður þetta einn mesti stórleikur sem fram hefur farið í handbolta á Suðumesjum um ára- bil. -Handknattleiksunnendur! - Lát- ið þetta tækifæri til að sjá frábæran handbolta ekki framhjá ykkur sleppa. fréttir Keflvíkingar standa sig enn vel í áheitunum. I síðustu viku voru þeir í 4. sæti, með sam- tals 5,262 raðir. Virðist svo sem hópleikurinn sem komið var af stað haft ýtt uiidir áhugann fyrir get- raununum. Staða efstu hópanna er ókunn, þar sem ekki náðist í for- svarsmenn get- raunanna hjá ÍBK. GETRAUNALEIKUR SAMVINNUFERÐA OG VÍKURFRÉTTA Tipparamir flúöu úr landi! é% Tippararnir frá síðustu viku. knattspyrnuþjálfar- amir, Bjarni Jóhannsson og Kjartan Másson skömm- uðust sín svo mikið fyrir frammistöðuna í síðustu viku að þeir „flúðu" land. Þeir félagar eru nú í Þýska- landi, þar sem þeir dveljast í þjálfarabúðum. Dagskráin í búðunum er svo ströng, að hvorki er hægl að ná sam- bandi við þá í síma né í faxtæki. Það varð því að beita nýstárlegum leiðum til að ná sambandi við þá. og sendi Kjartan t.a.m. hug- skeyti með sinni spá. Það gal Bjarni hins vegar ekki. og því var betri helm- ingurinn hans. hún Ingi- gerður. fenginn til að tippa í hans stað. Það verður gaman að sjá hvort þeir kappar bæta eitt- hvað stöðu sína með þessu. 9» % ■ 0 Kjartan lljarni Arsenal-Notts Gountv 1 1 Aston Villa-Wimbledon 1X2 X2 Crystal Palace-Chelsea 12 1 Leeds-OIdham 1 1 Liverpool-Coventrv 1 IX Man.City-Sheff. Utd. 1 1 Norwich-Luton I 1X2 Nottingham-Southampton 1 1 Q.P.R.-Everton 2 2 Sheff.Wed.- Man.Utd. 12 2 West Ham-Tottenham 2 1X2 Portsmouth-Ipswich 1X2 X

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.